Heima er bezt - 01.04.1978, Page 34

Heima er bezt - 01.04.1978, Page 34
7. kafli. Það var staðarlegt heim að líta. Gamli bærinn var torfbær að mestu leyti og vel við haldið Hann var með sex burst- um og voru tvær reisulegastar fyrir miðju, en lækkuðu til hliðanna. Timburþil voru á framhlið og meðalstórir gluggar. Þessi bygging féll svo vel inn í landslagið, að það var eins og hún hefði sprottið upp úr jörðinni og fest þama rætur. Stórt timburhús stóð skammt frá gamla bænum. Það var með háu risi, enda þrjú herbergi uppi, en gestastofan, sem fyrr er getið, var á neðri hæðinni. Þetta er Nýibær, hús sem var til mikils hagræðis fyrir prestsembættið. Presturinn gekk með fólkinu um staðinn um kvöldið og fræddi það um eitt og annað honum viðvíkjandi, meðal annars sýndi hann þeim kirkjuna og rakti sögu hennar. Hún var nýlega viðgerð,Stækkuð og endurbætt, sett hafði verið á hana nýtt þak og hún hækkuð um leið. Einnig voru komnir nýir bekk bekkir með baki og þótti fólki það mesti munur. En sínum sérkennilega svip hélt kirkjan eftir sem áður, hlöðnum torf- og grjótveggjum, þykkum og traust- legum og djúpum, litlum gluggum. Stafngluggarnir voru stærri. Að innan var kirkjan timburklædd í hólf og gólf og var viðurinn mjög fallegur, allur í eðlilegum litum, en misjafnlega dökkur. Gólfið virtist hvítskúrað og var allt þamainni mjög snyrtilegt og hreint, en um hirðingu kirkjunnar sá fröken Valgerður að mestu leyti. Inni var sérkennilegur ilmur, angan af reyr og blómum sem fólk- inu féll mjög vel. — Það er systir mín, sem á heiðurinn af því að hér er alltaf eins og austurlenskur reykelsisilmur, sagði prestur- inn. — Hún er vel að sér í grasafræði. Fólkið í sveitinni vissi reyndar flest, að hún var vel að sér í ýmsu öðru, enda voru oft að vetrinum haldin nám- skeið í hinum og þessum kvenlegum fræðum, og bókleg- um greinum reyndar líka, og ótalin voru þau ungmenni, utansveitar og innan, sem fröken Valgerður og presturinn, bróðir hennar, höfðu kennt áður en haldið var að heiman til frekara skólanáms. Frú Herborg bauð fólki hressingu og átti hver að ná í sinn skammt og borða hann í baðstofu í þetta sinn, annars var siður að borða í eldhúsinu. Síðan var nýja fólkinu vísað á frambúðar svefnstað í baðstofunni og hvar það ætti að geyma föt sín og þess háttar. Rúmstæði hvers og eins var hans einkasæti og yfirráðasvæði nótt sem dag, og sannast að segja var þetta ágætt fyrirkomulag. Það skap- aði reglusemi og vissa félagskennd og fólkið kynntist bet- ur. Aðkomufólkinu þótti baðstofan óvenju hlýleg og heimilisleg og öllu þar haganlega fyrir komið. Sigurbjörn dáðist mest að því hvað hún var vel innréttuð. Hann hafði töluvert unnið við smíðar og hafði gott vit á mörgu á því sviði. Raunar hafði hann hug á að læra trésmíðaiðn, en forsjónin átti eftir að sjá fyrir því, að hann hefði öðru að sinna. Hann varð að komast af með þá hæfileika, sem hann fékk í vöggugjöf og notfæra sér það sem hann lærði af kunnáttumönnum í þessari grein. Það kom sér vel, að hann var að upplagi bráðvel gerður maður bæði til munns og handa, eins og oft er sagt. Baðstofan lá eftir endilöngu loftinu. Hvorki var að vísu hátt til lofts né vítt til veggja en allt mjög viðkunnanlegt. Sperrurnar í loftinu voru miklar og sterklegar, ívið dekkri en súðarborðin. Lárétta loftið, efst í miðjunni, var rúmur metri á breidd og var öll innréttingin úr vel hefluðum, kvistóttum viði og þótti mörgum gaman að athuga þær margbreytilegu myndir, sem hægt var að sjá í viðnum. Ekki bar öllum saman um það sem þeir sáu, ekki síst um vetrartíma, þegar lampaljós logaði, þá var sem myndirnar lifnuðu við og flöktu til og frá. Á sperrunum voru krókar til að hengja á smádót, sem fljótlega þurfti að grípa til. Hillur voru til hliðar yfir öllum rúmunum og voru þær til margra hluta nytsamlegar. Framan við rúmin voru „koffort“ undir föt og fleira. Stór skápur var í enda stofunnar, nær uppgöngu. Var hann sameiginleg geymsla handa fólkinu fyrir betri föt, skó og fleira. Hafði hver sinn snaga og hillu þar. Ofn var við vegginn gegnt þessum skáp og var hann upphitunin. Ofninn var sver, líkastur tunnu að sjá og var hringahólf að ofan fyrir pott, og var oft hitað kaffi þarna á kvöldin. Kaffið var ómissandi drykkur þá, engu síður en nú. Stór fornleg klukka var á veggnum i innri enda stof- unnar og sló hún á heilum og háifum tímum. Féll sumum illa þessi sífelldi klukkusláttur, en flestir vöndust því og hættu fljótlega að taka eftir hljóðinu. Hins vegar var ágætt að vita hvað tímanum leið. Nú sló klukkan tólf og fannst þá flestum best að fara að halla sér, því á morgun tæki alvaran við. Ranka og Dísa voru vanar baðstofulífi, eins og hitt fólkið, en þó voru þær hálf kímileitar, þegar þær fóru að tína af sér spjarirnar, eins og þær orðuðu það. En enginn gaf þeim gaum og þær stungu sér undir sængina án nokkurra athugasemda. Þær sváfu í næstöftustu rúmun- um, en tvíburamir hvor i sínu rúminu aftast. Þeir vildu alltaf sofa í baðstofunni, kunnu vel við það, ekki síður er þeir uxu úr grasi. Yfirleitt voru þeir Iíka Iátnir vinna með fólkinu og eitt látið yfir alla ganga, að minnsta kosti að sumrinu. Þá heyrðist riðið í hlað og voru umrædd systkini þar komin. Þau fóru með hestana í nátthagann og komu síðan sem fljótast inn til að heilsa fólkinu. — Komið þið nú sæl, sögðu þau einum rómi og gengu að rúmum kaupafólksins og réttu þeim hendina og buðu þau velkomin. Þau sögðu að þetta hefði verið góður og skemmtilegur dagur og allt gengi vel á Áshamri. Allir hefðu beðið að heilsa öllum. Síðan fóru þau að fá sér bita og hitta foreldra sína í hjónahúsinu. Innan stundar voru allir sofnaðir, nema kannske Dísa, en henni leið vel síðan hún létti á sálinni, og sofnuð var hún þegar tvíburarnir háttuðu. Þrúða horfði um stund á Dísu og Rönku sof- andi. — Snæbjörn, sagði hún. Finnst þér ekki Arndís, dökkhærða stúlkan, falleg? Hún hvíslaði þessu næstum að honum með lotningu í röddinni. — Sérðu bara augn- hárin, þau eru eins og svart kögur. Framh í næsta blaði. 142 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.