Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1988, Blaðsíða 21

Heima er bezt - 01.07.1988, Blaðsíða 21
SIGRÍÐUR SCHIÖTH: Liðin tíð í Laufássókn Sitthvað um álfaslóðir, álagabletti, náttúruhamfarir og félagsleg samskipti mannfólksins Trú almennings á að huldufólk sé til, virðist enn lifa góðu lífi á íslandi. Lætur nærri að í hverri sveit séu stað- ir, þar sem talið er að huldufólk eigi sín heimili og er þar víðast hvar mikla bannhelgi að finna. Bannhelgi þessi felst í því, að á þessum stöðum má engu breyta, ekkert hreyfa eða færa úr stað. Oftast eru þetta einkennilegir steinar, klettar eða grasblettir, sem ekki má slá, en trú fólksins á álög þessi gengur frá kynslóð til kynslóðar. Illa átti að fara fyrir þeim, sem óhlýðnuð- ust þessu banni og vildu fæstir verða fyrir óhamingju af völdum þeirra dularafla, sem talið var að þarna væru að verki. Fyrir dálitlu síðan kom í hug mér staður nokkur í heimasveit minni, Höfðahverfi, þar sem gömul munn- mæli hermdu, að huldufólk hefði að- setur sitt. í Laufássókn í Grýtubakka- hreppi er jörð sú, er Borgargerði heitir. Bærinn stendur á hól og mjög brött brekka niður að Fnjóská, en á þessum bæ var ferjustaður fyrrum, áður en brú var byggð yfir ána niður undan Pálsgerði 1931-32. Nú býr enginn í Borgargerði, en jörðin er í eigu bónd- ans í Ártúni. Þegar ég var að alast upp á Lómatjörn, voru fjórir bæir í röð þarna í Dalsmynninu, sem einu nafni nefndust „Gerðin“, Borgargerði, Miðgerði, Pálsgerði og Litlagerði, þar sem fjöldi manns átti sín góðu heimili. Nú býr þar enginn, en jarðirnar eru nytjaðar af öðrum. Dalsmynnið er mjög þröngt, landinu hallar allt niður að Fnjóská, en fjallið ofan við snar- bratt. Er þar hætt við skriðuföllum og mörgum Höfðhverfingum er í fersku minni, er snjóflóð féll á bæinn Mið- gerði 1947 í mars og fólkið yfirgaf jörðina um vorið. Flutti það til Akur- eyrar og hefur enginn átt heima í Miðgerði síðan. Staðurinn, sem ég ætla að gera að umtalsefni, er í landi Borgargerðis. Eru það klettaborgir nokkrar ofan al- faravegar, sem liggja í fallegri röð, hækka til norðurs og snúa aðeins móti norðvestri. Sem barn furðaði ég mig á því, að út úr þessum klettum uxu þrjár birki- hríslur eða runnar með dálitlu milli- bili. Þær héngu þarna framaní snar- bröttum klettunum og lítil vaxtarskil- yrði sýndist flestum að vera myndi þarna að finna. Sú trú var þarna í sveitinni, að huldufólk ætti heima í klettunum og hríslurnar væru þeirra eign og þær mætti enginn maður snerta. Heyrði ég fullorðnar konur biðja Guð fyrir unglingum, sem ekki voru trúaðir á bannhelgi þessa og höfðu vogað sér nálægt hríslunum, fyrir forvitnis sakir. Klettaborgirnar ofan við Borgargerði. —Álfahríslurnar. Heima er bezt 237

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.