Æskan - 01.03.1969, Blaðsíða 8
VILLI ferðalangur og fíllinn hans.
Þegar Miguel hafði sýnt Villa og Hannibal það mark-
verðasta í borginni La Paz, bauðst hann til þess
að keyra þá yfir bólivísku landamærin yfir í nágranna-
landið Chile.
Snemma næsta morgun fóru Miguel og Villi á stúf-
ana að kaupa nýja ávexti og matvörur á markaðstorg-
inu, og eftir að þeir höfðu komið Hannibal litla vel og
örugglega fyrir aftan á bílnum, var lagt af stað í ferðina
til Chile.
Nokkrum mílum fyrir utan borgina komu þeir út af
steinsteyptu vegunum og urðu nú að aka um holótta
og grýtta stíga, svo að Miguel varð að viðhafa mikla
aðgæzlu á veginum til þess að skemma ekki bílinn.
,,Það er mikið af vegunum í Bólivíu sem ekki eru
steinsteyptir," sagði Miguel við Villa meðan hann var
að sneiða framhjá djúpum holum í veginum. „Þetta á
einkum við um fjallvegina, þar sem mikið regn og
jarðskriður valda því að erfitt er að halda vegunum
í góðu lagi.“
En Villa fannst þeir fara sæmilega hratt yfir, þrátt
fyrir allan hristinginn og vonaði bara að vel færi um
Hannibal.
Þeir fóru í gegnum mörg þorp á leiðinni, þar sem
börnin veifuðu þeim og bentu á Hannibal með undrun,
en hann sat hinn kátasti og veifaði á móti til barnanna
með rananum.
Um hádegisbilið stanzaði Miguel bílinn, til þess að
þeir gætu fengið sér eitthvað að snæða. Meðan á því
stóð veitti Villi því athygli að margar bólivískar kon-
ur voru við erfiðisvinnu úti á byggakri. Þær hjuggu
kornstönglanna með stórri sigð og þegar þær höfðu
tekið fangið fullt af byggstönglunum báru þær þá til
hliðar til þurrkunar í sólskininu.
„Þegar kornið hefur verið þreskt, held ég að bænd-
urnir noti stráin til þess að leggja á húsþökin hjá sér
til hlýinda,“ sagði Miguel.
Villi og Miguel veifuðu til einnar konunnar, en
Hannibal hafði allan hugann við ávaxtakassann sem
Miguel var að opna. Honum fannst að vinir hans ættu
að sýna matnum meiri áhuga en umhverfinu, — ekkert
væri eins mikilvægt eins og að fá sér að borða!
„Við megum ekki tefja lengi,“ sagði Miguel. „Leiðin
frá La Paz til Arica er yfir 300 mílur, og við eigum
langan veg eftir.“
>
Villi og Miguel veifuðu til konunnar sem var að vinna á akrinum, en Hannibal beindi öllum áhuga sínum aö nýju ávöxtunum.
124