Æskan - 01.02.1985, Side 10
ov
Fór I gönguferðir
með Matthíasi
Jochumssyni
Valgerður Sigurðardóttir Austmar
er móðuramma okkar, fædd 17. nóv-
ember 1909 á Húsavík. Hún átti að-
eins heima þar í tvö ár en þá fluttist
hún til Akureyrar og ólst þar upp.
Foreldrar hennar hétu Svanfríður
Jónasdóttir Austmar og Sigurður
Helgi Frímann Jónsson Austmar.
Móðir ömmu tók mikinn þátt í fé-
lagsmálum. Hún var einnig mikil
handavinnukona og saumaði m. a.
altarisdúk sem hún gaf kirkjunni á
Akureyri. Faðir ömmu vann hjá
Eimskip á Akureyri og sá um mest
allan rekstur fyrir félagið þar á þeim
árum. Amma átti 8 systkin, 5 bræður
og 3 systur.
Þegar amma var að alast upp á
Akureyri var ýmislegt skemmtilegt
um að vera. Amma var m. a. í
barna- og unglingakór Akureyrar og
ungtemplarareglunni og segir hún
það hafa veitt sér mikla ánægju.
Einnig var mjög mikið sungið heima
hjá henni. Og á amma sér alltaf sitt
eftirlætisskáld. Það skáld heitir Matt-
hías Jochumsson. En hann var meira
en eftirlætisskáld ömmu, því að hann
var góður heimilisvinur og tíður gest-
ur heimilisins. Amma minnist þess
að hún fór oft í gönguferðir með
Matthíasi þegar hún var lítil stelpa,
og voru þær bæði skemmtilegar,
hressandi og fróðleiksríkar.
Rætt við
Valgerði Sigurðardóttur
Austmar, 75 ára
Af því að amma ólst nú upp á
Akureyri þá datt okkur í hug að
spyrja hana hvernig haldið var upp á
öskudaginn þar?
„Á öskudaginn var ýmislegt um að
vera. Við krakkarnir vöknuðum
klukkan 6 eða jafnvel fyrr og þá
drifum við í því að mála okkur og
klæðast hinum og þessum furðuföt-
um. Ég var t. d. eitt sinn kerling og
drottning. Og svo var farið á kreik
klukkan 7. Kötturinn var þá sleginn
úr tunnunni, söngröddin hituð upp
og þrammað af stað í búðirnar og
sungið og fengið sælgæti fyrir söng-
inn. En það var nú ekki bara sungið
fyrir sælgæti í búðunum heldur líka
til ánægjuauka á spítalanum á Akur-
eyri.“
Árið 1928 fór amma til Reykjavík-
ur í fyrsta skipti og var þar á meðan
hún var í Kvennaskólanum en hún
lauk prófi úr honum árið 1930. Þá fór
amma aftur heim til Akureyrar.
Árið sem hún kom heim úr skólan-
um fór hún á Alþingishátíðina og
gleymir aldrei hvað það var margt
fólk þar því að meiri hlutinn varð að
standa allan daginn vegna fjöldans.
Og svo bætti ekki úr skák að það
gerði mjög vont veður um kvöldið,
með roki og mikilli rigningu. Nú,
amma kom heim af Alþingishátíð-
inni og átti heima á Akureyri fram til
ársins 1937 en þá fluttist hún alfarið
til Reykjavíkur og var hennar fyrsta
heimili í höfuðborginni við Lauga-
veginn.
Amma var tvígift og var seinni
maður hennar afi okkar, Sigurgeir
10 ÆSKAN