Heima er bezt - 01.04.1978, Síða 7
Ástríður, Torfi og synirnir ungir.
hann tæki við jörðinni, hefði hann reynt að spjara sig
sem best hann kunni og reynt að fylgjast með tím-
anum í búskaparmálum.
Hann hóf sjálfstæðan búrekstur árið 1943. En
áður höfðu hann og Jóhann bróðir hans búið saman,
þar til Jóhann fluttist suður á land.
Búskapur Torfa hófst því á mæðiveikiárunum, en
þá var bústofninn hruninn. Hann byrjaði aftur með
um 30 kindur, en fór smám saman að snúa sér að
mjólkurframleiðslu sem hann stundaði, þar til Jó-
hannes sonur hans tók við kúabúinu í ársbyrjun
1969, en eftir það sauðfjárbúskap alfarið. Á Torfa-
læk 2 (hjá Jóhannesi) er aftur á móti eingöngu kúa-
búskapur.
Það getur engum dulist að á Torfalæk er búið með
miklum glæsibrag, enda leynir sér ekki stoltið í rödd
Torfa bónda þegar hann ræðir um uppbygginguna,
einkum þann stóra hluta hennar sem hann vann að
með eigin höndum og aðstoð heimafólks, en lítilli
aðkeyptri vinnu, og lán hrukku varla til fyrir efninu.
Torfi og Jóhann byggðu saman íbúðarhús árið
1942, en gamli burstabærinn var rifinn. Síðar
stækkaði Torfi þetta hús með viðbyggingu, svo það
er nú hið ágætasta.
Á Torfalæk hjá Torfa er nú fjárhús yfir 400 fjár og
fjós yfir 32 gripi sem nú er notað fyrir sauðfé. Hlöður
eru 950 rúmmetrar, votheystum 40 rúmmetrar og
geymslur 529 rúmmetrar. Túnið er 44 hektarar,
áhöfnin rúmlega 500 fjár, 40 hænsni og 35 hross.
Húnvetnskir bændur hafa löngum talið hrossin
ómissandi í búskap sínum.
Á Torfalæk 2 er tún talið um 45 ha og þar er nýtt
og vandað íbúðarhús á einni hæð. Lausagöngufjós
er þar yfir 48 gripi, með mjaltabás, mjólkurhúsi og
áburðarkjallara. Hlaðan er þar 1125 rúmmetrar og
svo eru þar rúmgóðar geymslur. Áhöfnin er 35-38
mjólkurkýr og 30-35 geldneyti og 3 hross.
Og svo eru á báðum býlum Torfalækjar nýtísku
vélar og tæki til heyskapar, og það fleiri en eitt af
sömu gerð, 4 traktorar, fólksbílar og vöruflutninga-
bíll o.fl.
Árið 1945 var Torfi kosinn í hreppsnefnd Torfa-
lækjarhrepps og í henni hefur hann setið næstum 23
ár. Oddviti hefur hann verið frá árinu 1962. Sveit-
arstjómarstörfin hafa auðvitað tekið sinn tíma frá
bústörfunum, en það létti mikið þegar yngri sonur-
inn, Jón, fór að búa með foreldrum sínum á Torfa-
læk 1.
Heima er bezi 115