Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1941, Blaðsíða 11

Æskan - 01.12.1941, Blaðsíða 11
Jólablað Æskunnar 1941 skömmu fyrir jólin kom bréf frá ömmu. Mamma hans grét og hló á víxl, meðan liún var að lesa það. Og um kvöldið, þegar faðir lians kom heim, þá lásu þau hréfið hátt. Og það var ekki verra en það, að Marteinn litli skildi innihaldið. Ajnma skrifaði, að hún væri orðin gömul og hrum. Það væri óttalegt öfugstreymi, að dóltir liennar og dótt- ursonur væru svona langt í burtu. Hún væri held- ur enginn maður til að húa lengur. Hún spurði, hvort þau vildu ekki flytja til liennar og hjálpa henni í ellinni. Marteinn litli ætti livort sem væri að erfa jörðina, þegar hann væri orðinn stór, og hún þráði drenginn svo mikið, hún gæti eklci af lionum séð. Marteinn litli varð dökkrauður í andliti. Hendur lians skulfu, svo að hann varð að setja bollann frá séi‘. Hjartað l)arðist í hrjósti hans, svo að það olli honum sársauka. Hann starði á foreldra sina með mikilli eftirvæntingu. „Hvað segir þú, Óli?“ spurði móðirin blíðlega. „Mér finnst, að við ættum að fara til ömmu á jólunum og ráðgast um, hvernig þessu verði hezt komið fyrir.“ Marteinn litli stökk upp af stólnum og hljóp upp um hálsinn á pabha sínum. — ☆ ☆ ☆ Þau höfðu farið snemma á fætur, svo að Mar- lein litla tók að syfja, er háhn hafði setið í lest- inni um stund. Hann ætíaði að fá sér dálítinn hlund. En hann l)að foreldra sína að muna eftir að vekja sig, þegar þau kæmu heim i sveitina sina. Þau héldu auðvitað loforðið, og Marteinn hoppaði upp í klefagluggann. Nú þekkti hann sig aftur. Hann klappaði saman lófunum. En óttalegur sila- keppur gat þessi lest verið! Hún komst eklcert úr sporunum. Það var víst ekki meira en hálf mila eftir til stöðvarinnar, en Marteinn hélt, að þau kæmust þangað aldrei, honum fannst lestin fara svo hægt. Það var glaða sólskin og snærinn glitraði svo langt sem augað eygði. Marteinn sat á sleðanum á milli foreldra sinna. Þau hreiddu feldinn yfir sig, og siðan brokkaði Brúnn af stað, og það glumdi í sleðabjöllunum. Þarna lá Grenihlíð, og uppi í hæðinni var Brekka, bærinn hennar ömmu, fallegasti bærinn í sveitinni. Marteinn hefði ekki getað verið hamingjusamari, þó að liann hefði verið á leiðinni inn i Paradís. Annna lians stóð úti á hlaði og tók á móti þeim. Hún faðmaði drenginn að sér og þrýsti honum lengi upp að brjósti sér, eins og liún gæti ekki sleppt honum. Síðan heilsaði hún foreldrujn lians. „Eg óska þér til hamingju með merkið, Ólaf- ur,“ sagði hún, þegar hún tók í hönd pabba. Marteinn litli þaut beina leið út i fjós. Hann þurfti að skoða kýrnar og koma i önnur útihús til þess að sjá allar skepnurnar, og hann sást ekki inni nema rétt við máltíðirnar. — Þegar liann fór að hátta um kvöldið, mundi liann eftir því, sem amma hafði sagt, er hún heils- aði föður lians. „Hvaða merki var það, sem anuna var að óska pabba til hamingju með í dag?“ spurði hann. Vissirðu það ekki, Marteinn minn,“ svaraði móðirin. „Það var góðtemplaramerkið, sem hún átti við.“ „Nú, já,“ sagði Marteinn litli og geispaði, því að hann var orðinn hæði þreyttur og syfjaður. — 131

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.