Æskan - 01.03.1969, Qupperneq 28
o
o
ff
Stíllinn, sem
endaði aldrei'
Ljóð: STEFÁN JÓNSSON
Lag: PÁLÍNA
☆
(C) C
Það var einu sinni strákur,
G7
sem atti lítinn bíl.
Lítinn bil, bíl, bíl; lítinn, lítinn, lítinn bíl.
Og kennslukonan sagð’onum
að semja um bílinn stíl.
c
Bílinn stíl, stíl, stíl. Semja um bílinn,
bílinn stíl.
c
Hann þorði ekki að hika,
hann hélt hún yrði reið
G7
yrði reið, reið, reið; yrði, yrði, voða reið
og settist við og samdi
þá sögu á þessa leið.
c
Þessa leið, leið, leið. Þessa, þessa,
þessa leið:
c
Það var einu sinni strákur,
sem átti lítinn bíl o.s.frv.
Hvaðan kemur það?
ANANAS
Hér á landi þekkist vart
ananas ööruvísi en niðursoö-
inn í dósum. Ananasávöxturinn
var tyrst þekktur í Ameríku og
árið 1599 var þessi ávöxtur
fluttur í fyrsta sinn til Evrópu.
Nú er hann ræktaður víða og
sérstaklega í hitabeltinu. Anan-
as er skinaldin af samnefndri
plöntu. Er aldinið allt að 0,5—
15 kg á þyngd, og líkist það
köngli furunnar að ytra útliti,
sé ekki tekið tillit til stærðar-
innar. Ananas er safamikill,
sætur, mjög bragðgóður og
ilmandi. Hann er borðaður hrár,
en einnig mjög mikið notaður
til niðursuðu, er hann þá venju-
lega flysjaður og skorinn niður
í sneiðar eða teninga.
EPLI
Epli vaxa víða um alla Evrópu
og á öllum Norðurlöndunum,
nema á islandi, en þau sem
vaxa norðariega eru frekar Iftil.
Epli eru skinaldin af eplatró, og
eru þau talin til svonefndra
kjarnaávaxta. Yzt á þeim er
þunn, frekar seig og oftast fag-
urlega lituð húð („skrælingur"),
undir henni safamikið og Ijúf-
fengt aldinkjöt og innst kjarna-
húsið með fræjunum. Epli eru
misjafnlega stór, en mjög al-
gengt er, að þau séu 150—300
g á þyngd. Af eplum eru ræktuð
fjöldamörg afbrigði, enda hafa
þau verið ræktuð frá ómunatíð.
Þau eru mikils metin, einkum
vegna þess, hversu bragðgóð
þau eru og hversu iengi þau
haldast óskemmd, jafnvel vetr-
arlangt. Epli eru notuð hrá til
matar, en úr þeim er einnig
framleitt eplamauk, eplasafi og
eplavín. Mjög mikið er þurrkað
af eplum til geymslu og soðið
niður.
144