Heima er bezt - 01.06.1984, Qupperneq 31

Heima er bezt - 01.06.1984, Qupperneq 31
Til þess að færa nú meiri líkur fyrir þeim skoðunum mínum, sem fram komu hér á undan, þá ætla ég enn að tilfæra tvær frásagnir, sem nútíma sjáendur hafa sjálfir látið mér í té. SÝNIR MATTHÍASAR Við Þorsteinn Guðjónsson áttum eitt sinn tal við mann ættaðan frá Hellis- sandi, að nafni Matthías. Sagði hann okkur margt athyglisvert af sýnum sínum, sem flestar voru í vökuástandi. Samkvæmt skilningi mínum má rekja þær flestar til sambanda við verur á öðrum hnöttum. Mjög mikið og náið samband sagðist Matthías hafa haft við huldu- fólk, að því hann ætlar. Huldumeyjar sagði hann hafa komið upp í rúm til sín og samrekkt sér, og hafi þær verið fullkomlega raunverulegar viðkomu eða mennskar. Sagði hann, að þetta hafi oftast gerst, er hann var háttaður en ekki að fullu sofnaður, að því hann telur og bendir þetta til mjög náinnar samskynjunar við einhvern annan, sem raunverulega hefir fengið konu í rúm til sín. Stundum sagðist Matthías hafa séð eins og tvöfalt landslag, þegar hann var úti staddur, og er það sérstaklega eftirtektarvert. Sagðist hann þannig hafa séð fjöllin og annað landslag þarna á Snæfellsnesinu, ásamt því að annað landslag og honum ókunnugt hafi borið fyrir hann, og taldi hann það vera álfaheim. Liggur mjög ljóst fyrir, að þarna er um að ræða lands- lag, sem fjarlægur sýngjafi hefir verið að horfa á, en vegna þess, að Matthías er vakandi að nokkru, sér hann einnig umhverfi sitt, en þó nokkru óljósar en venjulega. Hefði hann lokað augum, mundi hann aðeins hafa séð sam- bandssýnir og þá ef til vill skýrar en ella. Tröll taldi Matthías sig hafa séð og talað við nokkrum sinnum. Var það einkum upp við kletta nokkra í ná- grenni Hellissands. Sagði hann þau vera 4 til 5 álnir að hæð eða um 3 metra, og voru þau afar fallegt fólk, vel vaxið, bjart yfirlitum og norrænt á svip. Eitt sinn, er hann var á leið heim til sín frá þessum klettum, segir hann að slegist hafi í fylgd með sér tröll- kona ærið há og mikil, en fagurvaxin og fríð ásýndum. Gekk hún á hlið við hann mikinn hluta leiðarinnar og tal- aði eitthvað án þess þó hann greindi orðaskil. Þetta var um kvöld og niða- myrkur, en þó gat hann séð stúlku þessa svo vel sem um hábjartan dag, og lýsti hann fyrir okkur klæðnaði hennar og öðru útliti. Er þar enn ein sönnun þess að hér hafi verið um fjarskynjun að ræða, og er ekki um að villast, að það fjarsamband hefir þá verið við íbúa annars hnattar. Slíkt fólk sem þetta er ekki tii á þessari jörð, ekki svo gjörvulegt og varla svo frítt. Þá sagði Matthías okkur frá því, að eitt sinn, er hann var staddur uppi á fjalli einu nálægt Hellissandi, sá hann hjört, en slíkt dýr hafði hann ekki áð- ur séð, nema á mynd. Sá hann hjört þennan nærri sér, og var hann fagur á að líta og hafði gullhorn, að honum virtist, og hefir þar auðvitað ekki verið um að ræða neitt dýr á Snæfellsnesi. Eitt sinn sagðist Matthías hafa farið gangandi alllanga ferð frá Hellissandi út á nesið. Lagði hann af stað undir kvöld, en kom heim aftur síðari hluta leiðarinnar heim bar svo undarlega til, að hann sá sól allhátt yfir sjávar- fletinum, og virtist honum hún standa þar kyrr. Virtist honum sól þessi í líkri hæð og sól hafði verið um það leyti, sem hann lagði af stað í ferðina heiman frá sér. Þótti honum undar- legt, að sólin hefði staðið þarna kyrr allan tímann, sem hann var í ferðinni, líklega um 8 klukkustundir. Því tók Matthías eftir, að sólin var að þessu sinni miklu rauðari en venjulega, og er það í góðu samræmi við, að þarna hafi raunverulega verið um að ræða sýn frá jarðstjörnu með bundinn möndulsnúning og fylgjandi rauðri sól. Annars minnir þetta nokkuð á frá- sögn Jósúabókar af því, er sólin beið heilan dag, meðan ísraelsmenn háðu orrustu við óvini sína, og er líklegt, að sú saga sé að einhverju leyti tilorðin fyrir slíkt samband sem þetta. Vegna samstillingar hermannanna undir stjórn Jósúa er vel hugsanlegt, að skapast hafi samband við skylda en lengra komna íbúa annars hnattar, og að það samband hafi gert ísraels- mönnum sigurinn auðunnari um leið og það gaf þeim sýn til sólar á líkan hátt og Matthías hlaut þarna á heim- leið sinni. Vegna þess, að hin hugséða eða fjarskynjaða sól fyllti svo mjög skynj- un og huga Matthíasar, tók hann ekki eftir hvarfi þeirrar, sem þessari jörð lýsir og hann áður hafði séð eigin augum. Og meðan á orrustunni stóð, er hugsanlegt, að ísraelsmönnum hafi farið eitthvað líkt. *Öldulengd: Röðin er háð öldulengd Ijósgeislanna: rauðir geislar hafa lengsta öldulengd, en bláir skemmsta. Litrófið nœr yfir hinn sýnilega hluta rafrófsins, sem er miklu umfangsmeira. Rafróf: safn allra tegunda af raföldum, raðað eftir tíðni eða bylgjulengd í eina samfellu. Minnsta tíðni hafa útvarps- bylgjur, síðan koma Ijósbylgjur, en mesta tíðni hafa háorkubylgjur (rönt- gengeislar og gammageislar). (Úr Stjörnufræði og rúmfræði eftir Þorstein Sæmundsson). Heimaerbezt 211

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.