Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1941, Blaðsíða 3

Æskan - 01.12.1941, Blaðsíða 3
42. árgangur ♦ Reykjavík, desember 1941 ♦ 12. tölublað Friður Eflir séra Jakob Jónsson. „Dýrð se' Gudi í upphœðum, og friður d jörðu.“ (Lúk. 2, U.) 1 margar aldir hefir jólaljóð englanna verið sungið og lesið. Mannkynið hefir þráð frið á jörð, og þó hafa alltaf geisað slgrjaldir. í heiminum. Spámaðurinn Jesaja, sem lifði mörg hundruð ár- um fgrir Krists daga, spáði því, að einhvern tíma mundi koma sá tími, er þjóðirnar smíðuðu plóg- járn úr sverðum sínum og sniðla úr spjótum sín- um. „Engin þjóð skal sverð reiða að annarri þjóð“, sagði hann, „og ekki skulu þær temja sér hernað framar." — „Sú þjóð, sem i mgrkri gengur, sér mikið Ijós; gfir þá, sem búa í landi náttmgrkr- anna, skín Ijós, ... því að öll harkmikil her- mannastígvél og allar blóðstokknar skikkjur skulu brenndar og verða eldsmatur. Því að barn er oss fætt, sonur er oss gefinn; á Iians herðum skal höfðingjadómurinn hvíla; nafn hans skal kallað: undraráðgjafi, guðhetja, eilífðarfaðir, friðar- h ö f ð i n g i Jesaja gerði sér vonir um það, að með fæðingu friðarhöfðingjans í heiminn, mundi renna upp öld friðar og sáttfgsi. Rættist von hans eða rættist hún ekki? Friðarríkið er enn ekki komið með þeim krafti, sem Jesaja spáði. Og satt að segja sjáum við enn ekki hglla undir þá tíma á næstu öldum. En að einu legti rættist von spámannsins, meira að segja 123

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.