Heima er bezt - 01.04.1978, Síða 32

Heima er bezt - 01.04.1978, Síða 32
— Þetta voru sannarlega hlýlegar móttökur, varð Sig- urbirni að orði er þeir Kristján gengu út traðirnar. Þeir ætluðu að gá að lambánum fyrir nóttina. — Já, þau eru einstakar ágætismanneskjur, hjónin hérna, það má nú segja. Við Þóra mín erum búin að vera héma á ahnan áratug og hvergi hefur okkur liðið betur. Við bjuggum nokkur ár á býli hérna í sveitinni. Á meðan við vorum ung og fundum hvergi til lék allt í lyndi, en svo breyttist allt og einhvernveginn misstum við móðinn. Þóra varð heilsulítil og sinnulaus um tíma, en fór smátt og smátt að ná sér, en þá kom annað áfallið og ekki var um neitt að ræða annað en hætta búskapnum. Síðan höfum við verið í húsmennsku hérna. Þóra náði sér með tíman- um, það var vinnan sem bjargaði henni. Ég held að vinn- an sé besta óminnismeðalið sem til er. Við eigum nokkrar kindur og tvo hesta. Það er betra en ekkert að hafa eitt- hvað að hugsa um. Eins og þú veist þurfa ailir að vinna mikið, en það er ekki sama hjá hverjum maður vinnur. Húsbændurnir hérna hafa reynst okkur svo vel að eins- dæmi er. Fyrir þau vinnum við með glöðu geði og svo er um flesta, sem hér hafa verið, lengri eða skemmri tíma. Sigurbjörn var svo nærgætinn, að hann spurði Kristján einskis, hugsaði með sér að honum mundi erfitt að tala meira um hagi sína að þessu sinni. Hann átti eftir að kynnast honum og öllum þarna þetta sumarið. Margt gat skeð á skemmri tíma en einu sumri. Þeir þögðu um stund og gengu áfram upp hlíðina. — Við skulum ganga hérna upp fyrir hæðina og vita hvort við finnum ekki eitthvað af nýbærum í drögunum, sagði Kristján og reyndist sannspár. Þarna voru nokkrar nýbærur og virtist allt í lagi með þær og lömbin. Skammt frá lá ein ærin og var að bera. Gaf hún frá sér hásar stunur og virtist ganga erfiðlega. Kristján athugaði ána og sá að lambið bar skakkt að. Hann kraup niður og bað Sigurbjörn að halda við ána því nú þyrfti að bregða skjótt við, ef ekki ætti illa að fara. Kristján var eins og besta ljósmóðir og gat snúið lambinu til svo það kom eftir litla stund, en var líflítið og dasað og ærin einnig. Seinna lambið kom með venjulegum hætti og ærin reyndi að veikum mætti að standa upp en tókst ekki. Sigurbjörn færði fyrra lambið til hennar og tók hún móðurlega til við að kara það liggjandi og þegar hún hafði hreinsað höfuðið vel, fór lambið að snörla hressilega og reyna að brölta. Þegar ærin var loks staðin upp og lömbin komin á spena, héldu þeir áfram. Þeir fundu ekki fleira athugavert í þetta sinn og sneru heim á leið. Kvöldið var hlýtt og gróðurangan í lofti. — Já, það er nú svo, sagði Kristján. — Þegar allt lifnar og grær á vorin, finnst mér ég verða ungur í annað sinn og lífið þess virði að lifa því. Þó að árin færist yfir, er maður alltaf ungur innst inni og okkur ber að þakka guði hið góða þó ýmislegt hafi á móti blásið. Áfallalaust kemst enginn gegn um lífið. Þetta hefur allt sinn tilgang. Ójá, ójá. Nú verður látlaust áframhald á sauðburðinum fram í júní. Það er allt í lagi með ærnar í svona góðu veðri. Ég hef andvara á mér á nóttunni um þetta leyti, og ef við hýsum féð í hrakviðrum og vorkuldum, sef ég oft í fjárhúsinu. Það er vissara því alltaf getur eitthvað borið út af og ánægjulegt þykir mér að taka á móti þessum litlu öngum og hjálpa þeim fyrstu sporin, ef á þarf að halda. Þá til- finningu kannast hver einasti fjármaður við og það eru fleiri en þeir, sem svo eru gerðir, sem betur fer. Hannes frændi minn er lipur við féð og Geirþrúður er líka betri en engin. Það er efnileg stúlka og ef hún væri drengur, held ég að hún vildi helst verða dýralæknir, nærfærin og lag- hent við flest, sú stúlka. Snæbjöm er ekkert líkur tví- burasystur sinni, alvörugefinn og töluvert þungur í lund, ekki eins blíður og hún, en þau eru samrýmd þrátt fyrir það. Ef mér skjátlast ekki, held ég að hann sé efni í einhvers konar stjórnanda, til dæmis sýslumann, og hann mun læra það sem hann vill helst. Það fá bræðurnir hér allir. Heimilið er efnað og þau eru dugleg prestshjónin og þannig gerð að þau hugsa mest um farsæld barna sinna og annarra. Mér er engin launung á því að mér þykir vænst um tvíburana af systkinunum, enda liggja til þess vissar ástæður, sem ég segi þér seinna. En nú förum við inn og höfum það rólegt, þú átt Iíka eftir að skoða bæinn, sagði Kristján að endingu við Sigurbjörn, sem ekki hafði gripið fram í þessa löngu ræðu hans. 6. kafli. Dísa fór í fjósið með Þóru og Hannesi, þvi nóg var að gera. Henni varð starsýnt á Goða og hann lét ófriðlega, var illa við ókunnuga fyrst í stað og setti undir sig hausinn og bölvaði. Dísa fór að reyna að friða hann og talaði við hann í gælutón sem best hún kunni og var alveg óhrædd, enda var hann rammlega bundinn á traustlegum bás. — Láttu ekki svona illa, Goði minn! Vertu nú góður og lofaðu mér að klóra þér bak við eyrun. Svo fór hún í næsta bás og teygði sig og klappaði honum á hálsinn. Goði leit upp, hætti að bölva, en ranghvolfdi augunum, ljótur á svipinn. — Svona, Svona, sagði Dísa. — Vertu nú góða bamið. Þóra og Hannes brostu að þessum tilgangslausu fortöl- um Dísu. En sjáum til. „Bamið“ fór að stillast og virtist hlusta á þessa undarlegu, sefandi blíðu rödd. Svo gerði Goði nokkuð óvenjulegt. Hann teygði hausinn fram yfir milligerðið og Dísa lagði vanga sinn að loðinni kinn hans. — Þetta vissi ég, að við yrðum góðir vinir, sagði hún og klappaði honum. — Já, þú ert fallegur, Goði minn, satt er það. Hann var bröndóttur um allan belginn, gljáandi og vel alinn. — Verðlaunagripur á allan hátt, kominn af íslenskum kúaaðli, sagði Kristján stundum. Kýrnar voru fjórar mjólkandi og tvær á fyrsta kálfi, sem áttu að bera seint um sumarið. Kálfar, tvær kvígur og nautkálfur voru þarna líka og var sá síðastnefndi íifandi eftirmynd Goða, enda sonur hans. Hannes var mjög vel að sér í kúaættfræðinni og Dísa var ekki lengi að tileinka sér fræðsluna. Hún var eins og 140 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.