Æskan - 01.03.1969, Blaðsíða 15
Frumskógabókin, hin fræga saga Rudyards Kiplings,
varð efni í síðustu teiknikvikmynd Disneys. Þessi
teiknikvikmynd mun nú bráðlega berast hingað til
lands. Margir hlakka til að ferðast með Kipling og
söguhetju hans um hin litríku ævintýralönd frumskóg-
anna.
Rudyard Kipling skrifaði þessa ævintýrabók sína í
litlum kofa í Vermont í Bandaríkjunum. Það var vetur
og á meðan snjóstormarnir hvinu um kofann sat Kip-
ling og skrifaði um brennandi sólskin og hið fjölbreytta
dýralíf og gróður hitabeltisins. Hann kallaði fram end-
urminningar bernsku sinnar frá Indlandi og skrifaði
og skrifaði eins og bergnuminn. — Frumskógabókin
varð til.
Dýrheimnr.
Frumskógabókin er frásagnir af drengnum Movgli,
Ntlu mannsbarni, sem hefur verið skilinn eftir úti í
skógi og þar finnur úlfaflokkur hann. Þetta litla manns-
barn elst síðan upp meðal dýranna, eða réttara sagt
dýrin vernda það og ala það upp, svo Movgli geti
lifað við allar þær hættur, sem frumskóginum fylgja,
og Movgli litli varð bezti vinur úlfa, bjarna, tígrisdýra
og fíla.
Nú hefur verið gerð teiknimynd um þetta efni, og
ber hún meistara sínum, Disney, fagurt vitni. Verkið
var í mótun hjá Disney, þegar hann lézt árið 1966, en
komið það langt áleiðis, að samstarfsfólk hans gat
útfært hugmyndir og teikningar hans. Alls munu 250
starfsmenn fyrirtækis Disneys í Hollywood hafa tekið
þátt í að skapa þessa teiknikvikmynd. í kvikmyndinni
eru 322000 teiknimyndir.
L. M.
Ný teiknikvikmynd frá ‘tEWey.
131
L