Æskan

Árgangur

Æskan - 01.11.1954, Blaðsíða 15

Æskan - 01.11.1954, Blaðsíða 15
Jólablað Æskunnar 1954 Kanntu að spá? Öllum þykir gaman að kunna og geta eitthvað, sem aðrir geta ekki. Og flestum finnst kitlandi og spennandi að skyggnast eitthvað inn í ókominn tíma, og margir vilja gjarnan trúa því, að það sé hægt. Hvort sem svo er eða ekki, þá er hægt að leika spámann eða spákonu, fara eftir reglum, sem viðstaddir kunna elcki, og láta athöfnina líta út sem allt sé „ekta“. Hérna kemur mjög liandhæg aðferð og auðlærð, mátulega dularfull fyrir þá, sem kunna hana ekki, og alveg örugg til að velcja kátínu og gaman. Fyrst af öllu lætur þú þann, sem þú ætlar að spá fyrir, velja sér einhverja hinna 8 spurninga, sem feitlelraðar eru hér á eftir. Hugsum okkur, að liann velji t. d. 4. spurningu: Hvaða álit hefur fólk á mér — flesta langar lil að vita það. Næst segir þú honum að draga tvö spil úr spilastokk, sem þú liefur við hendina, og lílur á, livaða liti hann dró. Segjum að hann hafi dregið hjarta og spaða. Þú lítur á viðeigandi kafla í svörunum, þann, sem er merktur hjarta og spaði, svar nr. 4: Allir hafa gott álit á þér. Og svo getur hann freistað gæfunnar og valið sér einhverja aðra spurningu, og aðferð þín að finna spámannlegt svar er hin sama og áður. 1. Verður heitasta ósk mín uppfyllt? 2. Verð ég ríkur? 3. Fer ég í ferðalag? 4. Hvaða álit hefur fólk á mér? 5. Hver er helzti galli á mér? 6. Hvað vantar mig til hess að geta verið ánægður? 7. Hvernig á ég að fara að því að verða heims- frægur? 8. Hvaða málsháttur á bezt við mig? ♦ * . 1. Já, en þú verður að sigrast á miklum erfiðleikum. 2. Aðeins ef þú venur þig í tæka tíð á að s^íara. 3. Já, og þegar þig varir sízt. 4. Öllum geðjast vel að þinni glöðu og léttu lund. 5. Það veizt þú vel sjálfur — og ég segi ekki meira. 6. Tækifæri til að gera það, sem þig langar mest til. 7. Smíðaðu eilífðarvél. 8. Morgunstund gefur gull í mund. ♦ ♦ 1. Nei, en þú færð annað enn betra. 2. Já, ef þú vinnur stærsta vinninginn í liapp- drættinu. 3. Já, suður eða norður, ekki austur né vestur. 4. Flestir eru á einu máli um, að enginn geti staðizt þig. 5. Einmitt sá, sem þú ásakar flesta aðra fyrir. 6. Eina milljón króna. 7. Notaðu hæfileika þína til hins ítrasta, þá muntu verða frægur. 8. Hæst bylur í tómum tunnum. * * 1. Já, vertu rólegur. Bráðum brosir gæfan við þér. 2. Þú verður að leggja þig allan fram, annars verður ekki neitt úr neinu. 3. Áður en árið er úti muntu ferðast langa leið yfir land og liaf. 4. Öllum þykir i raun og veru vænt um þig, en hafa gaman af að erta þig dálítið. 5. Sá, sem þú stríðir mest við að venja þig af. 6. Að vera glaður og í góðu skapi á morgnana. 7. Fljúgðu til tunglsins á svifflugu, og reyndu að koma aftur. 8. Ekki er allt gull, sem glóir. ' ♦ ♦ 1. Já, með aðstoð góðs vinar. 2. Nei, en þú munt aldrei þurfa að þola skort. 3. Þú munt fá að flakka svo mikið, að þú vex-ður leiður á þvi. 4. Ýmsir halda, að þú sért heimskari en þú lítur út fyrir, en það er misskilningur. 5. Að þú ert of gefinn fyrir að setja út á aðra. 6. Enginn er alveg ánægður. En reyndu að taka sjálfum þér fram. 7. Farðu gangandi til Kína. 8. Hver er sjálfum sér næstur. ♦ ¥ 1. Þegar uppfylling óskar þinnar er í nánd, muntu vera hættur að kæra þig um hana. 2. Þú ert rílcur. Gerðu þig ánægðan með það, sem þú hefur. 115

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.