Heima er bezt - 01.04.1978, Síða 17

Heima er bezt - 01.04.1978, Síða 17
arkríli sem sonur einhvers valdamesta mannsins og menn hugðu að á honum myndu rætast þær framtíðarspár sem fylgdu hverju fulli í skírnarveislu hans fyrir 53 árum þegar guðfeðurnir, voldugu kaupmennirnir Hemmert og Thyesen, skáluðu fyrir framtíð hans í glitrandi veigum. Hreppsnefnd Hrafnagilshrepps, fulltrúar bjargálna bænda og kaup- manna verslunarstaðarins, var yfir- leitt sammála um að aðgát skyldi höfð á allri ómagaframfærslu og reyndi að stilla þeim útgjöldum sem mest í hóf, en á þessum árum var fátækrafram- færslan aðalviðfangsefni sveitarfélag- anna. Þessvegna var aldrei hikað við að efna til þrætumála út af sveitfesti eða ómagaflutningum og voru deilur um þessi efni tíðar milli sveitafélaga og vafaómagar aldrei „forsorgaðir" nema að undangengnum miklum þrætum og langri refskák sem margir sveitarstjórnarmenn voru meistarar í. Jóhann Jacob Mohr virðist hafa verið í sérflokki þurfalinga, svo notað sé nútíma orðalag yfir stöðu hans. Engar heimildir finnast um það að hreppsnefndin hafi hið minnsta maldað í móinn yfir því að þurfa að veita honum viðtöku eða gert nokkra tilraun til þess að koma honum af sér án kostnaðar. Sannaðist hér áþreif- anlega að annað er Hólastóll en hundaþúfan. Jóhann Jacob Mohr var ekki boð- inn upp til sparnaðar á útgjöldum eins og mjög tíðkaðist með bágindafólk í sveitamannasamfélaginu íslenska, heldur var hann vistaður á einhverju mesta höfðingsheimili hreppsins, stórbýlinu Grund, þar sem konfer- ensráðsinna maddama Valgerður Briem, nóðir Eggerts sýslumanns, eyddi ellidögum. Hún hefur áreiðan- lega minnst fornrar vináttu við for- eldra þessa bágindamanns og látið hann njóta þess í einhverju. Þá má af ýmsu ráða að vinnuþreki þessarar höfðingbornu niðursetu hafi ekki verið ofboðið á stórbýlinu, því hann er á eilífu flandri fram og til baka milli Grundar og verslunarstað- arins. Séð hefur verið um að hann fengi sæmilega dróg undir sig til þessara ferðalaga svo að danskir skór hans slitnuðu ekki um of á mikilli göngu. Á því leikur ekki vafi að Jóhann Jacob Mohr hefur notið foreldra sinna og eins hins að hann var í venslum og kunningsskap við sumt af fyrirfólki verslunarstaðarins sem tví- mælalaust hefur alið þá von í brjósti að takast mætti að koma honum á réttan kjöl í lífinu, þótt allar þær vonir brigðust og það gæfist alveg uppá honum um síðir. í sumum manntalsskrám er hann sagður fæddur í Reykjavík. Gefur það til kynna að menn hafa ekki verið á eitt sáttir um sveitfesti hans. Þó verður ekki dregið í efa að séra Magnús Er- lendsson á Hrafnagili skýri rétt frá því í prestþjónustubók að hann væri fæddur á Akureyri 1. apríl árið 1806 og að hann hafi skírt hann það sama ár við pomp og pragt. Hreppsnefnd Hrafnagilshrepps hefur og talið þetta rétt vera, því að annars hefðu a.m.k. bændafulltrúarnir reynt að koma af sér þessari kostnaðarsömu niðursetu, hvað svo sem fulltrúar verslunarstað- arins hefðu sagt. Foreldrar Jóhanns Jacobs Mohr voru Andreas Daniel Mohr sem var kunnur verslunarstjóri á Akureyri í rúma þrjá áratugi, og kona hans Val- gerður Sigurðardóttir frá Grund í Hrafnagilshreppi. í Akureyrarsögu Klemensar Jóns- sonar segir að þau hjón hafi eignast tvo syni, umræddan Jóhann Jacob og Carl Ludvig sem síðar varð prestur í Danmörku. í manntalinu frá 1816 er hinsvegar getið enn eins sonar þeirra, Kristians Ferdinants, sem þá virðist hafa dáið ungur úr því að Klemens getur hans ekki. Auk þess ólu þau hjón upp stúlku, Ane Marie Olsen, sem var systurdóttir Mohrs. Andreas Daniel Mohr kom ungur til Akureyrar og gerðist verslunar- þjónn (assistent) við Kyhnsverslun árið 1804 og kynntist þá hinni ungu stúlku frá Grund og þau giftust árið 1806, skömmu fyrir fæðingu Jóhanns. A. D. Mohr fluttist svo síðar til Reykjavíkur og gerðist þar verslunar- stjóri danskrar verslunar mörg ár. Ár- ið 1821 kemur hann aftur til Akur- eyrar og gerist verslunarstjóri annarr- ar Gudmannsverslunarinnar þar. Þeirri stöðu hélt hann til ársins 1852 að hann og kona hans fluttust alfarin til Danmerkur þar sem þau létust, hann árið 1857, hún 1864. Mohr faktor var þekktur meðal heldra fólks sem snjall fiðluleikari (víólín). Og var m.a. til þess tekið, og getið um það á prenti í Klausturpósti Magnúsar Stephensens (nr. 2, 1821) hve vel hann spilaði á hljóðfæri sitt við jarðarför hins sæla amtmanns, Stephans Stephensens á Hvítárvöll- um. Má vera að sonurinn, Jóhann, hafi erft músíkhæfileika föðurins og kunnað eitthvað fyrir sér í þeim efn- um og þessvegna verið aufúsugestur í samkvæmum heldra fólksins á Akur- eyri. Andreas Daniel Mohr faktor var yfirleitt vel látinn og þótti hjálpsamur og frekar sanngjam ef svo bar undir, þótt vitanlega yrðu þar á dagaskipti eftir duttlungum og kringumstæðum. Hann gætti þó vel hagsmuna hús- bónda síns sem löngum sat útí Kaup- mannahöfn. Þá leikur grunur á að einhverja samúð hafi hann haft með réttindabaráttu íslendinga, a.m.k. fyrst í stað, því hann var kaupandi sjö eintaka Nýrra félagsrita Jóns Sig- urðssonar og lánaði þau út til lestrar. Þó kann þetta að hafa stafað af bóka- söfnunarnáttúru hans, en í verslunar- húsum sínum geymdi hann vísinn að því bókasafni sem seinna nefndist Amtsbókasafn og varð þessi bóka- varðveisla tilefni sögulegs þrass milli hans og Gríms amtmanns Jónssonar í Friðriksgáfu (Möðruvöllum). Sú deila verður ekki hér til umræðu. A.D. Mohr má því með miklum rétti kalla fyrsta amtsbókavörðinn. Sonurinn, Jóhann Jacob, mun hafa lært beykisiðn í Danmörku, gifst og átt þar heima í mörg ár. í flestum manntalsskrám er hann sagður ekkill. En eitthvað hefur brostið í lífi þessa manns, annað hvort vegna konumiss- isins, drykkjuhneigðar eða annarra þverbresta, því hann verður að segja sig til sveitar útí Kaupmannahöfn og borgarstjórnin vill út af lífinu losna við hann og þessvegna hafði hann verið sendur hreppaflutningi til fæð- ingarbæjar síns síðsumars árið 1859. [38]. Heima er bezt 125

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.