Æskan

Årgang

Æskan - 01.02.1985, Side 29

Æskan - 01.02.1985, Side 29
Hálfdan Helgason o Söfnun frímerkja Því hefur stundum verið líkt við það að læra að synda að hefja söfnun frímerkja. Maður fikrar sig varlega út í grynnri endann og æfir sundtökin áður en lengra er haldið. Því örugg- ari sem sundtökin verða og áræðið vex því lengra hættir maður sér út á djúpið og fyrr en varir er hann farinn að stinga sér í dýpri enda laugarinn- ar. Þeir sem ekki eru þegar búnir að gera það upp við sig hverju og hvern- ig þeir ætla að safna ættu að byrja á að „æfa sundtökin“ svolítið. Ég tel að það sé best gert með því að kaupa pakka í frímerkjaverslun með frí- merkjum frá öllum heiminum. Slíka pakka er hægt að fá mismunandi stóra en skynsamlegast er að kaupa eins stóran pakka og fjárhagurinn leyfir, t. d. með 500-1000 frímerkj- um. Það er nefnilega svo að sé byrj- að á því að kaupa lítinn pakka, 200— 300 frímerki og síðan annan í viðbót, þá fær maður nánast sams konar merki aftur og ekki stækkar safnið við það. Nú er ég hér farinn að tala um peninga og það er rétt að þið gerið ykkur grein fyrir því strax í upphafi að flestallt tómstundastarf kostar einhverja peninga. Það er bara um að gera aö hafa taumhald á útgjöld- unum og vera nokkurn veginn viss um að það sem keypt er veiti þá ánægju sem til er ætlast. Einn kostur- inn við frímerkjasöfnun er sá að hægt er að haga henni algjörlega með til- liti til fjárhags hvers og eins. Hjálpartæki Fáein hjálpartæki er þó óhjá- kvæmilegt að eignast og nefni ég hér í byrjun töng sem nauðsynlegt er að nota í hvert sinn sem föndrað er við frímerkin. Það er ófært að notast við fingurna eingöngu. Jafnvel hreinir fingur skilja eftir húðfitu á merkjun- um og alltaf er hættara við skemmd- FRÍMERKJAGETRAUN 140 3AMRE OSTERREICHISCHE EISENBAHNEN REPUBLIK OSTERREICH Þegar þessar línur eru skrifaðar er ekki vitað um undirtektir lesenda við frímerkjagetraun 1. þáttar. Vonandi senda margir lausnir og verða nöfn vinningshafa birt í næsta þætti. Hér kemur svo önnur getraunin og er hún fólgin í því, eins og í fyrra skiptið, að þekkja frímerkin sem hér eru sýnd. Skrifið því á blað í réttri röð hvaðan þessi frímerki eru og sendið þættin- um fyrir 15. apríl. Dregin verða út 5 nöfn sem rétt svör senda og fá þau að launum frímerkjapakka með 1000 mismunandi frímerkjum. Verið öll dugleg að senda þættinum lausn á þessari auðveldu getraun og munið að utanáskrift þáttarins er: FRÍMERKJ AÞÁTTUR ÆSKUNNAR, Pósthólf 11055 131 Reykjavík. um ef töng er ekki notuð. Best er að endi tangarinnar sé flatur og spaða- myndaður og ekki má hann vera hrufóttur að innanverðu. Þá er nauð- synlegt að fá sér bók til að setja merkin í og í fyrstu er innstungubók heppilegust. Síður innstungubókar- innar eru með plastræmum sem mynda nokkurs konar vasa, sem auð- velt er að setja merkin í. Auðvelt er líka að færa merkin til, bæta í vasana eða raða merkjunum eins og þú vilt hafa þau á albúmsblöðum. Mundu bara að vera varkár þegar þú setur merkin í vasana eða tekur þau úr innstungubókinni. Notaðu alltaf frímerkjatöng. Flokkun merkjanna Nú er að taka pakkann og flokka merkin. Þeirn má raða eftir löndum eða eftir mótífum. Mótíf er annað orð yfir myndefni merkjanna og mik- ið notað. Þegar flokkuninni er lokið er hægt að eiga margar ánægjustund- ir yfir frímerkjunum og það fer varla hjá því að smám saman, eftir því sem fjöldi merkjanna eykst, verða sum lönd áhugaverðari en önnur eða að safnarinn finnur efni sem fellur að áhugamálum hans. Sundtökin eru sem sé að verða öruggari en fyrst og safnarinn fer að gera það upp við sig hvernig hann ætlar að takmarka söfnunina. Takmörkunin er auðvitað háð því hversu auðvelt það verður safnaranum að bæta í safnið og það er Ijóst að auðveldast er að safna frímerkjum frá eigin landi. fsland er skemmtilegt frímerkjaland. Undan- tekningalítið tengist myndefni merkjanna landinu, menningu þess og þjóðlífi. Útgáfur eru tiltölulega fáar á ári og vandað er til myndgerð- ar þeirra og prentunar. í sumum til- vikum hefur verið leitað til heimsfrægra listamanna til að tryggja það að árangurinn verði sem allra bestur. ÆSKAN 29

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.