Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1941, Blaðsíða 16

Æskan - 01.12.1941, Blaðsíða 16
Jólablað Æskunnar 1941 Árni Óla: Lítið skáld. (Kafli úr óprentaðri sögu, sem heitir „Lítill smali“.) Eg hafði tekið mikla ákvörðun. Eg ætlaði að verða skáld. Amma hafði hent mér á það, að eg skyldi hafa ljóðahók með mér í hjásétunni, og auðvitað fór eg að ráðum hennar. Fyrsta bókin, sem eg fór með í barminum, var Númarímur. Eg lærði mikið úr þeim utanbókar, sérstaklega þar sem sagt var frá bardögum. Mér fannst bragð að þvi, en man- söngvarnir leiddust mér þá. Leó, kappinn í ljóns- húðinni, var maður að mínu skapi. Það var karl- mannlegt, livernig hann sleit upp eikina, og ekki siður, livernig liann sveiflaði kylfu sinni. Næst komu rímur af Þorsteini uxafæti. Það var nú ekki siður karl í krapinu. En þó tók út yfir, þegar eg las Úlfarsrímur, þar sem kapparnir létu sér ekki nægja að vega einn og einn, heldur brytj- uðu niður Jieila hópa i einu höggi. Þetta æsti ímyndunaraflið. Eg þóttist sjálfur vera einn af hetjunum, helzt Önundur fagri, og víðitágin mín var vopnið. Þéttur skógarrunnur var fylking ó- vina. Eg sveiflaði táginni, svo livein í, og lijó á efstu limarnar. Blöðin fuku af eins og skæða- drífa. Það voru liausar óvinanna, og þegar eg taldi, hve margir hefði fallið í hverju höggi, þá var eg fræknari lieldur en rímnahetjurnar. Samt varð eg nú furðu fljótt leiður á þessum leik og rímunum. En þá komst eg í skrifað Ijóða- getur ímyndað sér, hvernig það muni vera fyrir ljótan, stóran risa, þegar stjarna hrapar beint nið- ur í hausinn á honum. En Ása Stína kenndi í brjósti um hann, enda þótt liann vondur væri. Þvi að stór og heimskur og ljótur tröllkarl getur ekk- ert gert að því, þó að hann sé vondur, stór og 1 jót- ur. Það áleit að minnsta kosti hún Ása Stína brúðumamma. kver. Þar voru lausavísur eftir hina og aðra. Og þar voru vísur, sem sagt var að skáldin hefði orkt á meðan þau voru börn að aldri, miklu yngri en eg. i Þá vaknaði fyrst sú liugsun: Hvi skyldi eg ekki geta gert vísu eins og þeir? Jú, eg hlaut að geta það. Og svo fór eg að yrkja. Ekki var það nú vandalaust, það fann eg fljótt. Þótt eg hefði enga hugmynd um rímreglur, þekkti hvorki stuðla né höfuðstafi, þá liafði það samt brennt sig inn i meðvitund mína við lestur rímn- anna. Eg fann braglýtin, þótt eg væri jnér þess ekki meðvitandi í liverju þau voru fólgin. Bar- áttan við þau varð Iiarla erfið, og allir sneiðingar fram hjá braglýtuni leiddu til þess að efni vísn- anna fór forgörðum. Það var enginn liægðarleikur að halda ákveðnu efni innan vébanda stuðla, höfuðstafs og ríms. Bezt gekk það með ærnafna- vísur. Þar var vandinn ekki annar en raða nöfn- unum rétt. Og eg var gróflega montinn, þegar þessi var fullsmíðuð: Flekka, Háleit, Fenja, Sjöfn, Fluga, Hnyðra, Lúpa, Bára, Dúfa, Bredda, Dröfn, Budda, Harpa, Bjúpa. Margar urðu þær fleiri ærvísurnar, og að lokum mun eg hafa komið flestum nöfnum ánna i vísur, þó með því móli að endurtaka sum nokkrum sinnum. Þegar sá akur var alplægður, varð að snúa sér að öðru. Eg reyndi að setja saman vísur í liugan- um, reyndi að yrkja upphátt og hafa yfir kvæða- lög um leið. Það létti dálítið. Orðin komu skjót- ara með því móti. En þau vildu verða sitl úr hverri áttinni. Eins reyndi eg að skrifa vísur með táginni minn i leirflög. Með þvi móti var engin

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.