Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1995, Blaðsíða 6

Heima er bezt - 01.07.1995, Blaðsíða 6
Borinn og barnfæddur Erfið byrjun Ég var svo vesæll þegar ég fæddist að það þurfti að skíra mig skemmri skírn, því mér var ekki hugað líf í 3 sólarhringa. Það var ekki hægt að ná í prest svo ljósa mín skírði mig. Kirkjunni bar að staðfesta skemmri skírnina en það dróst þar til á sjálfan fermingardaginn. Þá var ég þarna einn af þrettán fermingarbörnum og varð að koma fyrstur allra upp að altarinu svo presturinn gæti farið með pistil sinn og staðfest að ég væri skírður inn í kirkjuna. Þetta var mikið átak, skal ég segja þér, það var full kirkja og ég var tekinn út úr hópnum. Ég var óstyrkur og lítt undir þetta búinn. Ég var auðvitað lfka langt niðri, því móðir mín lá fyrir dauðanum heima og þetta var ansi erfitt. Reyðfirðingur Anna og Guðmundur skömnm eftir giftinguna 1949 í Reyðaifjarðarkirkju. fæddist hér á Reyðar- firði 9. janúar 1926 og er alinn upp í þessu þorpi, barn kreppuáranna. Ég fæddist í húsi sem heitir Bifröst og stendur hér enn. Það var tals- verð fátækt á þessum tímum, því þetta var dæmigert lítið sjávarþorp með ýmsu sem því fylgdi. Við lékum okkur niðri í fjöru og sigldum á skipum og bátum í huganum langt út í heim. Við vorum líka í gömlu leikjunum eins og fallin spýta og slagbolta og svo var auðvit- að fótboltinn. Það var mikið um þurftarbú- skap, menn höfðu kannski eina kú og nokkrar kindur, kartöflu- garð og hænur. Þetta var mjög algengt á þessum tíma og menn reyndu að bjarga sér eins og þeir gátu best miðað við aðstæður, en eins og ég sagði áðan var mikil fátækt og margir höfðu ekki mikið meira en til hnífs og skeiðar. Ég byrjaði í skóla sjö ára gamall og þá lauk skólanum með gamla fullnaðarprófinu, sem við tókum 13 ára gömul. Hér á Reyðarfirði bjuggu lík- ------------------------ lega um 360 manns á þeim tíma. Margir unglingar voru í sömu stöðu og ég, að hafa engin efni á framhaldsnámi, einfaldlega vegna fjárskorts. Við fórum á vertíðir á veturna og á sfld á sumrin, sumir fóru í vegagerð og stundum var atvinnuleysi en þetta breyttist alveg gífurlega með hernáminu 1940. Þá var eins og hendi væri veifað og allt breyttist, fólk fór jafnvel að sjá peninga fyrir vinnu sína. Foreldrar mínir hétu Rósa Sigurðardóttir og Magnús Guðmundsson. Faðir minn var verslunarmaður um tíma, talsvert lengi í kaupfélaginu og þar áður hjá Rolf Johan- sen. Móðir mín dó nokkrum dögum eftir að ég fermdist og ári síðar leystist heimilið upp og faðir minn flutti til Reykjavíkur, þar sem hann var meðal annars við verslun- arstörf. Foreldrar mínir bjuggu í 20 ár hér á Reyðarfirði og eignuðust á þeim tíma níu börn, en þrjár systur mínar voru teknar í fóstur. Hjónin íjúní 1995. 222 Heima er bezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.