Heima er bezt - 01.06.1984, Blaðsíða 39
Frá miðborg Búk-
arest. Fegurð
hennar og gott
skipulag vakti
undrun og aðdáun
ferðalanganna.
el, í deilu þeirra og stríði við Araba í
júní 1967.
Annað kunnugt dæmi er það, að
þegar Rússar réðust inn í
Tékkóslóvakíu í ágúst 1968, voru Rú-
menar því algjörlega andvígir og
stóðu eindregið með Tékkum í neyð
þeirra.
En ég hef það líka fyrir satt, að það
hafi stundum stappað nærri því, að
rússneski björninn léti skína í tenn-
urnar, — léti sjá sig í landinu, grár
fyrir járnum, þó að það hafi að vísu
ekki orðið enn. En — svo sem dæmin
sýna, — má búast við ýmsu úr þeirri
áttinni.
Með öðrum orðum: Rúmenar láta
þó ekki Rússa segja sér alveg fyrir
verkum, eins og sumir aðrir, og eru
það óneitanlega meðmæli með stjórn
þeirra.
Þjóðþingið, (The Grand National
Assembly), er kosið á fjögurra ára
fresti og eru þingmenn 465 að tölu.
Langflestir, — mikill meiri hluti, —
tilheyrir kommúnistaflokknum, enda
ræður hann öllu í landinu, svo sem
fyrr segir.
Að svo mæltu læt ég þessa fróð-
leiksmola nægja um land og þjóð, þó
að margt fleira væri að sjálfsögðu
hægt að tína til, og sný mér að ferðinni
sjálfri. Byggi ég frásögn mína í stórum
dráttum á dagbókarpunktum.
Til Búkarest komum við um
klukkan 12 á miðnætti, eftir þriggja og
hálfrar klukkustundar flug frá
K.höfn, og til hótelsins, þar sem við
dvöldum, um það bil klukkustundu
síðar. Voru þá flestir harla fegnir að
geta gengið til hvílu eftir langan dag._
Dagana 7.-9. apríl dvöldum við í
Búkarest á mjög stóru og íburðar-
miklu hóteli, sem heitir Athenee Pal-
ace.
Fyrsta daginn, sunnudaginn 7.
apríl, var okkur ekið í langa skoðun-
arferð um borgina og margir merkir
staðir kynntir. Það vekur mikla at-
hygli ferðamanns, hve borgin er vel
skipulögð á stórum svæðum, hreinleg,
fagrar byggingar, breiðar götur og
stórir og glæsilegir almenningsgarðar
með hinum fegursta trjáa- og blóma-
gróðri. Var þetta bæði ánægjuleg og
reynslurík ferð.
Síðdegis skoðuðum við fagran og
íburðarmikinn skemmtigarð og nut-
um þess í ríkum mæli, enda sólskin og
logn, en þó ekki hlýrra en oft heima á
fögrum vordegi. Feikilegur mann-
fjöldi var í garðinum, flest myndarlegt
og velbúið fólk og allt einkar kurteist
og háttprútt. Margir unglingar og ást-
fangin ungmenni reru í litlum lysti-
bátum um fagurt stöðuvatn, sem
þarna var. En þungur blær fannst mér
yfir þessu fólki í þessum fagra garði,
og hvergi heyrðust þar léttir hlátrar.
Ölvaðir menn sáust aldrei á leið okkar
allan þennan vorbjarta helgidag, og
vakti það m.a. mikla athygli mína.
Er við höfðum notið þess lengi að
ganga um garðinn, héldum við sum til
aðal listasafns borgarinnar, sem er
skammt frá hóteli okkar, en aðrir
dvöldu lengur í skemmtigarðinum.
Við, sem fórum í listasafnið, undum
þar lengi, a.m.k. þrjá klukkutíma,
enda er hér um frábærlega fullkomið
og vandað safn að ræða. Ég hef séð
mörg söfn á ferðum mínum erlendis,
en hvergi betri og vandaðri aðbúnað.
Safnhúsið er afar stór og vönduð
bygging á fjórum hæðum, og er þar að
finna geysilegan fjölda frábærra list-
muna og listaverka. Væri frásögn af
því einu efni í langan fyrirlestur.
Dagana 8. og 9. apríl skoðuðum við
ýmsa aðra merka staði í borginni,
ýmist með leiðsögn eða á eigin spýtur.
Töluverðum tíma var að sjálfsögðu
varið til að líta í búðir, eins og venja er
í slíkum ferðalögum, og ýmsir keyptu
sitt af hverju.
Verðlag er yfirleitt miklu lægra í
þessu landi en hjá okkur, og margar
söluvörur ágætar af ýmsu tagi. Er því
auðvelt að gera þarna góð kaup fyrir
þá, sem gjaldeyri hafa, og þess þurfa.
Versla má bæði fyrir innlenda mynt,
sem heitir lei, og fyrir dollara, sem
virðast mjög vel þegnir.
1 lei var rúmar 6 íslenskar krónur
vorið 1974(1 lei = 100 bani.)
Síðara kvöldið og það síðasta, sem
við dvöldum í Búkarest fórum við öll í
hringleikahús (sirkus) og sáum þar
langa, fjölþætta og eftirminnilega
sýningu. Sýningahöllin er nýbyggð,
aðeins fárra ára gömul, og mjög stór
og glæsileg bygging.
Veður var fremur leiðinlegt þann 8.
apríl, þungbúið loft og töluverð úr-
koma allan fyrri partinn, en þann 9.
var besta veður, logn og léttskýjað og
stundum glaða sólskin. En þótt
furðulegt væri, var aldrei hlýrra þessa
daga, svo langt suður í Evrópu, en á
björtum apríldegi heima á Fróni.
Svo sem kunnugt er, er Búkarest
höfuðborg Rúmeníu og jafnframt
langstærsta borgin í því landi. íbúar
hennar eru nú rétt um ein og hálf
milljón.
Það, sem hlýtur að vekja strax at-
hygli allra ferðamanna er, hve borgin
er vel skipulögð og fallega byggð, með
breiðum strætum og glæsilegum
byggingum mjög víða, í gömlum og
Heima er bezt 219