Heima er bezt - 01.06.1984, Qupperneq 34

Heima er bezt - 01.06.1984, Qupperneq 34
ÞÓRIR FRIÐGEIRSSON, Landamótsseli: Fyrsta kaupstaðarferðin min Fyrsta kaupstaðarferðin á öðrum áratug aldarinnar — hún var á við fyrstu ut- anlandsferðina hjá börn- um nútímans. Fjölskylda Þóris bjó í Landamótsseli í Kinn, S.-Þing., á þessum tíma, en fluttist síðar að Þóroddsstöðum. Þórir býr nú á Húsavík. Það er birta og kímni yfir þessari bernskuminningu hans. Þá var hann loksins runninn upp hinn langþráði dagur, sem ég hafði hlakk- að svo mikið til síðan ákveðið var að ég skyldi fá að fara í kaupstaðinn með pabba, þegar hann færi ullarferðina til Akureyrar. Ég vaknaði fyrir allar aldir morguninn þann og hafði enga lyst á morgunmatnum fyrir ferða- hrolli. Ullarferðina fór pabbi í félagi við Árna bróður sinn, bónda á Finns- stöðum, og hafði hvor þeirra tvo hesta undir ullarklyfjum. Vel gaf okkur ferðaveðrið, lognblíð hlýindi og nokkurt sólfar. Fyrsti hluti leiðarinnar var mér velkunnur, eða inn fyrir Stórutjarnir í Ljósavatns- skarði, þangað höfðum við Einar bróðir minn gengið undanfarin haust með mömmu í kynnisferð til frænd- fólksins. Nú var svipur Skarðsins allur annar en verið hafði á þeim haust- dögum, birkiskógurinn í Krosshlíð var nú búinn sínu grænasta skarti. Hvergi gáraðist flötur Ljósavatnsins og hvassbrýnd fjöllin sunnan Skarðs- ins spegluðust svo skýrt í vatnsfletin- um, að naumast varð greint hvað var vatn og hvað var land. Þegar lengra kom inn í Ljósavatnsskarðið var ég að kanna ókunna stigu. Fagrar voru iðjagrænar skógarhlíðarnar á hægri hönd með gneipum klettabrúnum, sem bar við bláa heiðríkjuna. Og ris- mikill virtist mér Hálshnjúkur, þar sem hann gnæfði við himin á vinstri hönd. Það þótti mér með miklum ólíkindum, þegar pabbi sagði mér, að ofan af hnjúknum hefði Ólafur Bjarnason frá Krókum brunað á skíðum og staðið alla brekkuna. Slíkt fannst mér ganga göldrum næst. Sporadrjúgir voru Hálsmelarnir, samt vannst sú leið þó hægt væri farið, aðeins fót fyrir fót. Þegar melunum hallaði niður til Fnjóskár opnaðist sýn suður Fnjóskadalinn og hið næsta austan árinnar blasti Vaglaskógur við, en niðri í árgilinu gat að líta það feg- ursta og mesta mannvirki, er ég þá hafði augum Iitið: steinbogabrúna á Fnjóská. I orðvana undrun og aðdá- un starði ég á brúna, þessi stóri og glæsilegi steinbogi svo sem sveif þarna í loftinu og virtist þyngdarlög- málið verða að engu. Þegar við komum niður að brúar- sporðinum lét Árni frændi þau orð falla, að raunar vildi hann nú helzt alltaf ganga yfir þessa brú, þó sat hann á hesti sínum yfir hana í þetta sinn. Og nú lögðum við á brattann. bratta Vaðlaheiðar. Það marraði í sil- unum á ullarklyfjunum, þegar klár- arnir strituðu upp brekkuna og þeir svitnuðu undir burðinum. Vaðlaheið- in fannst mér löng og leið, gróðurinn var allur annar og fáskrúðugri en ég hafði séð á Fljótsheiðinni. En útsýn af heiðinni bæði suður til afdala Fnjóskadals, sem blánuðu í fjarlægð- inni, og norður til Flateyjardalsheið- arinnar var stórfenglega fögur og heillandi. Þegar við tókum að nálgast vestur- brún heiðarinnar komu hæstu tindar í fjallgarðinum vestan Eyjafjarðar í ljós, smátt og smátt reis fjallgarðurinn upp fyrir heiðarbrúnina. Öll voru þau fjöll miklu hvassbrýndari og hrika- legri, en þingeysku heiðarnar þar sem þau blánuðu í fjarskanum með fannir í skálum og á tindum. Og nú sá niður í Eyjafjörðinn bláskyggðan þar sem Hrísey svam í miðjum firði. Þarna handan fjarðarins var fyrirheitna landið, sjálf draumaborgin Akureyri. Ógnarlegur fjöldi húsa virtist mér þar samanhnepptur á litlum bletti, og víst var gaman að virða kaupstaðinn fyrir sér þarna af heiðarbrúninni. Hvað mundi þá verða er inn í bæinn kæmi? Áfram bar ferð okkar, og var nú létt- ara fyrir fæti hestanna niður Bröttu- brekku og heiðarhöllin niður að Varðgjá. Þangað fórum við heim og föluðu þeir bræður, pabbi og Árni, ferju þaðan vestur yfir fjörðinn. Á leiðinni frá Varðgjá brekkuspöl niður að fjörunni sá ég í fyrsta sinn þrílita fjólu, sem greri þar í flekkjum í mólendinu. Ég varð sem bergnuminn i-af fegurð blómsins og þótti mér þá sem ég hefði ekkert jafn fagurt blóm augum litið. í fjörunni voru ullarklyfjarnar ofan teknar, reiðingum og hnökkum sprett af hestunum, sem urðu frelsinu fegnir, veltu sér í sandinum, risu á fætur hristu sig og frísuðu, en gripu síðan með góðri lyst í vallendisgróðurinn ofan fjöruborðsins. Þeir voru síðan faldir umsjá Varðgjármanna. Nú var báti hrundið á flot, ullin borin um borð og við þremenning- arnir klöngruðumst upp í bátinn, en ferjumaðurinn ýtti frá landi. Þetta var í fyrsta skipti, sem ég flaut á fjöl og því alveg ný reynsla fyrir mig, ofurlítið kitlandi tilfinning og ekki með öllu laus við ótta fór um mig, þegar bátur- inn valt, sem þó var smávægilegt, því sama blíðan var á og verið hafði allan daginn, sjór spegilsléttur. Bátsferðin tók skamma stund, lent var við Höepfnersbryggju því ull sína ætluðu bræðurnir að leggja inn í reikning hjá Höepfnersverzlun. Ullarpokunum var skotið upp á bryggjuna og ég klifraði á eftir. Jæja, þá var ég stiginn á land í þeim mikla stað Akureyri. Hvað mundi nú Akureyri svo hafa að sýna af lystisemdum og merkilegum hlutum? 214 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.