Heima er bezt - 01.06.1984, Blaðsíða 18

Heima er bezt - 01.06.1984, Blaðsíða 18
Faktorshúsið er nú betur þekkt sem Laxdalshús, (nefnt eftir Eggert Laxdal verslunarstjóra), og var endurbyggt á árunum 1978-1984. Þá hófust þar veitingarekstur og listsýningar. Til vinstri: Hvíta húsið til vinstri var faktorshús verslunar Fr. Gudmanns og því íbúðar- hús B. A. Steinckes, meðan hann var verslunarstjórinn. Það er raunar elsta hús Akureyrar, byggt 1795 og stendur enn. (Sjá litlu myndina). Svarta húsið hægra megin á myndinni er krambúðin. Takið eftir teinabrautinni hægra megin á myndinni og hve sjórinn nær langt upp. hafði í engu gleymt umhyggju sinni fyrir samborgurum sínum og bæjar- félaginu. Traust manna á honum og virðing sú, er hann naut þegar í hinni stuttu fyrri dvöl sinni á Akureyri, kom með- al annars fram í því, að honum voru fengin ýmis trúnaðarstörf. Þannig skipaði Pétur Hafstein amtmaður hann sáttanefndarmann hinn fyrsta á Akureyri, og fól honum einnig á hendur vörslu Amtsbókasafnsins. Svo er að sjá, sem mikið vinfengi hafi orðið með honum og Pétri amtmanni, sést það á bréfi, sem amtmaður ritaði Steincke í febrúar 1859, en hann sendi aftur til Steenstrups2 prófessors, af því að það snerti fjárkláðamaurinn, „sem um þœr mundir gerir svo mikið tjón á íslandiog um ráðstafanir þær, sem gerðar voru til að verjast honum bæði á Norður- og Suðurlandi. Það er þannig dýrafræðilegs efnis. — Það 2. Japetus Steenstrup (1813-1897) prófessor og einn kunnasti náttúru- fræðingur Dana í samtíð sinni. ís- lendingar þekkja hann sem ferða- félaga og vin Jónasar Hallgrímssonar. hefir því naumast verið að ófyrir- synju, að hann var kvaddur með þessum orðum í blaðinu Norðra: við brottför hans 1854: „Fáir hafa flust héðan, sem getið hafa sér svo góðs orðstírs sem hann, og eiga það skilið, að minningin um þá verði cetíð í heiðri höfð“. Næstu árin var Steincke á íslandi á hverju sumri, sem sjá má af bréfum hans til Steenstrups, sem niðjar hans geyma, og aðfangabókum Dýrasafns- ins í Kaupmannahöfn (sjá síðar). Hann var 1856 á Skagaströnd, 1858 á Húsavík, en Akureyri var þó senni- lega alltaf aðaláfangastaður hans. Árið 1860 settist hann að á Akur- eyri á ný, og þá sem verslunarstjóri Gudmanns verslunar, en þremur ár- um áður hafði Fr. Gudmann keypt verslunina af föður sínum J. Gud- mann, Sonur hans er Fr. Gudmann yfirréttarlögmaður, sem er kunnur skordýrafræðingur. Steincke dvaldist að þessu sinni 15 ár á Akureyri. Verslunin blómgaðist svo í höndum hans, að hún varð um langt skeið ein stærsta verslun landsins. Á þessum árum var það, sem hann kom mest við þróunarsögu Akureyrar, jafnt í menningar- sem atvinnumálum. Merkilegasta fyrirtækið, sem hann varð upphafsmaður að var stofnun vátryggingarfélags fyrir fiskiskip við Eyjafjörð, „Hið eyfirska skipaábyrgð- arfélag“, sem renndi mjög stoðum undir hákarlaveiðarnar, sem um skeið voru mikilvæg atvinnugrein við Eyja- fjörð. íslendingar höfðu að vísu veitt hákarl frá fornu fari einkum vegna lifrarinnar, en þeir hagnýttu einnig skrápinn og verkuðu fiskinn til matar. Fyrrum var hákarlinn veiddur inn- fjarðar, en síðar tóku menn að sækja hann á haf út í opnum bátum. En nokkru fyrir miðja s.l. öld tóku há- karlaveiðarnar miklum framförum, er farið var að veiða hákarlinn af þil- skipum á fjarlægum djúpmiðum, þar sem miklu meira var um hann en nær landi, sem hinir opnu bátar gátu farið. Framfarir þessar urðu einkum með skjótum hætti við Eyjafjörð. Útgerð þessi krafðist fjár, og það reyndist mörgum erfitt að afla þess. En hér kom Steincke til sögunnar. Hann lét smíða ný skip og gera við önnur eldri á vegum verslunarinnar. 198 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.