Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1995, Page 16

Heima er bezt - 01.07.1995, Page 16
komum við að því að aðstaða kennaranna í skóla- kerfí okkar hefur ekki verið nógu góð. Skólar hafa verið tvísetnir og jafnvel þrísetnir. Við þetta höfum við orðið að búa. Nú hafa allir stjórnmála- flokkar einsetningu skóla á stefnuskrá sinni og samkvæmt stefnu stjómvalda á þetta takmark að nást árið 2002. I einsetnum skóla ber kennarinn aðeins ábyrgð á einum bekk en hefur vinnu- skyldu eins og aðrir frá ákveðnum tíma á morgn- ana til ákveðins tíma síðdegis. Þannig getur skapast möguleiki fyrir kennarana að undirbúa starf sitt sem skyldi og framkvæmda þá stefnu sem við voram að tala um - að tekið sé tillit til þroska og getu nemandans og honum leyft að halda áfram ef hann hefur möguleika og þroska til, í stað þess að halda honum niðri af því að það er verið að bíða eftir hinum. Þessi skóla- gerð krefst meira húsrýmis og lægri kennslu- skyldu kennara. Nú er það að verða daglegt brauð að talað sé um einsetna skóla sem mark- mið sem eigi að vera komið í framkvæmd inn- an fjögurra til fimm ára og þykir sjálfsagt. Þetta er athyglisvert. Ég man, að 1952 var ég fulltrúi á þingi Sambands íslenskra barnakenn- ara og við fluttum tillögu, tveir ungir menn, sem héldum að við værum að brjóta blað í skólasögunni. Við fluttum tillögu um að skora á Alþingi að beita sér fyrir því að komið yrði á einsetnum skóla hér á landi. Þetta féll al- gjörlega í grýtta jörð og var varla rætt á þinginu. Mönnum fannst þetta svo fjar- lægt. Upp úr þessu var þó farið að tala um samfelldan skóladag og auðvitað var það skref í rétta átt. Samfelldur skólatími yngstu bam- anna var áfangi á þeirri braut. En meira þarf til eins og áður er komið fram. Nótur af tveimur laga Guðmundar, „ Vor við Reyðarfjörð“ og „Æskuást. “ s Ahugamálin Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á tónlist og svo les ég töluvert af bókum. Við hjónin förum í sund og göngu- ferðir enda hafa veikindi okkar hvatt okkur til þess. Ég hef líka mjög gaman af að spila bridds. Svo hef ég verið að safna heimildum um sögu þessa staðar, því ég hef mikinn áhuga á þjóðlegum fróðleik og á orðið dálítið mikið í fórum mínum. Ég hef verið formaður sögunefnd- arinnar fram að þessu og við höfum verið að safna ýmsu, sem ætti að vera hægt að nota síðar meir til að skrifa litla bók um þennan stað. Reyðarfjörður átti hundrað ára verslunarafmæli 1990, var viðurkenndur verslunarstaður 1890 með konungsbréfi. Arið 1907 skiptist gamli Reyð- arfjarðarhreppurinn í þrjú sveitarfélög: Reyðarfjarðar- hrepp hinn nýja, Helgustaðahrepp og Eskifjörð en nú er búið að sameina Helgustaðahrepp og Eskifjörð aftur. Svo 232 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.