Æskan

Árgangur

Æskan - 01.11.1954, Síða 6

Æskan - 01.11.1954, Síða 6
Jólablað Æskunnar 1954 Óli Alexander Trararam. Einu sinni var voða stórt og hátt hús, og það stóð i feikna stórri borg. Húsið teygði þakið hátt, hátt upp, svo að það gat horft út yfir öll hin húsa- þökin i kring, og það var dálitið upp með sér af þessu. Stundum talaði háa húsið við sjálft sig og rausaði: — Það er nú meira, hvað ég er stórt! Ég er víst hæsta húsið í borginni eða kannski í heiminum, eða öll þau ósköp, sem rúmast í mér. Neðst niðri, í kjallaranum, er þvottahús. Á neðstu hæð hef ég mjólkurbúð, og svo hef ég lyftu. Jahá. Það eru nú ekki öll liús, sem hafa bæði lyftu og stiga, en það hef ég. Og þegar lyftan sendist upp og niður, þá kitlar mig svo í magann, að ég verð að hlæja. Eða sá fjöldi af fólki, sem á heima í mér. Ég held, að því þyki öllu ósköp vænt um mig, en sérstaklega þó honum litla kút, hvað hann heitir nú aftur, sem á heima á 7. hæðinni, jú, Óli Alexander Trararam heitir hann. Og húsið hafði rétt fyrir sér í þessu, enda hafði litli snáðinn átt þar heima síðan hann fæddist, og nú var hann orðinn nærri fimm ára, svo að þetta var voða langur tími. Hann átti heima þarna á 7. hæðinni hjá pabba og mömmu og litlum og svört- um loðliundi, sem liét Lubbi, og snáðinn hét sjálfur Óli Alexander Trararam. Ja, reyndar hét hann nú aðeins Óli Alexander, en einu sinni, þegar hann fékk að fara út með mömmu og hlusta á lúðra- sveitina leika á torginu, heyrðist honum allar trumburnar segja við hann í sífellu: trararam, tramm, trararam. Og þegar hann kom heim til pabba og Lubba, sagðist hann heita Óli Alexander Trararam. Það hlaut að vera rétt, sem trumburnar sögðu, þær höfðu svo hátt. Einu sinni sagði mamma: — Viltu skreppa fyrir mig í mjólkurbúðina, ÓIi minn? Ég þarf að fá svo margt, að ég skal lána þér körfuna. Þá geturðu skoppað niður stigann, en þegar þú kemur aftur, skaltu fara í lyftunni. En þú mátt ekki fara einn, Óli minn. Bíddu, þangað til einhver fullorðinn kemur og verður þér sam- ferða. Og svo taldi hún upp allt það, sem hún þurfti að fá úr búðinni. Og Óli Alexander Trararam hafði það upp eflir henni, til þess að vera viss um að muna það. Iiann setti körfuna á kollinn og trítlaði svo af stað. Og á leið niður stigana setti hann þetta saman, svo að hann gleymdi síður, hvað hann átli að Icaupa: 106 IJt í húð, út í búð, ég er að sendast út i búð! Eitt stykki af smjörlíki, eitt bréf af kanel, einn pakka af flikflak og einn haframél, og mysing og mjólkurpott svo má ég fá gott fyrir afganginn! Og lagið samdi hann um leið og söng svo þetta hástöfum. Þegar hann kom í mjóllcurbúðina, var þar mesta ös, en það fannst Óla bara gaman, og þarna var líka svo margt að horfa á. Þarna kom mjólkurbíls- maðurinn með kassa fullan af flöskum á öxlinni, en í sama bili sem hann kom inn úr dyrunum, snaraðist einhver stúlka út, og þau rákust saman, búmm — og klir—r—r—r. Flöslcurnar lientust út um allt gólf, skoppuðu og hrotnuðu, maðurinn skall á gólfið, og kassinn livolfdist yfir höfuðið á honum. Og þarna sat hann, ringlaður og rassvotur af mjólk, en hitt fólkið tíndi upp flöskurnar, sem ekki brotn- uðu. Ein stúlkan varð svo hrædd og ringluð, að hún hoppaði upp á búðarborðið, og þar stóð liún, eins og hæna á priki, þó að búið væri að sópa saman brotunum og þurrka mjólkurflóðið af gólfinu. — Góða mín, af hverju stendurðu þarna enn, sagði afgreiðslustúlkan. Þú verður að fara niður, því annars getur verið að ég selji þig í ógáti fyrir mjólkurflösku. Þetta fannst hinum búðargestunum fyndið, og þeir hlógu, en stúlkan á borðinu var fúl og sagði: — Ég kemst bara ekki niður. Ég slcil ekkert í, hvernig ég hef komizt hér upp. Nú rankaði mjólkurmaðurinn á gólfinu við sér. Hann reis upp, gekk að borðinu og sagði: — Gerðu svo vel og tylltu þér á bakið á mér, væna mín. Stúlkan gerði það, og allir hlógu nema hún. Og maðurinn var svo glaður, að hann þreif hana í fangið og dansaði með hana einn hring um gólfið, en þá varð hún folcvond og sleit sig lausa og hljóp út. Mjólkurmaðurinn fór nú út og sótti annan mjólk- urkassa. Afgreiðslustúlkan fór að afgreiða á ný, og þegar röðin kom að Óla, var hann húinn að steingleyma, livað hann átti að kaupa. — Tvo metra af smjörliki-----. Svo stóð alveg í lionum. Stúlkan beið þolinmóð, og allt í einu mundi Óli

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.