Æskan - 01.04.1989, Blaðsíða 15
Hvers konar leikur er þetta, Bjössi? spyrja
aría og Ástríður. Því er verr að þær áttu leið
,a. f’vkistu vera snjómaðurinn ógurlegi?
^•8 fæst við auglýsingar, segir Bjössi og
reynir að vera glaðlegur þó að hann sé reiður
slálfum sér og telpunum. Bíðið bara til 3. jan-
Uar- • • þá fáið þið að sjá!
t0ra stundin er runnin upp. Bjössó Bolloró
hjálparlið hans, Björg, Þrándur og Mjási,
Urfa að hafa marga hluti meðferðis.
Mannna ætlaði að aka með okkur en henni
. st ekki að ræsa bílinn, segir Bjössi. Hvern-
‘8 förum við að?
- Flutningabifreiðin fer eflaust upp í sveit.
Ef ég set auglýsingu á hana kemur fólk þaðan
í flokkum! Þetta skal verða sýning sem sögur
fara af. Töframaðurinn Bjössó verður á allra
vörum og frægð hans flýgur um tíma og rúm.
Líklega er rétt að hringja í fréttastofu Sjón-
varps. . .
Jónmundur Ingimundur sér ekki vel en
kemst ekki hjá að taka eftir veggspjöldum
Bjössa. - Jólaskemmtun! Já, það er gaman,
tautar hann. En hvað er þetta? Bolloró? Á að
gefa bollur? Ja, þetta æskufólk, það sem því
dettur í hug. Getur það ekki beðið til bollu-
dags. . .?
- Við hlöðum öllu á stóra sleðann og rennum
okkur niður að samkomuhúsinu, segir Þránd-
ur. Þau stafla á sleðann og stíga sjálf á. Töfra-
manninn mikla ber hæst og Mjási situr við
hlið hans. - Það er rennifæri - en förum við
ekki helst til hratt? spyr töframaðurinn titr-
andi rödd.
Hraðinn eykst - og eykst - og eykst! Þránd-
ur á erfitt með að hafa stjórn á sleðanum.
- Nú þarf töfra til ef vel á að fara! kallar
Þrándur. En Bjössó á engin ráð við þessu og
sleðinn endar í ruðningi við veginn. Þau
hendast af sleðanum - töframaðurinn og
Mjási fljúga fagurlega! Allt er þó óbrotið. . .
8 lofaði að við yrðum komin fyrir átta,
^8ir Bjössi. Við verðum að hraða okkur. Þau
s IUa öllu fyrir á sleðanum aftur og taka
e nu rakleiðis til samkomuhússins.
Þau fara hratt yfir og hitta beint á dyrnar
- en það er afar miklum erfiðleikum bundið
að nema staðar í tæka tíð! - Víkið fyrir Bjössó
Bolloró og aðstoðarliði! æpir Bjössi um leið og
þau aka á jólasveininn og jólatréð. . .
- Það er fyrir þakkandi að jól eru aðeins einu
sinni á ári, tautar Sveinki og flýtir sér að setja
aftur á sig grímuna.-----Bjössi og félagar
segja fátt en flýta sér burt með útbúnað sinn.
- Það eykur eftirvæntingu og áhuga að verða
vitni að áhrifamikilli inngöngu, segir Bjössi.