Heima er bezt - 01.07.1995, Síða 16
komum við að því að aðstaða kennaranna í skóla-
kerfí okkar hefur ekki verið nógu góð. Skólar
hafa verið tvísetnir og jafnvel þrísetnir. Við þetta
höfum við orðið að búa. Nú hafa allir stjórnmála-
flokkar einsetningu skóla á stefnuskrá sinni og
samkvæmt stefnu stjómvalda á þetta takmark að
nást árið 2002. I einsetnum skóla ber kennarinn
aðeins ábyrgð á einum bekk en hefur vinnu-
skyldu eins og aðrir frá ákveðnum tíma á morgn-
ana til ákveðins tíma síðdegis. Þannig getur
skapast möguleiki fyrir kennarana að undirbúa
starf sitt sem skyldi og framkvæmda þá stefnu
sem við voram að tala um - að tekið sé tillit til
þroska og getu nemandans og honum leyft að
halda áfram ef hann hefur möguleika og þroska
til, í stað þess að halda honum niðri af því að
það er verið að bíða eftir hinum. Þessi skóla-
gerð krefst meira húsrýmis og lægri kennslu-
skyldu kennara. Nú er það að verða daglegt
brauð að talað sé um einsetna skóla sem mark-
mið sem eigi að vera komið í framkvæmd inn-
an fjögurra til fimm ára og þykir sjálfsagt.
Þetta er athyglisvert. Ég man, að 1952 var ég
fulltrúi á þingi Sambands íslenskra barnakenn-
ara og við fluttum tillögu, tveir ungir menn,
sem héldum að við værum að brjóta blað í
skólasögunni. Við fluttum tillögu um að skora
á Alþingi að beita sér fyrir því að komið yrði
á einsetnum skóla hér
á landi. Þetta féll al-
gjörlega í grýtta jörð
og var varla rætt á
þinginu. Mönnum
fannst þetta svo fjar-
lægt. Upp úr þessu var
þó farið að tala um
samfelldan skóladag og
auðvitað var það skref í
rétta átt. Samfelldur
skólatími yngstu bam-
anna var áfangi á þeirri
braut. En meira þarf til
eins og áður er komið
fram.
Nótur af
tveimur laga Guðmundar, „ Vor við
Reyðarfjörð“ og „Æskuást. “
s
Ahugamálin
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á tónlist og svo les ég
töluvert af bókum. Við hjónin förum í sund og göngu-
ferðir enda hafa veikindi okkar hvatt okkur til þess. Ég
hef líka mjög gaman af að spila bridds. Svo hef ég verið
að safna heimildum um sögu þessa staðar, því ég hef
mikinn áhuga á þjóðlegum fróðleik og á orðið dálítið
mikið í fórum mínum. Ég hef verið formaður sögunefnd-
arinnar fram að þessu og við höfum verið að safna ýmsu,
sem ætti að vera hægt að nota síðar meir til að skrifa litla
bók um þennan stað. Reyðarfjörður átti hundrað ára
verslunarafmæli 1990, var viðurkenndur verslunarstaður
1890 með konungsbréfi. Arið 1907 skiptist gamli Reyð-
arfjarðarhreppurinn í þrjú sveitarfélög: Reyðarfjarðar-
hrepp hinn nýja, Helgustaðahrepp og Eskifjörð en nú er
búið að sameina Helgustaðahrepp og Eskifjörð aftur. Svo
232 Heima er bezt