Æskan

Volume

Æskan - 01.12.1941, Page 4

Æskan - 01.12.1941, Page 4
Jólablað Æskunnar 1941 á dásamlegri hátt' en hann hefir að líkindum grunað sjálfan. Kvöld eitt voru fáeinir fjárhirðar úti á völlunum við Betlehem að gæta lijarðar sinnar. Þá birti snögglega■ í kringum þá, og englar í skínandi klæðum stóðu hjá þeim og fluttu þeim boðskapinn um fæðingu frelsarans og frið á jörð. Til marks um, að þeir væru að segja satt, vísuðu þeir hirðunum á lítið barn liggjandi í jötu. Engl- arnir liöfðu rétt fgrir sér. Frá litla barninu, sem lá í jötunni, er komin sterkasta og máttugasta friðarhregfing, sem við höfum sögur af. Einu sinni lá við, að tvö ríki í Suður-Ameríku færu í stríð, hvort á móti öðru. En sættum var komið á, og samningur gerður um það, að aldrei skyldu þessar þjóðir vopnum vegast. Til minningar um þetta, var reist stórt líkneski af Jesú Kristi á landamær- um ríkjanna. Á landamærum Bandaríkjanna og Canada hefir verið byggður friðarbogi og friðar- brú og gróðursettur friðargarður. Á allri þeirri landamæralínu, frái Atlantshafi til Kyrrahafs, er ekki ein einasta fallbyssa. Við getum líka séð áhrif friðarhreyfingarinnar hér á Norðurlöndum. Á söguöldinni fannst flestum eðlilegt, að íslenzkar ættir lægju í blóðugum ófriði hver við aðra. Nú ber enginn íslenzkur maður vopn, nema hann sé í erlendri þjónustu. Þessi dæmi sýna, að þó að hægt fari, þá liefir fagnaðarerindi friðarhöfðingjans áhrif. Oft hefir það að vísu komið fyrir, að þau ráð, sem menu væntu mikils af, til eflingar friði á jörð, hafa reynzt lítils virði. Friðarsamningar og þjóða- bandalög hafa orðið að engu. En það sýnir aðeins, að slíkar ytri ráðstafanir duga því aðeins, að þær séu byggðar á bjargi hins kristna hugarfars. Leiðin til þess að gera friðinn varanlegan á jörð- inni er sú, að allir menn yfirleitt — og þar á meðal þú, sem lest þessar línur — temji sér að hugsa, eins og Jesús Kristur hugsaði. Þér mun nú kann- ske finnast það skipta litlu máli, hvernig þú hugs- ar eða starfar; þú ert ekki nema dropi í hafinu, — eitt lítið peð á hinu mikla taflborði lífsins. Þjóð þin megnar lítið, og þú sjálfur minna en ekki neitt. En ef þú heldur, að það skipti litlu um sjálfan þig, þá hugsaðu um það, að sjálfur friðar- höfðinginn hafði fyrst el<ki með sér, nema fáeina vini og fylgismenn, sem alls ekki voru voldugri e\i þú. En þeir skildu, livað Kristur liafði átt við með dæmisögunum um súrdeigið og frækornið. Súr- deigshnefinn sýrir ekki allt brauðið i einu. Hanu sýrir það, sem næst honum er. Frækornið skýlir engum fuglum, en það slreitist við að þroskast og jurtin að vaxa, unz það smám saman verður að tré. t>etta skulum við hafa í huga á þessum jólum. Þó að við getum ekki ráðið við stórveldi heimsins og skipað þeim að semja frið, þá getum við lagt stund á þetta tvennt': að þroska sjálf okkur, eins og frækornið, og reyna að Iiafa góð áhrif á þá, sem næstir okkur eru, eins og súrdeigshnefinn. — Ræktaðu því friðargarðinn í hjarta þínu og byggðu friðarbrú milli þín og annarra manna. Þú, sem ert líiið barn, átt að vaxa í öllu góðu, eins og frækornið vex. Þú átt ekki aðeins að verða stærri, heldur líka betra barn með hverjum degi, sem líð- ur. Og eins og súrdeigshnefinn hafði áhrif á deig- ið, átt þú að hjálpa börnunum, sem þú leikur þér við, til þess að verða alltaf góð börn. Á jólunum viltu vera góður við alla. Reyndu að vera þannig alla aðra daga líka, þá finnast þér alltaf vera jól. Jólin eru friðarhátíð. Þá skiljum við friðinn og leitum friðarins. Og sá, sem af einlægni nemur slaðar við jötuna í Betlehem og lofar jólastjörn- unni að skína á sig, hann verður alveg ósjálfrátl friðarboði, hvar sem hann er. Eg kann sögu um jólafriðinn. Hún er þannig: Tvíbýli var á bæ, og margt barna á báðum bú- unum. Báðir bændurnir fóru í kaupstað fyrir jólin, og báðir keyptu meðal annars kertakassa með allavega litum jólakertum handa börnunum. En það fór illa fyrir Magnúsi bónda á leiðinni heim. Hann týndi jólakertunum. Börnin fóru að gráta; öllum pokum og töskum var snúið við, en engin voru kertin. Kona Magnúsar, hún Jórunn, vissi ekki, hvað hún átti að taka til bragðs. Hún ympraði á því við bónda sinn, hvort ekki mætti fót lánuð kerii á liinu búinu. Hann hélt nú síður. IIjá þvi fólki dytti sér ekki í hug að þiggja nokkurn greiða. Það væri búið að vera stöðugt rifrildi á milli heimilanna í tíu ár, og það væri víst bezt að vera ekkert að sleikja úr því, þessu hyski. — Börnin fengu engiu kerti; allir fóru snemma að lmtta á aðfangadagskvöldið. Það var ólund í fólk- inu. Börnunum fundust þetta ekki vera nein jól. Þau lágu vakandi í myrkrinu. Fullorðna fólldð var farið að lirjóta. Þá heyrðist allt í einu eitthverl þrusk niðri í stiganum. Hlerinn lyftist, og Ijós- bjarmi kom upp um lúkuna. / Ijósbirtunni skein á þrjú brosandi barnsandlit. Börnin í rúmunum risu upp við olnboga eða settust upp. Voru þetta kannske englarnir, sem jólaguðspjallið sagði frá? Nei, þau þekktu andlitin. Það voru krakkarnir á hinu búinu, Siggi, Magga og Dóri litli. Þau þokuð- ust upp á pallinn, hvert þeirra með skínandi jóla- kerti, sem þau læddust með að rúmunum. Börnin gleymdu sér álveg. Þau festu kertin við rúmstuðl-

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.