Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1988, Side 5

Heima er bezt - 01.07.1988, Side 5
Ljót er þessi Látraströnd, leiti, hólar, skriður, þar sem kletta bröttu bönd beljar særinn viður. Faðir minn var alis ekki sáttur við þessa kuldalegu mynd, sem skáldkonan hafði forðum dregið upp af heimabyggð hans og þess vegna orti hann eftirfarandi vísu: Ljót þó þyki Látraströnd og löður kletta viður, drótt þar styður Drottins hönd, dáðríki og friður. Þorsieinn Gíslason bóndi á Svínárnesi ogAnna Jóakimsdóttir, for- eldrar Jóhanns. II Foreldrar mínir Nú eru liðin meira en 93 ár síðan ég fæddist þar, á Svínárnesi. Það var þann 21. janúar 1895. Ég ólst þar upp og varð þar síðar bóndi. Móðir mín, Anna Jónína Jóa- kimsdóttir, var fædd og uppalin í Fjörðum. Faðir hennar var Jóakim Jóakimsson bóndi á Kussungsstöðum í Flval- vatnsfirði. Þeir feðgar, Jóakimar tveir, bjuggu þar hvor fram af öðrum frá árinu 1835 ti! 1875. Á Kussungsstöðum er einkar frítt útsýni m.a. til tveggja grösugra dala og yfir rís tindurinn Darri. Þarna var oft stærst bú í Fjörðum og eins og þú manst orti Látra-Björg: Fagurt er í Fjörðum, þá frelsarinn gefur veðrið blítt, hey er grænt í görðum, grös og heilagfiski nýtt. Móðir mín og Guðlaugur bróðir hennar, sem bóndi var á Bárðartjörn, kunnu góð skil á staðháttum og mannlífi þessa sérstæða byggðarlags við nyrsta haf þar sem andstæður sumars og vetrar voru oft í samræmi við vísu Bjargar, sem endar svo: En þá vetur að þeim tekur sveigja, stað ég engan verri veit um veraldar reit, menn og dýr þar deyja. Og þó lýstu þau afleiðingum vetrar aldrei með svo sterkum orðum, enda lifðu þau þar betri tíma. Og ég átti eftir að kynnast Fjörðum eins og síðar mun að vikið. Faðir minn, Þorsteinn Gíslason, var fæddur á Svínárnesi 1866 og tók þar við búi eftir móður sína, þegar ég var eins árs 1896, og bjó þar til 1920, er ég tók við jörðinni, en hann andaðist árið 1924. Faðir hans hét Gísli Jónasson og var fæddur í Hvammi í Höfðahverfi árið 1839 og ólst þar upp. Hann lærði skipasmíðar í Kaupmannahöfn og fékkst við húsa- og kirkjubyggingar og skipasmíði. Smíðaði hann eitt af fyrstu þilskipum við Eyjafjörð, hákarlaskipið Úlf. Gísli afi minn hóf búskap á Svínárnesi árið 1865. Kona hans hét Rakel Jóhanna Jóhannsdóttir, dóttir Jóhanns bónda Kröyers á Munkaþverá. III Bæjaröðin utan frá Látrum inn að Grenivík — Ef við stöldrum aðeins við og svipumst um á Látra- strönd, Jóhann, hvað voru þá margir bæir í byggð á bernskudögum þínum? — Já, við skulum rifja það upp og byrja þá nyrst. Þar eru Látur, sem var landmikil jörð og eins og ríki fyrir sig og einangrað að landvegum. Þeir sem lesið hafa Virka daga, ævisögu Sæmundar Sæmundssonar eftir Hagaljn, ættu að þekkja nokkuð til staðarins. Þarna var forðum eitt af höf- uðsetrum útgerðar hér við Eyjafjörð. Nei, það var ekki auðvelt að komast þangað á landi, þvi skammt norðan við Grímsnes, sem er næsti bær innar á ströndinni. ganga miklir klettar í sjó fram og er leiðin undir þeim ófær, nema þegar lágsjávað er og brimlaust. Leið fyrir hesta út að Látrum er um svonefndar Látrakleifar, sem eru a.m.k. fjögur hundruð metra yfir sjó þarna uppi í fjallinu og síðan þurfti að halda niður Eilífsdal og þá tekur við allbreitt undirlendi með sjónum. Á því miðju stendur bærinn á Gísli Jónasson, föðurafi Jóhanns, og kona hans Rakel Jóhanna Jóhannsdóttir (hún nefndi sig aldrei Kröyer). Heimaerbezt 221

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.