Heima er bezt - 01.06.1984, Side 9

Heima er bezt - 01.06.1984, Side 9
mjög gott að búa í Saltvík, en við vorum leiguliðar og fengum jörðina ekki keypta. Lentum líka í niðurskurðinum vegna mæðiveikinnar meðan við bjuggum þar. Foreldrar Teits voru farnir að heilsu þegar hér var komið sögu og enginn þriggja bræðra hans, sem voru lausir og liðugir, vildi taka við jörðinni. Og sökum þess að við áttum ekki kost á Saltvík, sem við hefðum þó eflaust keypt, ef unnt hefði verið, og vegna þess að Björn á Brún kom og bauð okkur jörðina, þá fluttum við nú hingað suðureftir. Gömlu hjónin bjuggu svo hér hjá okkur til dauðadags. Björn átti við erfiða vanheilsu að stríða á efri árum. — Þið eruð líka með fjölda ungbarna á sama tíma, er þetta ekki það sem kallast „þungt heimili“? — Ég veit það ekki, við vorum bæði heilsuhraust og unnum mikið, ekki síst Teitur, enda alltaf lagt áherslu á að vera efnalega sjálfstæð. Við höfum aldrei tekið víxil, en einu sinni tekið skyndilán. Þá vorum við nýflutt í Saltvík og áttum ekki útvarp. Á næsta bæ var þá verið að skipta um útvarp og bóndinn bauð okkur á góðum kjörum gamla útvarpið. Gömul kona sem þá bjó hjá okkur um tíma bauðst til að lána okkur peninga, því við áttum ekki fyrir því. Og þar með þáðum við eina skyndilánið sem við höf- um tekið um dagana. Hins vegar höfum við auðvitað eins og aðrir tekið lán út á byggingar og annað. Til gamans má geta þess, að af upphaflega 40 ára láninu sem tekið hafði verið til að reisa þetta íbúðarhús 194S var ársgreiðslan 1983 samtals níu krónur og fimmtíu aurar. Við höfðum líka tekið Frá vinstri: Helga Jósepsdóttir, Laugabrekku, Elín Aradóttir, Brún, og Málfríður Sigurðar- dóttir, Jaðri. Þœr voru saman í stjórn Kvenfélags Reyk- dœla. önnur lán hjá Stofnlánadeildinni og Búnaðarbankanum fyrir fjósi og fleiri framkvæmdum, og var hluti eins þeirra verðtryggður. Teitur var leiður á því að skuldin hækkaði ár frá ári og hafði á orði fyrir síðustu áramót, að það væri best að losa sig við þetta í einu lagi. Og það gerði hann, greiddi öll lán upp að fullu, svo við erum skuldlaus í dag. Refa- húsin og fleira sem fjölskyldan hefur byggt á seinni árum hefir verið framkvæmt án þess að taka lán. — Refir já, hafið þið fjölbreyttan bústofn núna? — Nei, þetta er nú lítið refabú, 40 fullorðin dýr og 230 hvolpar sem fjölskyldan á í félagi og til skamms tíma höfðum við 10 hænur, þangað til Ari sonur okkar, ráðu- nauturinn, útskýrði það rækilega fyrir mér, að það borgaði sig ekki. Við lögðum talsvert í aukna ræktun á sínum tíma, þótt hún sé að sumu leyti örðug hér, og fjölguðum kúnum, því að hér er betra að búa með kýr en sauðfé. Og íslenska þjóðfélagið hefur alltaf borgað betur fyrir afurðir kúnna en sauðkindanna og gerir það enn í dag. — Hvaða hugmyndir höfðuð þið um framtíð barnanna? — Við ætluðumst til að þau tækju landspróf, vissum að þau gætu það öll, en síðan réðu þau sjálf framhaldinu. Og þá vildum við stækka búið, svo þau gætu verið hér heima ef þau vildu. Yngsti sonur okkar vann t.d. heima öll sín sumur þar til hann fór að gegna læknisstörfum. Þetta var nú að nokkru leyti ástæðan fyrir því að við fórum út í svona mikinn búskap, milli 30 og 40 mjólkurkýr og um 200 fjár. Þannig var staðan þegar kvótinn kom. Síðan höfðum við líka haft 40 geldneyti í fjósi. En núna má ekki stækka búið og bændur eiga fárra kosta völ. Ari sonur okkar er mjög spenntur fyrir að koma upp einhverjum aukabúgreinum. Hann hefur farið utan tvær ferðir til að kynna sér loðdýrarækt. En ég held að það sé mikill sannleikur í því sem Teitur bóndi minn hefur sagt, að það ættu ekki aðrir að fara út í þessa loðdýrarækt en þeir sem hefðu sýnt, að þeir gætu búið. Loðdýraræktin er afar viðkvæm búgrein og þarf við hana natni og reglusemi. Við flytjum hingað 1951, og Teitur lendir í félagsmálum fljótlega upp úr því, nærri því strax í hreppsnefnd, svo í Samband norðlenskra kvenna var stofnaö að frumkvæði Halldóru Bjarnadóttur í júní 1914 og átti því 70 ára afmæli í júní 1984. Meðal málefna sem samhandið hefur látið til sín taka eru þessi: Náttúruvernd, umhverfismál, ullariðnaður, heimilisiðnaður, heimilisfræði, húsmæðraskólarnir, uppeldismál, neytendasamtök, jafnréttismál, bindindis- mál, fíkniefnaneysla, mál aldraðra, tryggingakerfið, heilbrigðisþjónusta, fjöl- miðlar, tannlækningar, garðrækt, rafvæðing, símamál og fleira og fleira. Innan sambandsins eru nú um 2500 félagskonur, en sambandið mynda öll kvenfélög á Norðurlandi. Elín Aradóttir hefur verið formaður þess frá 1976. Aðrar í stjórn eru: Sigríður Hafstað, Tjörn, Svarfaðardal, ritari og Guðbjörg Bjarnadóttir Revkjalín, Holtagötu 7, Akureyri, gjaldkeri. Elín Aradóttir og Sigríður Hafstað við kistu Halldóru Bjarnadóttur í Akureyr- arkirkju í desember 1981. Heima er bezt 189

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.