Æskan - 01.02.1985, Side 3
ÆSKAN
2. tbl 1985. 86. árg.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn:
Eðvarð Ingólfsson, heimas. 687338,
Karl Helgason, heimas. 76717.
Skrifstofan er að Eiríksgötu 5, 3. hæð. Sími
ritstjóra 10248; afgreiðslu blaðsins 17336; á
skrifstofu 17594.
- Áskriftargjald jan.- júní 1985: 400 kr. Gjald-
dagi er 1. mars. Verð í lausasölu 120 kr. -
Utanáskrift: Æskan, pósthólf 523, 121 Reykja-
vík. Póstgíró 14014.
Útlit og umbrot: Jóhannes Eiríksson
Útgefandi: Stórstúka íslands.
Prentsmiðjan Oddi hf.
"N
Barnaritnefnd Æskunnar: Þröstur Bjarnason 9 ára, Bóas
Valdórsson 8 ára, Elísa Kristinsdóttir 11 ára og Björg
Stefanía Sigurgeirsdóttir 12 ára.
EFNISYFIRLIT
Viðtöl:
Gagnvegir - Sólveig og Valgerður Franklins-
dætur ræða við ömmu sína, Valgerði Sigurð-
ardóttur Austmar...................... 10
„Alltaf langað að leika strák í matrósafötum"
- Magnús Ólafsson/Bjössi bolla í opnuviðtali
..................................... 15
Gagnvegir - Rætt við álfkonuna í Túnklöpp
...................................... 37
ÁGÆTI
LESANDI
Nú er komið að þínum þætti í því að móta blaðið.
Hvað finnst þér um efni þess? Vilt þú að einhverju verði
breytt? Við treystum þér til að svara spurningum í
skoðanakönnuninni á bls. 28 og senda okkur við fyrsta
tækifæri.
Sögur:
Einbeitni ........................... 8
Skjaldbakan og hérinn............... 25
Dularfulli maðurinn ................ 31
Strákurinn sem þorði ekki í skólann..40
Þættir:
Æskupósturinn....................... 20
í tómstundum - frímerki............. 29
Æskanspyr .......................... 34
Hljómsveitakynning - Duran Duran.....44
Við bökum sjálf .................... 45
Sannleiksopnan ..................... 50
Ýmislegt:
Bamaútvarp í Danmörku ............... 6
Verðlaunagetraun Flugleiða og
Æskunnar ........................... 12
Mynd mánaðarins .................... 14
Þrautir ...................... 18, 19, 49
Draumaprinsar og prinsessur......... 26
Kardemommubærinn.................... 42
Forsíðumyndina - af Magnúsi Ólafssyni sem
Bjössi bolla — tók Heimir Óskarsson.
Heimir tók einnig mynd af hljómsveitinni
Grafík er birtist 1. tbl.
Aðalmynd á forsíðu 1. tbl. er tekin af Jóhann-
esi Eiríkssyni. Hún er frá Rjúpnagili í Mýrdal.
Heimir tók myndirnar af Ásgeiri Sigur-
vinssyni, Karli Ágústi Úlfssyni og Eggerti Þor-
leifssyni sem birtust í blaðinu og á forsíðu.
Glæsileg getraun
Enn efnum við til verðlaunagetraunar í samvinnu við
Flugleiðir. í þetta sinn er áfangastaðurinn Salzburg í
Austurríki. Tveir getspakir og heppnir áskrifendur vinna
til aðalverðlaunanna. Við birtum spurningarnar aðeins í
þessu blaði svo að þú þarft að bregða fljótt við. Svörin
ritar þú á svarseðilinn — bls. 27 og getur þannig
sent okkur allt í einu lagi.
Bamaritnefndin
Jafnframt því að setja alla áskrifendur í ritnefnd (með
því að óska sérstaklega eftir áliti þínu og allra hinna!)
höfum við sett á laggirnar ritnefnd sem verður okkur til
aðstoðar við að meta niðurstöður könnunarinnar og
gefa okkur góð ráð um efnið. Mynd af nefndarmönnum
er hér fyrir ofan.
Vertu með!
Þú mátt ekki bregðast — þá fer allt út um þúfur! Það er
afar mikilvægt að þú segir okkur álit þitt. Því ljúkum við
þessu spjalli með joví að endurtaka: Vertu með - sendu
okkursuar.
Með kærri kveðju
Eddi og Kalli.
_____________________________________________J
ÆSKAN 3