Heima er bezt - 01.07.1995, Síða 17
tókum við okkur til nokkuð mörg og stofnuðum Sunnu-
hópinn, félag sem ætlað var 50 ára og eldri. Það breyttist
svo og varð Félag eldri borgara, miðað við 60 ára og
eldri. Félagið okkar á aðild að Landssamtökum félags
eldri borgara. Eg gegndi störfum formanns í báðum þess-
um félögum þar til á síðasta ári, þegar ég baðst undan
kjöri vegna veikinda minna. Þetta hefur sem betur fer
borið góðan ávöxt. starfsemin er margþætt og fer vax-
andi. Unnið er við föndur, haldnar skemmtisamkomur,
stunduð leikfimi og sund svo eitthvað sé nefnt. Lítils
háttar hef ég fengist við ljóðagerð og lagasmíðar. Vorið
1978 varð þetta ljóð til ásamt lagi á fallegum vordegi.
Vor við Reyðarfjörð.
Nú er vor um veröld alla,
verinir sólin kalda jörð.
Stillt og kyrrt um strönd og hjalla,
stafalogn við Reyðarfjörð.
Inn á leirum litlirfœtur
léttan stíga vorsins dans.
í morgunsárið grasið grætur
gullnum tárum skaparans.
Ríktu kyrrð um veröld víða,
vorsins friður signi jörð.
Ut um sjó og upp til hlíða
ársól gylli Reyðarfjörð.
Veikindi
Yfirleitt hef ég verið fremur hraustur en 1991-1992 fór
að bera á þreytu og vanlíðan sem ágerðist hægt og bít-
andi. Eftir miklar rannsóknir og spítalavist kom í ljós að
miltað var orðið mjög stórt og þurfti að nema það í burtu.
En allt kom fyrir ekki. A þeim tíma kom í ljós að tvær
hjartalokur voru farnar að gefa sig. Fylgst var með þeim
með vissu millibili og annarra orsaka leitað. Margir ágæt-
ir læknar komu við sögu og þrátt fyrir þekkingu þeirra og
góðan vilja fannst orsök veikindanna ekki fyrr en í janúar
1994.
Þá var ég lagður inn á Landspítalann og við rannsókn
kom í ljós að slæm sýking var í tveimur hjartalokum og
þar að auki greindist ég með kransæðastíflu. Eftir
lyfjakúr í einn mánuð var gerð á mér hjartaaðgerð og
þetta allt lagað. Víst var þetta erfitt, en gekk þó ótrúlega
vel, þegar upp var staðið. Síðar fékk ég að vita að mjög
tvísýnt hafði verið um líf mitt fyrsta sólarhringinn. Mán-
uði síðar þurfti að gera aðgerð á hægri handlegg vegna
blóðtappa, sem hafði myndast þar fyrr um veturinn. En
allt fór þetta vel að lokum og í maí fór ég á Reykjalund í
endurhæfingu. í stað annarrar ósæðarlokunnar fékk ég
eins konar stálloku en eini gallinn við hana er að hún er
býsna hávær! En þökk sé frábærum læknum og góðu
fólki á sjúkrahúsunum. Guð blessi öll þeirra störf.
Jafnaðarmaður
Ég hef alltaf verið pólitískur innra með mér og líka haft
af pólitík dálítil afskipti opinberlega. En ég varð jafnað-
armaður skal ég segja þér einfaldlega innan við fermingu
og hvers vegna - jú, vegna þess að mér fannst ég sjá svo
víða mikið óréttlæti og mikinn ójöfnuð í samfélaginu.
Þetta blundaði svo í mér alla tíð. Þegar ég mátti kjósa í
fyrsta sinn varð ég að gera það upp við mig, hvort ég ætl-
aði að ganga til liðs við Alþýðuflokkinn eða Sameiningar-
flokk alþýðu-Sósíalistaflokkinn. Alþýðuflokkurinn varð
fyrir valinu. Þegar ég kom til Reykjavíkur fór ég örlítið
að vera með og 1974 var ég í framboði. Þá buðu fram
sameiginlega Alþýðuflokkur og Samtök frjálslyndra og
vinstri manna. Ég lenti þá í borgarstjórn sem varamaður
Björgvins Guðmundssonar, en hann var í fyrsta sæti list-
ans. Ég sat sem varamaður í borgarstjórn þangað til ég
flutti hingað austur 1977. Ég hef alla tíð verið jafnaðar-
maður í hjarta mínu, nánast frá blautu barnsbeini. Ég hét
því þegar ég var ungur og komst ekki áfram til mennta að
ég skyldi gera allt sem í mínu valdi stæði til að þessu yrði
breytt og taka þátt í því að ungmenni framtíðarinnar
þyrftu ekki að búa við það að geta ekki farið í skóla
vegna fátæktar. Þess vegna höfðaði jafnaðarstefnan til
mín og ég hef reynt að vera þessum æskuhugsjónum
mínum trúr.
Starfslok fram undan
Ég má vinna út næsta ár en af því að fræðsluskrifstofan
verður lögð niður 1. ágúst 1996 með yfirfærslu grunn-
skólans til sveitarfélaga, hætti ég þann sama dag í síðasta
lagi. Það leggst vel í mig að hætta að vinna, því ég kvíði
ekki ellinni. Ég hlakka beinlínis til elliáranna því ég hef
nóg að gera. Ég tel mig vera félagslyndan og á marga
vini og góða kunningja og mörg áhugamál. Ég hef svolít-
ið unnið í kirkjumálum og var kosinn á kirkjuþing 1986
án þess að vita að það stæði til. Ég sá það bara í Morgun-
blaðinu einn góðan veðurdag, að ég hefði verið kjörinn á
kirkjuþing! Sóknarnefndir allra prestakalla kjósa leik-
menn á kirkjuþing en prestarnir fulltrúa sinn. Við erum
fulltrúar Austfirðinga núna, ég og séra Einar Þór Þor-
steinsson prófastur á Eiðum. Ég sat í kirkjuráði 1990-
1994 eða þangað til í haust sem leið. Þá óskaði ég eftir
því að vera ekki í kjöri til kirkjuráðs vegna veikinda
minna. Ég er þó enn kirkjuþingsmaður og verð áfram ef
guð lofar til 1998. Þetta er tíu daga þing sem haldið er á
hverju ári.
Heima er bezt 233