Æskan - 01.10.1976, Blaðsíða 12
E
inu sinni var konungur, sem lifði ásamt dóttur
sinni í stórri höll norðarlega í Síberíu. Dóttir konungsins
var forkunnarfögur, og þau bjuggu einnig í einhverri
dýrlegustu höll sem fyrir fannst í öllum heimi. En sá
böggull fylgdi skammrifi að konungurinn var dauð-
hræddur um að einhvern góðan veðurdag mundu þau
hvergi eiga heima, og nú viljið þið aö sjálfsögðu vita
hvers vegna.
Mjög kalt er í Síberíu og þess vegna var hin dýrlega höll
þeirra feðginanna gerö úr ískristöllum. Kaldir vindar leika
um landið og sér í lagi eru þeir Norðri og Austri ráðríkir.
Þeir höfðu einmitt komið til konungsins og sagt: ,,Þú
verður að segja okkur nýja sögu í hverri viku, ef við
eigum að halda áfram að vera hér. Kristallsveggirnir i
þinni dýrlegu höll bráðna ef við förum og þá eigið Þ'0
hvergi heima."
Þetta var vissulega ærið áhyggjuefni fyrir konunginn,
því hann var ekki mikill sögumaður. Hann sagði dóttur
sinni frá áhyggjuefni sínu og þá reyndist hún jafn snjöll
og hún var fögur. Hún sagði við föður sinn: „Láttu mig
penna, blek, uglu og græna regnhlíf og þá skal ég segja
þeim sögu."
Konungurinn lét dóttur sína fá hlutina sem hún baó
um. Þá settist hún á silkisessuna sína og spennti upP
regnhlífina. Svo dýfði hún pennanum í blekið og stakk
pennanum í nef uglunnar. Síðan sagði hún við ugluna-
Elvis Presley eldist eins og
aðrir. Nú er hann orðinn 41
árs. Á afmælisdaginn sinn var
hann staddur í Sun Valley,
vetraríþróttastaðnum fræga í
Bandaríkjunum. Áður fyrr
hafði Elvis aldrei sýnt áhuga á
vetraríþróttum, en nú langaði
hann að reyna að fara á skíði.
Hann vildi ekki láta fólk
þekkja sig og fékk sér skíða-
húfu úr ull, nokkurs konar
lambhúshettu, og sá þá rétt í
augun á honum. En Elvis var
svo óheppinn að fá útbrot
ÆSKAN - Felumyndir,
og ofnæmi af ullinni og
stokkbólgnaði allur í framan.
Það var sóttur til hans læknir
þarna úr héraðinu, og var
hann fljótur að ráða bót á
meinum söngvarans, svo
hann varð aftur sléttur og fínn
í framan. Elvis var lækninum
svo feginn fyrir hjálpina að
hann gaf honum nýjan bíl
með kæru þakklæti fyrir
lækninguna. Sagt er að
læknir þessi hafi aldrei áður
fengið svona góða borgun
fyrir að skrifa lyfseðil fyr'r
einni túpu af smyrslum.
skrítlur og krossgáta í hverju blaði.
10