Æskan - 01.02.1985, Qupperneq 17
o
strák í matrósa fötum‘ ‘
syngja með okkur. Dauðaþögn ríkti.
Þetta er ein pínlegasta samkoma sem
ég hef verið á. Eg sá að Þorgeiri,
karlanganum, var farið að líða mjög
illa - sviti spratt fram á enni hans og
þegar skemmtiatriðunum var lokið
sá ég hann taka blátt strik út úr
húsinu.“
- Hvenær fékkstu hugmyndina
að Bjössa bollu?
„Það er dálítil saga að segja frá
því. Ég á mynd af mér frá því að ég
var 4—5 ára og þar var ég í matrósa-
fötum sem mamma saumaði á mig. í
hvert sinn senr ég virti fyrir mér
myndina langaði mig til að leika í
svona matrósafötum. Svo gerðist það
í fyrrasumar að við Sumargleðimenn
settumst niður og sömdum leikþátt
um strák í áðurnefndum fötum. Við
kölluðum hann Pétur prakkara.
Honum var mjög vel tekið og leik-
þátturinn brást aldrei. Eftir þetta
kviknaði hugmyndin hjá mér að
Bjössa bollu. Hann hefur alla tíð ver-
ið í miklum metum hjá mér eða frá
því að ég sá hann fyrst í Æskunni.
Æskan hefur alltaf komið inn á mitt
heimili.“
— Fær Bjössi góðar undirtektir
hjá börnunum?
„Já, hann virðist hitta í mark. Þau
taka honum vel og vilja ólm fá að
spjalla við hann þegar þau sjá hann.
Börn eru æðislega kröfuhörð og
hreinskilin og láta strax í ljós hvort
manni tekst vel upp eða ekki. Ég
skal segja þér að á bolludaginn var
ég beðinn um að koma í verslun í
gervi Bjössa og ætlaði allt að verða
vitlaust þegar hann birtist. Það voru
svo margir sem vildu fá að tala við
hann. Það er svo merkilegt að unt
leið og ég er kominn í gervi Bjössa er
eins og hann taki völdin af mér og ég
gleymi hvað ég heiti.“
Mikinn áhuga á handbolta
- Er eitthvað sérstakt framund;
hjá Bjössa?
„Já, það er hitt og þetta. Til dæmis
hefur komið til tals að hann syngi inn
á plötu og leiki í kvikmynd. Það
verður spennandi að sjá framvindu
þeirra mála, hvort af verður."
- Hvaða áhugamál áttu önnur
utan leiklistarinnar?
„Ég hef mikinn áhuga á handbolta
enda lék ég með meistaraflokki FH í
rúm 10 ár. Við tókum þátt í Evrópu-
keppni, íslandsmeistarakeppni og
bikarkeppni. Ég fer oft á völlinn til
að fylgjast með mínum göntlu félög-
um og leik stundum æfingaleiki."
- Ertu giftur og áttu börn?
„Já, konan mín heitir Sonja Harð-
ardóttir. Við eigum tvo stráka, 13 og
19 ára, og 9 mánaða stelpu. Við
skýrðum hana Sonju Maggý í höfuð-
ið á okkur báðum.“
— Að lokum. Ætlarðu að vera
lengi enn í skemmtanaiðnaðinum?
„Ég vona að ég geti verið í honum
í 10-15 ár í viðbót. Mér finnst ég eiga
mikið eftir, kannski vegna þess að ég
byrjaði svo seint. Annars er alltaf
erfitt að spá um framtíðina og full-
yrða nokkuð um þessi mál. Þetta
gæti endað einn góðan veðurdag,"
sagði Magnús Ólafsson bolla.
ÆSKAN1 7