Æskan - 01.02.1985, Qupperneq 24
ov
DAS KAPITAL
Hæ, Æskupóstur!
Ég er nýbúinn að fá mér plötuna
Lili Marlene með Das Kapital og hef
varla hlustað á annað síðan. Mig
langar að biðja ykkur um að fræða
5. Welcome To Pleasure Dome með
Frankie Goes to Hollywood
85 stig
Næstar í röðinni komu The Riddle
með Nik Kershaw og Unforgettable
Fire með U2.
Það vakti athygli okkar sem fórum
yfir kosningaseðlana hversu sterk
áhrif rás 2 hefur á músíksmekk
þeirra sem eru búsettir innan hlust-
unarsvæðis rásarinnar. Þar hafa
Wham og Duran Duran algjöra yfir-
burði en um leið og komið er út fyrir
hlustunarsvæði rásarinnar tekur gjör-
ólíkur músíksmekkur við. Þar halda
menn tryggð við bárujárnsrokkara á
borð við Iron Maiden, Whitesnake,
Kiss, Rainbow og Ac/Dc, reggípopp-
ara, svo sem Bob Marley, UB40 og
Jimm Cliff, gamla hippa eins og Pink
Floyd og Genesis, framsækið popp
með Art Bears og Lindsay Coopoer
og þannig mætti áfram telja. Skrýtið.
mig svolítið um þessa hljómsveit og
þá sem í henni eru. Það væri frábært
að fá mynd af þeim félögum eða
plakat. Vá!
Poppþátturinn og Æskupósturinn
eru það besta í blaðinu sem er annars
allt mjög gott. En væri ekki hægt að
hafa pennavini oftar?
Með bestu kveðju, Stína
•
Das Kapítal var upphaflega sett á
laggirnar til að koma fram á Lauga-
hátíð um verslunarmannahelgina
1984. Síðan teygðist úr samstarfinu
lengur en upphaflega var ætlað.
Stofnendur Das Kapítal voru
Bubbi Morthens söngvari, Mike
Pollock og Björgvin Gíslason gítar-
leikarar, Jakob Magnússon bassa-
leikari, og Guðmundur Þ. Gunnars-
son trymbill. Tveir þeir síðastnefndu
voru áður í Tappanum. Gítarleikar-
arnir komu úr Frökkunum og Bubbi
var í Egó og þar áður í Utangarðs-
mönnum með Mike.
Stuttu áður en Lili Marlene var
hljóðrituð hætti Björgvin í hljóm-
sveitinni. Við hans sæti tók Jens
Hansen saxafónleikari sem hafði
m. a. spilað með Megasi.
Það er möguleiki að hafa penna-
vini í hverju tölublaði Æskunnar.
QUEEN
Kæri Æskupóstur.
Ég er mikill aðdáandi Queen og
mig langar til að vita allt um þá
hljómsveit, hvenær hún var stofnuð
og það allt saman.
Með fyrirfram þökk. M.
•
Queen var stofnuð 1972 af Freddy
Mercury söngvara, Brian May gítar-
Ieikara, Deacon John bassaleikara
og Roger Taylor trommara. Upphaf-
lega átti Queen að vera stæling á
blús-rokkhljómsveitinni Led Zeppe-
lin en fljótlega fóru aðrir tísku-
straumar að setja mark sitt á músík
Queen-flokksins, s. s. bandarískt
gaggórokk (American Graffity),
John Lennon, Bowie, diskó, nýróm-
antík o. fl.
Bestu plötur Queen eru A Night at
the Opera (1975) og A Day at the
Races (1977).
BUBBI
Kæri Æskupóstur.
Hvaða hljóöfæraleikarar spiluðu
með Bubba á Plágunni? Getið þið
tekið opnuviðtal við Bubba og birt
veggmynd af honum? Hann lofaði
viðtali í febrúar 1983. Hvernig væri
að birta einhverjar litmyndir af
honum?
Okkur finnst Æskan mjög gott
blað. Sérstaklega Æskupósturinn og
Poppþátturinn. Við erum mjög
ánægðir með plakötin.
Hlynur Þór og Valgeir
Við þökkum hólið. Gítarleikararn-
ir Mike Pollock, Þorsteinn Magnús-
son (Þeysari) og Þórður Árnason
(Stuðmaður) voru allir á Plágunni
ásamt Magnúsi Stefánssyni trymbli
(Kikk) og Tómasi Tómassyni hljóm-
borðsleikara (bassaleikara Stuð-
manna).
Þegar þetta er skrifað er Bubbi í
fríi uppi í sveit þannig að við náum
honum ekki í viðtal eins og er. Þess
verður þó áreiðanlega ekki langt að
bíða að við spjöllum eitthvað við
hann. Þá birtum við áreiðanlega
myndir og jafnvel veggmynd af hon-
um um leið.
24 ÆSKAN