Æskan - 01.02.1985, Blaðsíða 21
o
UPPSKRIFT AF
HJARTAFYLLI
Hæ, hæ, Æskupóstur.
Mig langar til að koma á framfæri
góðri uppskrift af hjartafylli fyrir þá
sem þurfa á henni að halda. Hún er
svona:
Slatti af dugnaði,
mikið af hlýju til náungans,
að minnsta kosti ein skeið af
lítillæti,
hjálpsemi,
góðvild,
trú á guð í lífi og starfi.
Kurteisi og hjálpsemi kostar ekk-
ert. Gefum því öðrum ómælt af
hvorutveggja.
E. S. M. 10 ára, Skagafirði.
ÚRIÐ OG MÚSA-
GILDRAN
Kæra Æska, hér eru tveir brand-
arar:
— Hvernig gengur nýja heimatil-
búna úrið þitt?
— Mjög vel. Það fer klukku-
tímann á hálftíma.
— En hvernig reyndist heimatil-
búna músagildran?
— Ágætlega. Tíu mýs eru búnar
að hlæja sig í hel.
Með bestu kveðju, Margrét Drífa
Guðmundsdóttir, Hafnarfirði.
BRÉF FRÁ KLEPP-
JÁRNSREYKJUM
Kæri Æskupóstur.
Mig langar til að segja þér frá því
livað við hérna á Kleppjárnsreykjum
gerum okkur til afþreyingar. Hér er
ekki mikið félagslíf en við bætum
okkur það upp á sunirin með því áð
safnast saman og fara í boltaleiki.
Sunt okkar fá vinnu á sumrin. Á
veturna förum við í snjókast og renn-
um okkur á sleðum. Svo höfum við
alltaf eitthvað að læra.
Elstu krakkarnir í skólanum eru
tólf ára en þeir yngstu sjö ára.
Hundrað nemendur eru í skólanunt
og koma þeir með skólabílnum víðs
vegar að. Hér er sundlaug, sjoppa og
barnaheimili. Á barnaheimilinu eru
börn úr næsta nágrenni, t. d. úr
Reykholti. Hér eru sjö gróðurbýli og
þar fá sum okkar vinnu á sumrin.
Ég á hest sem heitir Glókollur.
Það á að fara að temja hann.
Skemmtilegasta námsgreinin mín er
íþróttir. Mér finnst gaman í sundi.
Við hérna á Kleppjárnsreykjum
erum flest áskrifendur að Æskunni. í
blaðinu þykir mér skemmtilegast að
lesa Æskupóstinn, einnig viðtölin,
þrautirnar og Ertu góður leynilög-
reglumaður?
Að lokum ætla ég að senda ykkur
vísu eftir mig:
Blesi
Blesi heitir hestur einn,
hann er alltaf voða hreinn.
Ýmislegt hann kann,
blesóttur er hann,
á hestamóti vann.
Bið
Ég sit hér og bíð,
þetta er erfið tíð.
Þau lofuðu að koma klukkan átta
og nú fer ég bráðum að hátta.
Með kærri kveðju,
Hlín Helga Guðlaugsdóttir, Klepp-
járnsreykjum, 320 Reykholti.
Hve margir hringir?
Hér reynir á þolinmæðina. Þú þarft að
telja alla hringi á myndinni. Við verð-
launum þrjár réttar lausnir. Sjá bls. 27.
ÆSKAN 21