Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1995, Page 37

Heima er bezt - 01.07.1995, Page 37
Guðjón Baldvinsson: Komdu nú að kveðast á 33. þáttur ið byrjura að þessu sinni á fallegu ljóði eftir Mörtu S. Jónasdóttir, sem hún yrkir um fyrrum heimasveit sína, Eyjafjöllin, en ljóðið nefnir hún Fjöllin mín Eg man ykkur, hjartkœru jjöllin mínfríð, með fannhvíta jökulinn há. Blikandi lindir í blómgaðri hlíð og brosandi rósirnar smá. Þar sœlt er að una um æskunnar ár við indælan heiðlóuklið. Við háfjallabogann skín himinninn blár, en úthafið ströndina við. Þar margur er hrífandi fannhvítur foss semfellur af gljúfrabrún há, færandi bláfjólum brennandi koss er brosandi vaka þar hjá. Þá kvöldsólin fögur með geislandi glóð gullroðar jökulsins tind, ogfjólublá móða er umfjöllin mín hljóð. Egfegurri enga lít mynd. Aðalheiður Kristinsdóttir, búsett í Svíþjóð, yrkir eftir- farandi Erfiljóð eftir Skjóna Göfug var og lund þín létt, Ijósið bjart í augum, þegar fimurfórst á sprett, fjörið brann í taugum. Fœ ég aldreiframar sjá framstœð eyrun kvika, eðafögnuð, fjör og þrá ífögrum augum blika. Við þín léttu, Ijúfu spor laugaðist sál mín gleði, er glettnisfas en þrek og þor þínum sprettum réði. Fœ ég aldrei framar sjá fákinn góða, snjalla, í sál minni er sorg og þrá á samfylgd hans að kalla. I draumum mínum dýrðlegt er dúnmjúkt bak þitt sitja. Mínu er lýkur lífi hér lofmér þín að vitja. Þá sleppum við okkar ágæta Kára Kortssyni lausum út á vísnaakurinn, en hann yrkir hér um ýmislegt, sem fyrir hann hefur borið: Ferðafélagar Hófar snöggir hamra grund, hvín ífaxi vindur, hestur, maður, mjög er stund mild er saman bindur. Fjallstoppur Skoðar heimsins lýð og lönd, Heima erbezt 253

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.