Æskan

Årgang

Æskan - 01.02.1985, Side 31

Æskan - 01.02.1985, Side 31
o maðurinn Smásaga eftir Eyrúnu Ólafsdóttur og Hrafnhildi Tryggvadóttur Dularfull Einu sinni voru hjón. Þau hétu Gísli og Guðfinna. Þau áttu eina stelpu sem hét Ásdís og var 14 ára. Þau áttu heima á sveitabæ sem hét Dalsel. Dalsel var mjög fallegur bær. Hann stóð við sjóinn. Fallegur garð- ur var í kringum húsið með trjám og blómum. Á bænum voru mörg dýr, 11 hestar, 48 hænur, 27 kýr og 56 kindur. Eitt sinn þegar Ásdís var að taka til í garðinum sá hún hvar maður kom gangandi eftir ströndinni. Ás- dísi þótti maðurinn mjög grunsam- legur. Honum virtist brugðið þegar hann sá hana og það var eins og hann væri að reyna að fela sig á bak við stórgrýtið í fjörunni. Allt í einu sneri maðurinn við og Ásdís tók þá það ráð að elta hann. Hún batt hundinn sinn, Kol, við girðingarstaur svo að hann kæmi ekki upp um hana. Ásdís gætti sín á því að vera alltaf 100 metrum á eftir ókunna mannin- um og láta hann ekki sjá sig. Hún elti hann í langan tíma. Þrem stundum síðar komu þau að skógi. Þar settist maðurinn á stein. Ásdís sá að hann fór ofan í vasa sinn og tók upp brauðsneið og mjólkurflösku en einnig kom demantshálsfesti upp úr vasa hans. Hann flýtti sér að láta hana í vasann aftur og leit flóttalega í kringum sig. Ekkert benti til þess að hann hefði séð hana. Hún virti manninn betur fyrir sér. Hann var með dökkar augnabrúnir og svart hár og grimmdarlegur á svipinn. Hún trúði honum til alls ills. Hún þóttist viss um að hann hefði stolið hálsfest- inni. Þegar maðurinn hafði borðað nægju sína lagðist hann til svefns. Ásdís var líka orðin syfjuð og þreytt eftir alla gönguna og henni rann fljótlega í brjóst. Víkur nú sögunni heim að Dalseli. Þegar líða tók á daginn fór Kolur að gerast órólegur. Hann tók að gelta hástöfum. Gísli og Guðfinna komu út og leystu hann. Þá tóku þaU eftir því að Ásdís var hvergi sjáanleg og urðu hrædd. Kolur hljóp fram og aftur en staðnæmdist öðru hverju og horfði í þá átt sem Ásdís hafði gengið í. Hjónin horfðu hvort á annað og ákváðu að elta Kol. Þau grunaði að hann gæti rakið slóð Ásdísar. „Kol- ur, finndu Ásdísi,“ skipaði Gísli og Kolur tók strax á rás. Þau fylgdu honum eftir. Eftir langa göngu komu þau að skógi. Kolur hljóp inn á milli trjánna og eftir litla stund hafði hann fundið Ásdísi. Hún lá í roti en rankaði fljót- lega við sér. Það blæddi dálítið úr handlegg hennar og höfði. Pabbi hennar hljóp að næsta bæ og hringdi á sjúkrabíl en mamma og Kolur biðu hjá henni. Sjúkrabíllinn kom von bráðar. Ásdís var sett á börur og borin dálítinn spöl því að sjúkrabíll- inn komst ekki inn í skóginn. Mannna fór með henni á sjúkrahúsið en pabbi fór heim til að mjólka kýrn- ar og hugsa um skepnurnar. Næsta morgun vaknaði Ásdís með svolítinn verk í handleggnum og höfðinu. Mamma sat hjá henni og stytti henni stundir. Ásdís sagði henni alla sólarsöguna og mömmu varð mikið um og hringdi strax á lögregluna. Eftir símtalið sagði mamma að lögreglan hefði sagt að það væri einmitt nýlega búið að stela verðmætri hálsfesti frá ríkri, heimsþekktri konu. Hún sagði að lögreglumaður kæmi fljótlega nieð myndir af grunuðum mönnum til að athuga hvort Ásdís þekkti hann aftur þar. Lögreglumaðurinn koni með myndirnar og hann hafði ekki flett albúminu lengi er Ásdís þekkti manninn aftur. Lögreglan flýtti sér að lýsa eftir manninum í útvarpi, sjónvarpi og blöðum og það leið ekki á löngu þar til hún fékk upplýsingar sem leiddu til handtöku hans. Ásdís fór af spítalanum daginn eft- ir og fékk sérstaka viðurkenningu frá lögreglunni fyrir að hafa komið henni á sporið. ÆSKAN 31

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.