Æskan - 01.04.1989, Page 16
Eftirvænting
eftir nýju blaði
Kæri Æskupóstur!
Ég hef verið áskrifandi Æskunnar í
rúmlega eitt ár. Mér finnst hún mjög
góð og bíð alltaf með eftirvæntingu
eftir nýju blaði.
Ég er í 3. bekk Barnaskóla Akur-
eyrar. Um daginn var skólaskemmt-
un og við krakkarnir, sem erum í
skólanum eftir hádegi, lékum dagleg
störf Tansaníu-fólks. Það var mjög
gaman. Við vorum búin að læra um
Tansaníu í vetur í samfélagsfræði.
Ég vona að ég fái þig fljótt inn um
bréfarifuna!
Vertu sæl,
Erna Þórey tíjörnsdóttir,
Vanabyggd 2 g, Akureyri.
Á róli. . .
Kæra Æska!
Ég er alveg í vandræðum. Ég hef
hlustað nokkrum sinnum á þáttinn
„Á róli“ á Rás 2 en misst af heimilis-
fangi þáttarins. Getur þú sagt mér
hvert það er?
Viljið þið koma með límmiða af
Marilyn Monroe, Sálinni hans Jóns
míns, Sam Bran og Dolly Parton?
Mig langar líka í veggmyndir af þeim
og viðtal við Stefán Hilmarsson. . .
í lokin eru nokkrar kveðjur: Ég
sendi stuðkveðjur til Þóru Huldar
(hinnar ómissandi frænku minnar),
Hörpu sem deilir 4. bekk með mér,
Þóru (ómissandi grínistafrænku
minnar) og auðvitað til Sibbu
(júdómeistarans) og lauslegar kveðjur
fá allir hinir krakkarnir í skólanum.
Elín Freyja fær hamingjuóskir með
ferminguna.
Kærar Æskukveðjur,
Heidrún Sigurðardóttir.
Svar:
„Á róli,“ Efstaleiti 1, 150 Reykja-
vík. . . Vœ'itanlega hefurðu heyrt það
fyrir löngu. Spurningar sem þessa er
hœpið að bera upp fyrir Æskupóstinn
þar sem mánuður líður milli tölu-
blaða. . .
Myndir af Marilyn og Sálinni eru
þegar komnar á límmiða en berast
ykkur ekki strax. . . Viðtal við Stefán
var í 9. tbl. Æskunnar 1988.
Geimfari
Sæl, kæra Æska!
Nokkrar spurningar:
1. Hvar er best að læra að verða geim-
fari?
2. Hvað er maður lengi að læra að
verða geimfari?
3. Hvað þarf maður að vera gamall til
að komast í það nám?
4. Hvað heitir fyrsti kvengeimfarinn?
Með þökk fyrir upplýsingar,
R.
Svar:
Þjálfun geimfara fer fram á ýmsum
stöðurn í Bandaríkjunum og í Sovét-
ríkjunum. Samkvœmt upplýsingum
Menningarstofnunar Bandaríkjanna
munu ekki hafa verið settar algildar
reglur um aldur eða hve langan tíma
menn skuli nema til að teljast hœfir
geimfarar. Aldurshámark var áður 40
ár en mun ekki gilda lengur. í fyrstu
voru flestir geimfaranna flugmenn.
Nú mun miðað við að þeir hafi lokið
háskólaprófi.
Framan af voru það eingöngu
Bandaríkjamenn og Sovétmenn sem í
ferðirnar fóru en undanfarin ár hafa
menn af öðru þjóðerni verið með í för
vegna víðtœkari samvinnu um geim-
rannsóknir en í fyrstu tíðkuðust.
Fyrsti kvengeimfarinn var sovéska
konan Valentina V. Tereshkova.
Það náðist mynd!
Kæra Æska!
Ég vil þakka fyrir frábærlega gott
blað. Ég ætla að lýsa draumaprinsin-
um mínum. Hann hefur dökkt har>
er ekki mjög stór og er í 6. bekk-
Hann æfir handknattleik og kepPu
hér á Akranesi um helgina. Vink°na
mín tók mynd af honum þegar hann
var að borða. Hann heitir Einar Orn
Einarsson (Manni) og er algjörleg3
æðislegur.
Ein á Akranesi.
Hlaupastingur
Elsku Æska!
Þú verður að hjálpa mér. Þegar e
hleyp og æfi leikfimi fæ ég afai' sl®1^
an hlaupasting svo að ég verð a
hætta. Ég fékk líka hlaupasting Þe^
ég fór á hestbak en hann hætti sma
saman enda er ég mjög mikil hesia
kona. í leikfimi erum við látin hlaUP
og gera erfiðar æfingar. Mér var sag
að hlaupastingurinn hyrfi smám sa ^
an ef ég héldi áfram að hlaupa
hann versnaði alltaf þó að ég P1
mig áfram. *
Hvað get ég gert? Er þetta eittM g
óeðlilegt? Á ég að leita læknis? H
veldur hlaupasting?
16 ÆSKAJST