Heima er bezt - 01.05.1995, Side 24
Bvggðasafn
s
Arnesinga að flvtja
á Evrarbakka:
Opnaðí
Húsinu
í júní
Mynd og texti:
Sigurður Bogi Sævarsson
"yggðasafn Árnesinga stefnir
| að því að opna sýningar sínar
í Húsinu á Eyrarbakka í júní
næstkomandi. Húsið er að stofni til
byggt árið 1765. Unnið hefur verið
síðustu misseri að endurbótum á
byggingunni, sem og á svonefndu
Assistentahúsi sem er viðbyggt Hús-
inu - en það er rúmlega aldar gamalt.
Eyrarbakki var um aldir einn helsti
verslunarstaður landsins og jafnframt
bárust þaðan ýmsir menningar-
straumar um Suðurland. „Húsið var
miðstöð Suðurlands,” segir Lýður
Pálsson safnvörður.
Það var haustið 1992, sem ríkis-
sjóður fyrir hönd Þjóðminjasafns Is-
lands keypti Húsið og síðan þá hefur
verið unnið að endurbótum á því.
Byggðasafn Árnesinga hefur til
þessa verið til húsa á Selfossi, en
fullyrða má að flutningurinn í Húsið
muni verða því mikil lyftistöng
„...því Húsið sjálft er safngripur,”
eins og Lýður safnvörður komast að
orði í spjalli við blaðamann á dögun-
um.
Viðgerðum lýkur ekki endanlega
fyrir þetta sumar, en fara langt. Með-
al sanfgripa, sem settir verða upp
fyrir þetta sumar, verður ýmis vefn-
aður, sitt lítið af hverju, sem tengist
Flóaáveitunni, svo sem landmæl-
ingakíkir, skóflur, hakar og ljós-
myndir, og eins geta safngestir séð
úrval kirkjugripa, sem safnið á.
Fleira mætti nefna, en sjón verður
sögu ríkari þegar Byggðasafn Ámes-
inga verður opnað í Húsinu, en það
verður væntanlega í júní.
168 Heimaerbezt