Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1988, Blaðsíða 9

Heima er bezt - 01.07.1988, Blaðsíða 9
deildir á sínu svæði, þ.e. í vestanverðri Þingeyjarsýslu. Ég man meira að segja eftir því, að faðir minn var deildarstjóri einhvern tíma. Hins vegar var ég kominn undir fermingu, þegar Guðlaugur móðurbróðir minn á Bárðartjörn var deildarstjóri K.S.Þ. í Höfðahverfi. Hann skrifaði heldur óhrjálega hönd, og mun ég þá hafa skrifað betur. Þess vegna lánaði pabbi mig til þess að skrifa það, sem við kölluðum skiptiskýrslu. Bændur pöntuðu þá svo og svo marga sekki af hinu og þessu, kornmat, hveiti, sykri o.fl. Ef eitthvað vantaði nú upp á, hörgull var á gjaldmiðli og því ekki hægt að kaupa eins mikið og pantað hafði verið, vegna þess að gjaldeyrisloforðin vantaði, þá dró aðalpönt- unarstjórinn úr úttektinni. Þetta var nokkurs konar kvóta- kerfi. Og þá varð deildarstjórinn í hverri deild, og þar á meðal Höfðahverfisdeild, að skipta upp — varð að draga úr hjá öllum hlutfallslega. Eftir þessari skiptisskýrslu var síðan afhent aftur. Hún var send inneftir til kaupfélags- stjórans á Svalbarðseyri, sem þá hefur iíklega verið Helgi gamli Laxdal í Tungu. Mér er a.m.k. í barnsminni, að hann kom hingað út eftir. Minnir mig að þá hafi verið einhver flosnun í félaginu. Helgi var að vísu hættur framkvæmda- stjórastörfum þá og kom nú á vegum einhverra lánar- drottna og pabbi var þá eitthvað að malda í móinn vegna kröfugerðar þeirra. Mótmælti hann m.a. út af vöruslatta, sem hafði verið eitthvað skemmdur, þegar hann barst út eftir. Hvorugur vildi láta sig og voru þeir satt að segja ekkert árennilegir. Þá man ég að Bjarni Arason á Grýtu- bakka bar klæði á vopnin. Þessi fundur var einmitt á Grýtubakka. Bjarna var jafnan sárt um, að mikið væri rifist. Annars voru þeir ágætir vinir framan af, pabbi og Helgi. Ég man hins vegar vel eftir verslun þeirra Höfðabræðra, Þórðar, Baldvins og Björns Gunnarssona. Tveir þeir fyrr- nefndu höfðu þá félagsbú í Höfða, sem var stærsta bú sýslunnar um síðustu aldamót. Á Kljáströnd ráku þeir bræður umfangsmikla verslun. Þarna tóku þeir m.a. eitt- hvað af fé til slátrunar og var það handskorið á blóðvelli. Því nefni ég það, að eitthvert sinn var ég við að halda fótum fyrir Björn á Skuggabjörgum á meðan hann skar. Ýmsum myndi nú þykja það fremur villimannlegar aðfarir. En aldrei var þetta mikil slátrun. VIII Honum var heldur illa við Helgakver — Þá var engin verslun í Grenivík, en þar var þá prestssetur. — Já, þá var séra Árni Jóhannesson í Grenivík, en hann mun vera eini presturinn, sem þar hefur setið. Áður þjónaði hann í Fjörðum og sat á Þönglabakka frá haustinu 1888 þar til hann fluttist í Grenivík um mitt sumar 1892. Sr. Árni þjónaði þar til dauðadags 4. maí 1927. Hann fermdi mig. Ég hygg að hann hafi ekki verið mikill ræðumaður, en hann var raddmaður mikill og tónari góður. Hafði haft fágætlega góða bassarödd, en hann var farinn að tapa Á Kljáströnd er nú allt í eyði. Þar var eina verslunin á norðanverðri austurströnd Eyjafjarðar, áður en Grenivík varð verslunarstaður. Þarna hélt Jóhann litii á Svínárnesi í fœtur á blóðvelli á meðan Björn á Skuggabjörgum skar. henni mikið, þegar ég man eftir honum. Séra Árni var ágætur barnafræðari og ég man ennþá margt af því, sem hann sagði okkur. Hann lagði ekki mikið upp úr utanað- bókar- eða þululærdómi og var heldur illa við kver Helga Hálfdánarsonar, sem við lærðum nú flest. Við þarna utan af Látraströndinni, sem fermdumst saman, vorum látin byrja heima á Helgakveri og haldið vel að þeim lærdómi. í þeim hópi var Kristinn Jónsson á Hjalla og Þorsteinn í Grímsnesi. Síðan gengum við alltaf á milli til spurninga. Byrjuðum strax skömmu eftir áramótin og héldum áfram út allan veturinn, vikulega. Það var meira en klukkutíma gangur inn í Grenivík frá Svínárnesi og utan úr Grímsnesi kom Þorsteinn alltaf deginum áður og gisti heima. Oft var nú svo slæm færð og veður, að einhver fullorðinn varð að fylgja okkur. Versti kaflinn voru þessar Kleifar, sem ég gat um áður. Þegar þær voru óárennilegar, fórum við oftast nær upp fyrir Kleifarnar og á bak við svonefndan Lýsishól. Þetta var töluverður krókur og nokkuð ströng fjallganga. Heima er bezt 225

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.