Æskan - 01.03.1969, Síða 32
Steinunn Karlsdóttir:
IiStína Jer tiL
8. KAFLI
Daginn eítir var veðrið jafnvel ennþá fallegra en dag-
inn áður. Það hafði rignt um nóttina og nú glitruðu
daggardroparnir í grænu birkilaufinu. Stúlkurnar byrj-
uðu daginn með því að fá sér bað í volgu vatninu.
„Ó, hvað þetta er hressandi,“ kallaði Lísa til hinna,
sem voru rétt að skreiðast út úr tjaldinu. Skömmu seinna
voru þær líka komnar út í vatnið. Þær fóru í kappsund
yfir vatnið og bar Stína sigur úr býtum. Því brá Karli
heklur en ekki, þegar hann stuttu seinna staidaðist hálf-
sofandi út úr tjaldinu og sá stúlkurnar vera að sóla sig
hinum megin við vatnið. Hann kallaði til þeirra, en
þær heyrðu víst ekki til hans, því að þær gengu inn í
skóginn. Eftir stundarfjórðung syntu þær yfir aftur, og
þá barst að vitum þeirra ilmandi kókólykt. Þær stóðu
þarna svo hríðskjálfandi, að Ámunda varð dauðskelkuð
og dreif þær inn í tjaldið og niður í svefnpokana, og
síðan fengu þær brennheitt kókó til að ylja sér við.
Eftir hádegið var lagt af stað. í þetta sinn var förinni
heitið til Hastings, sem er nokkru stærri en Folkstone.
I>ar var höfð stutt viðdvöl, en síðan var haldið til Brigh-
ton. Þangað var þriggja stunda akstur, en þar ætluðu þau
að eyða deginum og halda síðan til London um kvöldið.
Klukkan var orðin þrjú, þegar þau komu til Brighton.
Svo heppilega vildi til, að sirkusflokkur var staddur
í bænum um þessar mundir, og stúlkurnar vildu óðar og
uppvægar fara þangað. Það varð úr, að stúlkurnar fóru
á sýninguna, en þau Karl og Ámunda fóru að hitta
kunningja sína. María keypti miða fyrir þær á fyrsta
bekk og settust þær þar fullar eftirvæntingar. Þarna voru
mörg skemmtileg atriði, en skemmtilegast af þeim öllum
voru þó trúðarnir. Þeir léku alls konar skrípalæti, steyptu
sér kollhnís og þvældust hver fyrir öðrum. Stína grét af
hlátri og sama gerðu þær María og Lísa. Áður en næsta
atriði byrjaði, var Lísa búin að ákveða að verða trúður,
er hún yrði stór. Tilkomumesta atriðið, að dómi Stínu,
voru fílarnir. Þessar stóru skepnur þrömmuðu inn á
sviðið, svo að allt lék á reiðiskjálfi, þeir stóðu upp á
framfæturna, gengu á mjóum slám og sitthvað fleira.
Þegar sýningunni var lokið, fannst Lísa hvergi.
„Hún hlýtur að hafa farið að kaupa sér eitthvað sæl-
gæti, hún er svo mikill sælkeri,“ sagði María.
„Ég vona það,“ mælti Stína. Þær fóru til sælgætisbúð-
arinnar, sem var rétt utan við sirkustjöldin, en ekki var
hún þar.
„Við skulum fara til mömrnu og pabba og gá, hvort
hún hefur ekki komið þangað," sagði María. „Annars
þykir mér ólíklegt, að hún hafi farið án þess að láta
okkur vita.“
Þær hlupu þangað sem Ámunda og Karl voru, en ekki
hafði Lísa sézt þar, þær fóru því aftur til sirkustjald-
anna og spurðust fyrir um hana, allir hristu höfuðið og
svöruðu neitandi nerna lítil stúlka, sem varð á vegi þeirra.
Hún benti í áttina að einum vagninum og sagði, að
stúlka hefði farið inn í þennan vagn. Þetta var auðsjáan-
lega vagn trúðanna, því að stór mynd af trúði var fest
utan á hann.
Stúlkurnar flýttu sér að vagninum, því að þær voru
orðnar mjög áhyggjufullar út af Lísu. Þær gægðust inn
um gluggann og sáu nokkra menn sitja á stólum, en
einn mannanna virtist vera miklu minni en hinir og þar
að auki var hann í trúðabúningi og stóð fyrir framan
spegilinn og athugaði sig gaumgæfilega. María barði á
dyrnar, og þá var kallað til hennar að koma bara beint
inn. Stúlkurnar opnuðu dyrnar og litu í kringum sig,
en ekki sáu þær Lísu. Þeim fannst þó trúðurinn eitthvað
undarlegur. Þær spurðu mennina, hvort þeir hefðu séð
stúlku og lýstu henni nákvæmlega. Mennirnir litu hver
til annars og kímdu. Síðan horfðu þeir á trúðinn, sem var
eitthvað grunsamlegur og leit niður fyrir sig. María þreif
af honum hattinn.
„Lísa!“ hrópaði hún. „Hvað ertu eiginlega að gera
liér og það í þessum búningi?"
Lísa gat ekki stillt sig lengur og fór að hágráta.
„É-ég ætlaði að fara með þeim og gerast trúður," snökti
hún.
„Og hvað með okkur hin? Hugsaðu um mömrnu og
pabba, hvað þau hefðu orðið hrædd um þig.“
„Ég hugsaði ekkert út í það, en ég ætlaði að skrifa
þeim, þegar vagnarnir væru komnir af stað,“ sagði Lísa
og saug upp í nefið. „En lofið mér því nú að segja ekki
mömmu og pabba frá þessu.“
„Við skulum ekki segja þeim neitt, en þú verður að
lofa að gera þetta ekki aftur,“ sagði María og var nú
dálítið mildari. „En nú eru pabbi og mamma örugglega
farin að bíða eftir okkur og við skulurn flýta okkur
heirn."
Lísa kvaddi alla mennina með handabandi og leit á
148