Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1941, Blaðsíða 6

Æskan - 01.12.1941, Blaðsíða 6
Jólablað Æskunnar 1941 „Sjáðu, juamma“, hrópaði Marteinn litli. Hann kom með fangið fullt af leggjum og alls konar dóti. „Hérna eru skepnurnar mínar! Sjáðu þenna hérna!“ Hann hélt á gömlum, ryðguðum naglbít í hendinni. „Þetta er hann stóri boli. Hann heitir Samson, alveg eins og nautið liennar ömmu. Hann er stór og sterkur og hefir livöss og stór horn. Og þetta eru kýrnar. ÞettJa er Skjalda, Biikolla og Ljómalind og Skrauta, og þetta er“-----. „Þú hefir sannarlega stórt bú, Marteinn minn,“ sagði móðirin blíðlega. Hún stóð á fætur og hélt áfram að húa um dót sitt og láta niður. Hún var nú langt komin með það og hafði ekki tíma til að hlusta á drenginn lengur. „Það er bezt, að þú látir öll dýrin þín niður í þenna kassa,“ bætti hún við, og benti á einn kassann á gólfinu. Það brá fyrir vonbrigðasvip á andliti drengs- ins, þegar móðir hans stóð upp, en svo hýrnaði aftur yfir honum, og hann fór að raða skraninu 126 sínu niður í kassann. Hann gerði það með mestu natni og vandvirkni. Hver hlutur átti að vera á sínum stað: Kýrnar sér, kindurnar sér, og stóri boli útaf fyrir sig. Þegar þvi var lokið, settist liann á lítinn fótaskemil, er stóð á gólfinu. „Hefir þú séð ömmu þina i dag, Marteinn litli?“ spurði móðir hans. „Eg hefi séð hana uppi á hólnum, hvað eftir annað,“ svaraði drengurinn. „Kom hún aldrei niðureftir til þín?“ „Jú, einu sinni.“ „Hvað sagði liún við þig, talaði hún ekki eitt- hvað við þig?“ Móðirin hélt áfram að spyrja. „Jú, hún talaði dálítið við mig.“ „Hún hefir þá ekki verið reið við þig.“ „Nei, hún var ekki vond við mig,“ sagði dreng- urinn. „En það er hann pabbi, sem hún er reið við. Og svo er hún víst vond út í þig, af þvi að þið ætlið að flytja lil borgarinnar. Amma er góð við mig. Hún gaf mér hnefafylli af rúsínum í dag.“ „Hvað sagði hún við þig? Spurði hún nokkurs?“ „Nei, nei! Hún strauk bara á mér hárið, og svo sagði hún nákvæmlega það sama við mig og það, sem hún sagði við lilla kálfinn hennar Skjöldu, þegar hún bar í fyrsta sinn.“ „Það var skrítið. Manstu þá, livað hún sagði?“ „Já, nú man eg það. Hún sagði: „Aumingja skinnið litla!“ “ Marteinn reyndi að tala í svipuð- um málrómi og anima hans, og það heppnaðist eftir öllum vonum. „Jæja, sagði liún það,“ sagði konan, og nú komu tárin fram i augu hennar, en liún sneri sér undan, til þess að láta drenginn ekki sjá, að hún væri að gráta----------. ☆ ☆ ☆ Siðustu næturnar dvaldi Grenihliðarfólkið hjá einum nágranna sínum — en ekki hjá ömmu á Brekku, sem var þó i sama túninu. Marteinn liafði aldrei ferðazt með járnbrautar- lest áður, svo að hann hlakkaði til fararinnar. Hann hafði lieldur aldrei komið út úr þessari sveit. Það hlaut að vera gaman að sjá nærliggj- andi héruð. Amma kom á járnbrautarstöðina til þess að kveðja. Hún kom með nesti handa þeim. Hún sagði fátt, en tárfelldi við og við og klappaði á kollinn á Marteini. Móðir hans talaði ótt og títt. „Það er óþarfi að láta svona,“ sagði liún. Það var hægt að lifa í borginni, alveg eins og i sveit- inni. Nú hafði Óli fengið atvinnu þar á vinnustofu,

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.