Heima er bezt - 01.07.1995, Page 41
hefur sína töfra eins og forðum. Við
erum komin að Markarfljóti; þar er
Stóri Dímon og Litli Dímon og leið-
in inn í Þórsmörk.
Þarna meðfram veginum eru tún
nýslegin. Mig langar að fara að snúa
heyinu, en það finnst dótturinni að
mér komi lítið við. Fyrr en varir
erum við komin að Seljalandsfossi.
Þar er bílnum lagt við vegarbrún og
gengið upp að fossinum. Þarna er
mikil tilbreyting í framrás vatnsins,
stundum hverfur það í ósjáanlegum
farvegi. Þarna eru margir skorningar
og skútar, þar sem bumirótin grær.
Þarna eru fallegir sumarbústaðir og
umhverfið fagurt og vingjarnlegt, en
tíminn líður og áfram er haldið. Við
erum komin að þeim stað, sem nefn-
ist Drangshlíð. Þar er ákveðið að
nema staðar og snæða nesti, því að
klukkan er farin að ganga eitt.
Við berum nestið upp að stórum
klettadrang, sem er þarna í túninu.
Þarna við rætur klettanna er notalegt
að fá sér mat og hvílast. Nokkrar
kindur eru þarna á beit, grunlausar
um allt, sem um þær er talað.
Drangshlíðin er þeirrar náttúru, að
stórir skútar eða hellar eru inn í
bergið. Þar fyrir framan er röð af
peningshúsum og holrúmið í berginu
nýtt sem heystæður eða geymslur.
Nægjusemi og nýtni liðins tíma talar
hér sínu máli.
Meðan mæðgurnar, Anna og Dísa,
flatmaga í sólvermdri hlíðinni í nánd
við sauðkindur, fer ég í könnunar-
ferð um þessi gömlu hús. Það er
kannski ekki langt síðan að allt var
hér í fullum rekstri, en ég held að
það sé ekki lengur, þó má sjá bundið
hey í geymslum. Tímans tönn virðist
komin þarna í spilið, og niðri á sléttri
grund stendur gamall bátur.
Eftir góða hvíld á þessum
skemmtilega stað er ferðinni haldið
áfram. Uti um öll tún er verið í hey-
skap, trúlega er það há, sem á að nást
í hús. Skröltandi traktorar, bindivélar
og heyvagnar, allt er í gangi.
Við erum komin á móts við Skóga.
Þar er hinn glæsti Skógafoss og
byggðasafnið og húsin hans Þórðar,
þarna er skóli og aðrar stórfallegar
byggingar. En fararstjórinn stefnir
bílnum upp bratta og grýtta vegar-
slóð inn á Fimmvörðuhálsa. Þegar
þangað er komið, blasir við mikið út-
sýni yfir staðinn, tún og eyðisanda,
allt á haf út. Inn til landsins ber jökla
við himin, umvafða mikilli birtu frá
skini sólar. I áttina til Eyjafjallajök-
uls eru gróin landsvæði, en þau eru
ekki samfelld; þarna hafa stormar og
sandfok sargað landið sundur í mis-
stórar einingar. Þarna er leikinn
hringdans um hin grónu svæði, og
víða má sjá rætur og gróinn svörð
hanga í lausu lofti, undirstaðan er
fokin burt. En á þessari stund er eng-
Fyrirframan hellismunna að Drangshlíð.
in hreyfing, það er logn urn land og 1
láð. Úti um holt og hæðir eru dreifðir r
fjárhópar að bíta gras í sælli ró. Við i
horfum inn til öræfanna. Hvernig
stendur á því, að upp í hugann kemur <
vinur okkar allra, Ómar Ragnarsson? |
Næsti áningarstaður er í Vík í s
Mýrdal. Þar er greiðasala við veginn, l
og við fáum okkur kaffi og bensín á t
bílinn. Þarna er hægt að taka lítil i
sumarhús á leigu, sjá má útlenda r
ferðamenn, og á planinu stendur s
fiskibáturinn í Vík. Hann gengur c
jafnt um sjó og land.
Eftir að hafa dvalið um stund í
Vík, er stefnan tekin inn Kerlingar-
dal. Þar eru sérkennilegar kletta-
myndanir, kannski ekki ólíkt og að
vera kominn til tunglsins. Þarna inn
frá eru Höfðabrekkuheiðar, Mýrdals-
jökull og Höfðabrekkujökull, og
skriðjöklar blasa við augum. Við
höldum sem leið liggur, þar til við
blasir Múlakvísl, sem dreifir sér í
mörgum álum um allauðnarlegt
sandflæmi, og yfir gnæfir jöklaheim-
ur. Þarna virðast alltröllslegar ham-
farir geta átt sér stað. Við virðum
þetta fyrir okkur um stund, en síðan
er haldið sömu leið til baka. Það er
víða numið staðar, því þetta er falleg
leið og hinar sérkennilegu kletta-
myndanir hafa aðdráttarafl, sem vek-
ur áhuga ferðalangsins.
Kerlingardalurinn er á einum stað
gróinn og friðsæll og lítil á rennur
þar fram. Þar eru skemmtileg tjald-
stæði. Ófleygur fíll uppi á brekku-
brún ætlar bæði að hlaupa og fljúga,
en niðurstaðan er sú að hann kútvelt-
ist kollhnís niður brattann. Eg geng
meðfram ánni, degi er tekið að halla,
sól að ganga til vesturs. Það er logn
og mildi.
Það er búið að ákveða að gista á
Heima er bezt 257