Æskan - 01.04.1989, Síða 35
alist upp í Michigan. Tómas nam við
Listaskóla Nordur-Karólínu en hélt
s‘ðan til Nýju Jórvíkur (New York).
Mánuði eftir komu hans þangað var
hann valinn til að lœra hlutverk
breska leikarans Peter Firtli í leikrit-
lnu Equus - og vera varamaður
hans. Síðar tók hann við af Pétri.
flann var þar í aðalhlutverki og lék á
móti þekktum leikurum, Anthony
l‘erkins ({ Nýju-Jórvík) og Anthony
Hopkins (í Los Angeles (eða Engla-
horg))
«Eftir það var gatan greið,“ sagði
óinas. „Leikstjórar spurðu ekki
h’ngur hvort ég gœti leikið heldur
lv°rt ég vœri rétti maðurinn í hlut-
verkið.“
lómas hefur leikið til skiptis á sviði
°S i kvikmyndum. Af leikritum má
"efna Júlíus Sesar og Rómeó og Júlíu
eftir Shakespeare, Candídu eftir
ernard Shaw og Mávinn eftir Tsékov
(Chekov).
A orði er haft hve vel Tómas undir-
>r sig. Han,i œfði píanóleik fjórar
"kkustundir á dag um langan tíma
"áur en myndataka hófst í Amadeusi.
barnsaldri liafði hann lcert fiðluleik
söng.
>>Foreldrar mínir höfðu varað mig
og sagt að ég myndi síðar sjá eftir
a< hafa ckki lcert á píanó,“ sagði
"ann.
Ekki veitti af að lœra undirstöðu-
atriði píanóleiks því að meðal þess
Sem hann þurfti að gera var að leika á
Jóðfcerið, sem livolft hafði verið við
Sg/andi á bakinu með krosslagða
"andleggi.
end0,1,1 nam hljómsveitarstjórn
að f óspart á þeirri kunnáttu
"alda í hlutverkinu.
NiCk*ar l,ann tók að sér hlutverk
best^S reyndi hann að gera sér sem
krein fyrir hvernig líf þroskaliefts
manns vœri og heimsótti stofnanir og
innti lœkna álits í því skyni. Mánuði
áður en upptökur liófust lagði hann
leið sína til Pittsborgar, en þar var
kvikmyndin tekin, gekk um strœti í
ítalska hverfinu, tók menn tali og
reyndi að venjast því andrúmslofti
sem ríkja átti í sögunni. Hann varð
einnig að styrkja sig með œfingum og
breyttu matarœði til að geta tekið á
körfunum sem Nicky safnaði sorpi í.
Nú ert þú nokkru nœr þó að mikió
skorti á . . ..' En myndir bceta það
upp.
Michael -
eða Mikkjáll. . .
Kæra Æska!
Mig langar til að þakka fyrir vegg-
myndina af Michael Jackson. Það var
æðislegt! En samt fmnst mér óþol-
andi þegar skrifað er Mikkjáll og
fleiri eru sammála mér. Ég vona að
þessu verði breytt.
Ég vil líka taka undir óskir um að
birta eitthvað með Marilyn Monroe
og Elvis Presley.
Þökk fyrir mjög gott blað.
Ein gamaldags.
Svar:
Skoðanir eru skiptar um íslenskun
erlendra nafna eins og þú sérð á bréf-
inu frá G.T.C. Við höfum áður birt
rök fyrir því að nota íslensk heiti þeg-
ar þau samsvara hinum erlendu. Það
gerum við einkum ef nafn er marg-
sinnis endurtekið.
Elvis verða gerð einhver skil í
Poppþœtti í 5. tbl. Mynd af Marilyn er
komin á límmiða. . .
Að útvega
áskrifendur
Kæra Æska!
Ég vil byrja á því að þakka fyrir
blaðið.
Þið mættuð gjarna birta viðtal við
Steinarr sem lék í myndinni Foxtrott.
Mig langar til að spyrja tveggja
spurninga:
1. Hvað er í verðlaun fyrir að útvega
nýja áskrifendur að Æskunni?
2. Er ekki hægt að láta fylgja blaðinu
seðil sem útfylla má með nöfnum
nýrra áskrifenda?
Ein að austan.
Svar:
Endrum og eins hefur verið efnt til
áskrifendasöfnunar á þennan hátt;
verðlaunum heitið þeim sem afla
blaðinu nýrra áskrifenda. lietur en
það hefur þó reynst að hringja í fólk,
kynna blaðið og bjóða áskrift. Við
gerum því ekki ráð fyrir að hvetja les-
endur til að safna áskrifendum. Hins
vegar munutn við launa þeim sem það
gera með bók(um). . . (Staðfesting
foreldris áskrifanda þarf að fylgja
- og geta þarf símanaúmers auk ná-
kvœms heimilisfangs)
Elvis Presley
og sápukúlur!
Sæl, kæra Æska!
Mig langar til þess að fá veggmynd
af Elvis Presley og fróðleiksmola um
hann.
Mamma hefur verið áskrifandi að
Æskunni í tuttugu og tvö (eða fjögur)
ár og ég hef lesið flestöll blöðin. í
einu blaðinu sá ég uppskrift að hörð-
um sápukúlum en ég er búin að týna
henni. Gætir þú birt þessa uppskrift
ef þú finnur hana?
Mig langar að senda kærar kveðjur
til Ásdísar og Hlífars kennara hér á
Fáskrúðsfirði.
Sunna Lind á Fáskrúðsfirði
Svar:
Sagt verður frá Elvis í Poppþœtti í
5. tbl.
Svo vildi til að ég rakst á grein um
sápukúlur í 9. tbl. Æskunnar 1972.
Öðru hverju er beðið um blöð sem
fólk hefur vantað til að geta bundið
Æskuna inn. Um það leyti, sem bréf
þitt barst, var beðið um þetta tölu-
blað!
Eg hygg að fleiri en þú hafi gaman
af greininni og birti hana því á
bls 2 7.