Æskan - 01.02.1985, Side 32
o
r
Litla systir mín var afar hrifin af
garðhúsinu hans afa. Hún skoðaði
allt gaumgæfilega. — Hvað er þetta í
blómapottinum? spurði hún áhuga-
söm. — Það er hrossatað, svaraði afi.
— Ha, sagði hún yfir sig undrandi.
Hvernig komst þú hesti hingað inn?
^ Magga
Frændi minn var ósköp vesældar-
legur þegar ég sá hann á sjúkrahús-
inu. Hann hafði dottið og brákað
fótlegg.
- Hvað er að? spurði ég.
- Ég vildi að Páll væri hérna,
kveinaði hann. •
— Nú, sagði ég, ég hélt að þið
væruð ekki lengur vinir.
- Einmitt, sagði hann, þess vegna
viidi ég að hann væri hér í minn stað.
Palli
Vissir þú þad?
Fjöldi dýra leggst í dvala um vetur.
Með því er átt við að þau falla í svo
djúpan svefn að þau nánast hætta að
anda. A vorin vakna þau svo aftur.
Fisktegund nokkur í Afríku, nefnd
lungnafiskur, getur legið þannig í
dvala allt að fjórum árum. Okkur
grunar að þá sé fisk fari að svengja!
Þar sem börnin
eru keypt
Þegar ég tók systur mína tveggja
ára í fyrsta sinn með mér í stórmark-
aðinn vakti hún óneitanlega tals-
verða athygli. Við fórum í biðröðina
við kassana og þá sá hún að nokkrar
konur báru börnin sín í burðarpok-
um framan á sér.
- Keypti mamma mig hér þegar
ég var smábarn eins og þessar konur
voru að gera? spurði hún hávær.
Það brostu margir út undir eyru í
kringum okkur. Binna.
Litli bróðir minn situr oft sem
límdur við sjónvarpið. Þegar
mamma kom heim úr vinnu um dag-
inn sá hún að hann hafði sest fyrir
framan það án þess að hafa fyrir að
þvo sér eftir útileiki. — Þú hefur víst
ekki séð sápu og vatn í dag, vinur
minn, sagði hún. - Nei, mamma,
svaraði strákur, hvenær átti sá þáttur
að vera? Villi.
Hundur er horfinn
Bróðir vinkonu minnar varð miður
sín þegar hundurinn þeirra týndist.
— Þetta verður allt í lagi, sagði
vinkona mín. Við setjum bara
auglýsingu í blað, þá kemur hann í
leitirnar.
— Láttu ekki svona, Systa, sagði
hann, Fido getur ekki lesið.
En það var sannarlega bót í máli
fyrir hann að fólkið, sem fann Fido,
kunni þá list að lesa!
Stína.
ÞÚ RÆÐUR HVORT
ÞÚ TRÚIR ÞVÍ!
• Georg I. Englandskonungur
kunni ekki stakt orð í ensku. Hann
var fæddur í Hannover og átti lengst
af heima þar.
• í þrumuveðri, sem kom í Lapleau
í Frakklandi, sló eldingu niður í fjár-
rétt. Drap hún allar svörtu kindurnar
í réttinni, en þær hvítu sakaði ekki.
• Zoraster, hinn nafnkunni löggjafi
Persa, nærðist ekki á neinu nema osti
í þrjátíu ár.
• James Lanvier í Edinborg hnerr-
aði 690 sinnum í röð árið 1927.
• Dóttir Shakespeares kunni hvorki
að lesa né skrifa.
• 17. júní var merkisdagur í lífi Jan
Sobieski, sem var Pólverjakonungur
á 17. öld. Hann fæddist 17. júní, var
krýndur 17. júní, giftist 17. júní og
dó 17. júní.
• Henrich Laufer í Dusseldorff hélt
öðru auganu Iokuðu í 90 daga.
• Minnsta kirkja í heimi er í Laton-
ia í Kentucky. Þar eru aðeins 3 sæti.
• Joseph Conrad, hinn ágæti
stílsnillingur enskrar tungu, kunni
ekki stakt orð í ensku þegar hann var
25 ára.
• Themistokles þekkti alla 20.000
íbúa Aþenuborgar og gat ávarpað þá
með fornafni.
• Kyros Persakonungur þekkti
hvern einasta mann í her sínum og
gat nefnt hann með nafni.
Smælki
— Halló, er það hjá „Býflugna-
blaðinu". Ég ætlaði að auglýsa
býflugnatorfu til sölu.
32 ÆSKAN