Heima er bezt - 01.05.1995, Blaðsíða 2
Vígslubiskupshjónin frú
Aðalbjörg Halldórsdóttir
og séra Sigurður
Guðmundsson frá
Grenjaðarstað segja frá.
Sérstakur
pöntunarseóill
fylgir blaöinu
Aðalpersónur þessarar bókar eru bæði innfæddir
Eyfirðingar, bóndadóttir frá Öngulsstöðum og
verkamannssonur frá Naustum. Saman sátu þau fornfrægt
höfuðból, Grenjaðarstað í Aðaldal, af miklum myndarskap í
rúmlega fjörutíu ár. Eftir að Sigurður var kjörinn
vígslubiskup Hólastiftis fluttu þau hjónin heim að Hólum
og áttu þannig stærstan þátt í að gera Hólastað að
biskupssetri á ný. Eim skeið gegndi Sigurður störfum
biskups íslands.
Hér greinir frá æsku og uppvexti þeirra Aðalbjargar og
Sigurðar, skólagöngu, prestsskap og húsmóðurhlutverki,
skólahaldi og öðrum félagsstörfum. Sögur eru sagðar af
fjölmörgu samferðafólki um leið og litið er yfir farinn veg. I
bókinni eru allmargir vitnisburðir valinkunnra einstaklinga
um störf þeirra hjóna. ^mmm^^.
|Skjaldboi^^^)
ARMULA 23
SÍMI 588-2400
FAX 588-8994
AFGREIÐSLA A AKUREYRI:
FURUVELLIR 13 • SÍMI 462-4024