Æskan - 01.10.1976, Blaðsíða 5
í fiskahúsinu eru 11 fiskaker, sem taka samtals
^2 tonn af sjó og vatni. Lögð er áhersla á að hafa til
sýnis á hverjum tíma sem flestar tegundir
'slenskra fiska. Þar eru að jafnaði um 25 tegundir
,iska til sýnis og auk þess nokkur fjöldi annarra
s*dýra eins og krabbar, sniglar, skrápdýr og
lindýr. Fjöldi tegunda er nokkuð mismunandi, því
^isjafnlega gengur að halda hinum ýmsu teg-
undum lifandi í búrum. Sumir fiskar lifa til dæmis
árurn saman í fiskabúrum, en aðrar tegundir
aöeins í stuttan tíma.
Sjór og vatn í miklu magni er nauðsynlegt til að
hae9t sé að sýna fiska og önnur sædýr. Þetta réði
að nokkru staðsetningu Sædýrasafnsins, því að
auðvelt er að dæla sjó úr 50 metra djúpri borholu
°9 upp f gegnum kerin. Vatn fæst úr 8 metra djúpri
borholu, en nægt vatn rennur neðanjarðar á milli
^aunlaga til sjávar. Til að ætíð sé hreinn sjór og
,efskt vatn í fiskakerjunum, renna sífellt í gegnum
kerin um það bil 30 tonn á klukkustund.
Hór á eftir verður stuttlega gerð grein fyrir helstu
,e9undum fiska og dýra sem til sýnis eru í Sæ-
^frasafninu.
Þorskurinn er tvímælalaust þýðingarmesta fisk-
tegund okkar. íslenski fiskiðnaðurinn byggist að
langmestu leyti á þorskinum, ef nefna á einstaká
fisktegund annarri frekar.
Það gengur yfirleitt vel að ala þorsk í fiska-
söfnum, því að þorskurinn er ekki mjög viðkvæmur
fiskur. Þorskurinn er gráðugur mjög og er hægt að
ala hann á hvers konar fiskmeti.
Heimkynni þorsksins eru norðanvert Atlantshaf
og norðanvert Kyrrahaf, en fiskimiðin við fsland
hafa talist til þýðingarmestu þorskmiða heims.
Þorskurinn heldur sig mest við sjávarbotninn, en
leitar einnig upp í sjóinn í ætisleit. Þorskurinn er
mest á landgrunninu, en hefur veiðst á allt að 400
faðma dýpi, en á slíku dýpi geta hinir stærstu skut-
togarar veitt.
Þorskurinn hrygnir seinnihluta vetrar á 50—200
m dýpi og getur hrognafjöldinn verið frá 2—9
milljónir. Þorskurinn verður kynþroska 1—10 ára
gamall, en slíkt er mismunandi eftir því við hver
skilyrði fiskurinn hefur alist upp. Þorskurinn er
geysilega gráöugur og étur hann allflesta við-
3