Heima er bezt - 01.06.1984, Blaðsíða 49

Heima er bezt - 01.06.1984, Blaðsíða 49
Umsagnir um bækur Gleðigjafi söngelskra Sigurður Þórarinsson: BELLMANIANA. Rvík 1983. ísafold. Hver þekkir ekki lagið og vísuna um Gamla Nóa? Líklega hefir það um langan aldur verið eitthvert fyrsta sönglagið, sem börn og unglingar hér lærðu. Hitt hefir naumast verið jafnkunnugt, að höfundur- inn var sænska skáldið Bellman, sem uppi var á 18. öld. Og Gamli Nói er ekki eina söngvísan, sem kunnug hefir orðið eftir hann á íslensku, og lögin þó fleiri, sem íslensk skáld hafa ort við gleði og drykkjukvæði. Einkum nutu ljóð og lög hans vinsælda á öldinni sem leið, allt frá Borðsálmi Jónasar Hallgrímssonar og fram undir aldamótin. Síðan hefir fátt bæst við fyrr en nú. Iðnastir voru þeir að kynna hann Kristján Jónsson og Hannes Hafstein, sem bæði þýddu nokkur af ljóðum Bellmans og ortu undir lögum hans. Bók sú, sem hér er gerð að umtals- efni, er unnin af Sigurði Þórarinssyni jarðfræðingi, og mun vera eitt hið síðasta, sem hann lagði hönd að, og entist honum ekki aldur til að ganga frá ritinu til fulls, og hefir Árni Sigurjónsson annast útgáf- una. Fyrst skrifar Sigurður alllanga greinargerð um skáldið og umhverfi hans, og er þar meðal annars rakið hið helsta, sem kunnugt er um Bellmans ljóð og lög hér á landi, þó að ætla megi eins og höf- undur segir, að ekki komi öll kurl til graf- ar. Þá eru prentaðar nokkrar eldri þýð- ingar á Bellmansljóðum og síðan all- margar þýðingar Sigurðar sjálfs, gerðar af hinum mesta hagleik. Nótur eru prentaðar með. Þess er að vænta að þessi litla, snotra bók endurveki minninguna og vinsældir Bellmans, því að margt er það nú í seinni tíð, sem skyggir á hann. En vonandi er, að Bellman megi enn um langan aldur verða gleðigjafi meðal söngelskra íslendinga. Því ber að fagna þessari útgáfu. Nærfærin tök á viðkvæmu efni Steingrímur St. Th. Sigurðsson: ELLEFU LÍF. Rvík 1983. örn og örlygur. Hér skrifar Steingrímur um lífshlaup Brynhildar Georgíu Björnsson, konu, sem átt hefir svo furðulegan lífsferil, að ótrú- legt má þykja að nokkur Islendingur eigi slíkan eða líkan, gegnum gleði og þrautir, vonir og ótta, örvilnan og ástir. Svo við- burðarík er sagan að nafnið Ellefu líf er raunveruleiki en engar ýkjur. Brynhildur segir hispurslaust frá í fullri einlægni, og Steingrímur skráir frásögn hennar af skilningi og hófsemd. Þegar ég fékk bók- ina í hendur óttaðist ég, að ritfimi hans og frásagnargleði myndi ef til vill fá hann til að ýkja og upphefja. En fjarri fer því. Hann fer nærfærnum höndum um við- kvæmt efni, en raunar fær lesandinn á tilfinninguna að frekar sé vansagt en of- sagt, þótt sagan sé æfintýraleg. Mér er tjáð, að bókin hafi fengið góðar viðtökur, og hún á það skilið. Á breiðari grundvelli Tómas Þór Tómasson: HEIMSSTYRJALDARÁRIN Á ÍSLANDI 1939-1945 Fyrra bindi. Rvík 1983. örn og örlygur. Ungur sagnfræðingur sendir hér frá sér fyrra bindi af sögu íslands á heims- styrjaldarárunum, og nær það yfir árin 1939-1942, enda þótt síðari tímamörkin séu ekki glöggt mörkuð. Margt hefir þegar verið ritað um þetta tímabil, en í öllum þeim ritum hefir styrjöldin, og þá einkum hernámið og allt, sem því fylgdi verið að- alefnið. Hér er sagan rakin á miklu breið- ari grundvelli, það er í rauninni þjóðar- sagan öll, sem tekin verður til meðferðar í verkinu, stjórnarmyndanir og stjórnmála- makk og erjur, atvinnu- og þjóðhagsmál. Verkalýðsmál og vinnudeilur hljóta mikið rúm, og fleira mætti nefna. En vitanlega verður styrjöldin og hernámið þunga- miðja bókarinnar. Inn í hina beinu frá- sögn er fléttað ýmsum sjálfstæðum grein- um, bæði eftir bókarhöfund og aðra, einkum þó blaðagreinum, þar sem fjallað er um einstök efnisatriði á sérstakan hátt, án þess að falla beint inn í heildarfrá- sögnina, og eru þar meðal annars rakin ýmis skemmtileg atvik, sem sögur fóru af. Sagan er ljóst og lipurt rituð, skemmtileg upprifjun liðinna atburða fyrir þá sem lifðu þenna tíma og margvíslegur fróð- leikur fyrir hina yngri. Mikill fjöldi mynda prýðir bókina og frágangur allur með nýtískusniði. Þess er getið í formála, að þetta sé einungis eitt rit í fyrirhuguðum flokki bóka um sögu landsins frá 1916 til 1980, sem útgefandinn hafi þegar gert áætlanir um. Munu margir hlakka til að fá þær bækur í hendur og þá ekki síst síðari hluta þessa rits, sem fjallar um lýðveldis- stofnunina, stríðslokin og það sem því fylgdi. Laðar lesandann til sín Kristján Karlsson: NEW YORK. Rvfk 1983. Almenna bókafélagið. Einhverntíma hefði það þótt tíðindum sæta, að íslenskt ljóðskáld yrkti heila bók um New York. Að vísu hafa ýmis góð- skáld tekið sér yrkisefni um erlenda staði en raunar alltaf gefið einhverja mynd af þeim í ljóðinu, þótt ekki væri um þurra lýsingu að ræða. En Kristján Karlsson fer ekki þá leið. Lesandinn er jafnófróður um New York eftir sem áður. Hann velur sér tilteknar mannlífsmyndir og segir víðast langa örlagasögu í fáum meitluðum setn- ingum. Ég vil ekki segja hendingum, því að rímið er laust, þótt hann noti stuðla og höfuðstafi á réttan hátt. Ég er ekki viss um að menn njóti kvæðanna vegna þess hve heimur þeirra er þeim framandi, og er það miður, því að höfundur segir margt vel og spaklega, en umfram allt er öll bókin með hugnæmum blæ, sem laðar lesandann til sín, þó að hann ef til vill fylgi skáldinu ekki alltaf eftir. Svo var að minnsta kosti um mig. Heima er bezt 229

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.