Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1941, Blaðsíða 7

Æskan - 01.12.1941, Blaðsíða 7
Jólablað Æskunnar 1941 og þegar hún og drengurinn kæmu til hans, mundi allt verða gott. „Hann óli hafði nú vinnu hérna lika,“ svaraði amman. „Og fyrst liann gat ekki komizt af og bjargað sér liér, þá gengur það varla betur fyrir lionum í kaupstaðnum, þar sem liann er ókunn- ugur og öllu óvanur. Og svo er nú borgin ekki rétti staðurinn fyrir mann eins og Ólaf, ekki eru freistingarnar minni þar.“ Amma var ekki blíð á svipinn, þegar hún sagði þetta. Mamma svaraði engu, en kipraði saman varirnar. Nú kom lestin brunandi, og brátt stóðu þau Marteinn og móðir lians inni i klefanum og veif- uðu til ömmu út um klefagluggann. „Þú átt eftir að iðrast þessa ferðalags, Herdís,“ sagði amma. Það var hið síðasta, sein hann heyrði liana segja, áður en lestin rann af stað. En hvað lestin fór liart. Marteinn horfði undr- unaraugum út um gluggann. En hann varð fljólt þreyttur. Hver bærinn var öðrum líkur og skóg- urinn alls staðar eins. Það var ekkert gaman að horfa á þetta lengur. Drengurinn settist á hekk- inn við hlið móður sinnar. Hann leit á liana. „Ertu að grála, mainmaf sagði liann lágt. „Ónei, Marteinn lilli,“ svaraði konan. „Það fór bara eitthvað upp í augað á mér. Hún tók vasa- klútinn upp og sneri sér frá drengnum. Marteinn skildi, að hún reyndi að vera glaðleg i málrómnum, en hún gat það ekki. Mamma hans var að gráta. Það var áreiðanlegt. Það hafði varla fokið upp í bæði augun á henni. Þau voru rauð, bæði tvö. En hún vildi víst eklci láta hann sjá það. Hann gat svo sem lokað augunum, þá þurfti liún ekki að vera að fela sig fyrir honum. Drengurinn hallaði sér upp í klefahornið og kreisti aftur augun. „Þú átt eftir að iðrast þessa ferðalags, Herdís,“ hafði anuha sagt. „Þú átl eftir að iðrast þessa.“ Hann heyrði orðin greinilega. Nú var eins og þessi orð ómuðu frá vagnhjólunum. „Þú átt eftir að iðrast þessa ferðalags!“ hljómaði allt í kring um hann. Hann sofnaði. Þegar hann vaknaði aftur var farið að rökkva. Fleira fólk var komið inn í klef- ann, en mamma sat næst honum. Það var eitt- hvað sagt við hann, en hann anzaði því ekki. Hann sneri sér undan, og sofnaði á ný. Marteinn litli svaf og svaf. Hann vissi ekki, þegar leslin nam staðar. Hann varð ekki var við, að faðir hans kom og bar hann inn í bíl, sem ók þeim lengra út í borgina, og loks lentu þau í litilli íbúð i stóru, gráu húsi í ólireinni, þröngri götu. — ue di 1Jd. Yfir bústað ykkar breiði ár og friður vœngi sína. Jólin þangað Ijúfust leiði Ijós, er foldarbörnum skína. Ekki gult, né auðlegð neina eg úr fjarlœgð þangað sendi, en þá bam: að ástin hreina gkkur leiði móðurhendi. Sœl og glöð eg sé í anda sólskinið hjá vinum mínum, Ijósin björt á borðum standa, börnin leika að gullum sínum. Cti gullnar stjörnur stafa strauma, sund og hvítar hœðir, milli hreinna mjallatrafa máni jólablgsið glœðir. Inni hjartans heill og blíða, helgiblœr og söngvaómar. Uti himinhöllin víða hnattaskrauti björtu Ijómar. Blessuð jólin finn eg fœra fögnuð guðs í mannlegt hjarta, meðan hlátra himinskœra hefja börn og Ijósin skarta. Hulda. I öosscsrtOBsaoescsöBsesossaiOBscsaaoBsei-osscjossaiOSScsoBscsöosscsi} „Eigum við að búa liér?“ Marteinn settist upp í rúminu og leit hissa í kringum sig. „Já, hérna eigum við að búa, þangað til pabbi er búinn að vinna fyrir svo miklum peningum, að hann geti keypt Grenihliðina aftur,“ svaraði móðir haiis. Hún kom með mat lil hans í rúmið. „Verður langt þangað til?“ spurði hann. Hann liélt ó hrauðsneið í hendinni og beit í hana, áður en hann fengi svar. „Nei, ekki ef við verðum góð við hann,“ sagði 127

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.