Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1995, Side 29

Heima er bezt - 01.07.1995, Side 29
27. Þótti vatn úr vígðum brunnum eins og Gvendarbrunnum heil- næmara en annað vatn? 28. Kannast heimildarmaður við að talið væri græðandi og heilsubæt- andi að velta sér í Jónsmessudögg? 29. Kannast menn við morgunleik- fimi (Möllersæfingar)? 30. Hvernig var læknisþjónustu varið í heimabyggð þinni? 31. Kannast heimildarmaður við smáskammtalækna, grasalækna og hómópata? Hverjir voru þeir? Var gerður greinarmunur á þessu þrennu og þá hver? Hverjir voru kallaðir skottulæknar? Hvaða ráð gáfu þessir læknar oftast? Þótti stundum þægi- legra að leita til þeirra en stjórnskip- aðra lækna? 32. Var auk þess til fólk, sem oft var leitað ráða hjá í veikindum, án þess að það skreytti sig með nokkru læknisheiti? Hvort voru það frekar konur eða karlar? Þekkist slíkt fólk enn? 33. Var nokkuð, sem þótti ein- kenna ólærða lækna, til dæmis lækn- ishendur eða augu? Hafði þetta fólk einhvers konar menntun? 34. Kannast heimildarmaður við, að það orð gengi af sumu fólki, að það gæfi sig út fyrir að kunna til lækninga, af því það væri of latt til venjulegrar vinnu? 35. Hvenær var kallað á ólærða lækna? Var það um leið og einhver á heimilinu kenndi sér meins, eða eftir að húsráð höfðu verið reynd? Hvort var frekar kallað á þá áður eða eftir að leitað var til héraðslæknis? 36. Kannast menn við drauma og fyrirboða vegna veikinda? 37. Þekkir heimildarmaður dæmi um lækningar miðla eða með handa- yfirlagningu? Hverjir stunduðu þannig lækningar? Könnuðust menn við huldulækna eða huglækna? Sáust líkamleg merki eftir slíka lækningu, svo sem stunguför eða rispur? Hver Verkfæraskápur Gunnlaugs lœknis Einarssonar (1892-1944). (Nesstofusafn). var afstaða fólks til andalækninga? 38. Hvenær þótti næg ástæða til að leita héraðslæknis? 39. Hver var helst valinn til að sækja lækni? Réð tilviljun því, hver varð fyrir valinu eða voru það jafnan hinir sömu? 40. Segið frá bæði mistökum lækna og kraftaverkum þeirra, sem þið hafið heyrt um eða orðið vitni að. 41. Hvernig var búið um sjúklinga, ef flytja þurfti þá milli staða? Eftir hverju voru menn valdir til sjúkra- flutninga? Kannast heimildarmaður við sjúkraflutninga á handbörum, kviktrjám, hestbaki, vögnum, bílum eða flugvélum? G) Lækningajurtir 42. Hvaða jurtir voru notaðar til lækninga? Lýsið söfnun lækninga- jurta. Hvar og hvenær fór söfnun fram? Var það breytilegt eftir því, hvort safnað var stöngli, laufum, blómum eða rótum? 43. Lýsið þurrkun og geymslu, ef jurtirnar voru ekki soðnar til lyfja, þegar eftir tínslu? 44. Segið frá lækningamætti ein- stakra grasa miðað við tiltekna kvilla. Var mismunandi tegundum blandað saman til lækninga? Voru þær þá soðnar saman í potti eða hver tegund sér? Lýsið suðu lækninga- jurta og geymslu grasalyfja. 45. Hvað nefndust grasalyf? Var miðað við ákveðna skammta í inn- töku? 46. Voru jurtir einnig notaðar í smyrsl til lækninga á bólgum, ígerð og sárum? Lýsið grasasmyrslum, samsetningu, suðu og geymslu. Voru jurtablöð lögð við bólgu og sár (t.d. græðisúra, hófblaðka, fífilrótarblöð, heimulunjóli)? Var þá ekki sama, hvort borð blaðanna sneri að hörund- inu og við það miðað hvort blaðið Blóðhorn, blóðkoppar og barnstúttur. átti að draga gröft eða græða? Voru mismunandi orð notuð um efra og neðra borð jurtablaða? 47. Voru ósoðnar (ferskar) jurtir notaðar til lækninga á sóttum eða hörgulsjúkdómum (t.d. skarfakál)? 48. Voru tré, runnar eða einstakir hlutar þeirra notuð til lækninga (t.d. reynir, víðir, einir)? 49. Voru mosar, fjallagrös og skóf- ir á steinum notuð til lækninga og þá hvernig? 50. Voru sveppagró (kerlingareld- ur, skollaeldur) notuð til græðslu eða annarra lækninga og þá hvernig? 51. Var einhver sjávargróður not- aður til lækninga og þá hvernig? Heima er bezt 245

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.