Æskan - 01.04.1989, Síða 42
Daníel Agúst Haraldsson svarar aðdáendum
„Sannsögli er
virðingarverðust"
Hvar og hvenær ertu fæddur?
Ég fæddist. í Stokkhólmi 26.8. 1969 kl. 20.
Hvað hefur komið þér mest á óvart?
Þegar Beggi gaf mér kaktusinn sinn.
Hvað þykir þér skemmtilegast?
Að hlusta á tónlist og skemmtilegt fólk.
En leiðinlegast?
Það cr fátt og ég reyni að forðast það.
Hvað er þér hugstæðast?
Tónlist.
Hefur þú lært hljóðfæraleik - eða söng?
Nei.
Hve lengi hefur þú verið í hljómsveitinni
Ný-danskri?
Tvö ár.
Hverjir eru með þér í hljómsveitinni? A
hvaða hljóðfæri leika þeir?
í hljómsveitinni eru auk mín: Óli á tromm-
ur, Bjössi á bassagítar, Einar á hljómborð
og Valli á gítar.
Hverjar eru eftirlætishljómsveitir þínar og
hljómlistarmenn, íslenskir og erlendir?
Langi Seli og Skuggarnir, Megas, Spilverk
þjóðanna, Cat Stevens, Tom Waits, Ivan
Rebrof, Bob Dylan, Donovan, David
Bowie og fleiri.
Hvað er á döftnni hjá Ný-danskri?
Útgáfa á tveimur lögum á væntanlegri safn-
plötu á vegum Steina hf.
Áttu önnur áhugamál en tónlist?
Já, leiklist og vini mína.
Áttu - hefur þú átt gæludýr?
Ég átti einu sinni gúbbífiska sem að lokum
hurfu í salernisskálina heima.
Hverjir eru eftirlætis-leikarar þínir - á
sviði og tjaldi - íslenskir og erlendir?
Eggert Þorleifsson, Helgi Skúlason og Guð-
rún Gísladóttir. Af erlendum má nefna
Dustin Hoffman, Robert de Niro og Meril
Streep.
Hvaða kvikmynd hefur þér fundist
skemmtilegust? En best? En leikrit?
„Með allt á hrcinu“ kitlar ósjaldan hlátur-
taugarnar og „Betty Blue“ er sú besta hing-
að til. „Dagur vonar“ fannst mér gott leik-
rit.
Æfirðu eða hefur þú æft íþróttir?
Ég æfi ekki íþróttir en syndi og hjóla mér
til heilsubótar. Áður fyrr æfði ég knatt-
spyrnu, sund, glímu, körfubolta, hand-
knattleik, borðtennis o.fl.
í hvaða skóla ertu - og hefur verið?
Námsfcrill minn hófst í Mosfellssveit en
síðan fór ég í ísaksskóla, þar á eftir Álfta-
mýrarskóla og er nú í M.R.
Hvaða námsgrein þykir þér skemmtileg-
ust?
Mér finnst þær allar frábærlega skemmti-
legar.
Hefur þú tekið ákvörðun um framhalds-
nám - og starf?
Nei.
Hvað þykir þér virðingarverðast og hvað
þolir þú verst í fari fólks?
Sannsögli er virðingarverðust og það versta
í fari fólks er dælska. (Dælskur (= heimsk-
ur) hefur í mínum huga afar neikvæða
merkingu. . .)
Áttu einhvern eftirlætismálshátt?
Eftir höfðinu dansa limirnir.
„Mér kom mest á óvart þegar
Beggi gaf mér kaktusinn sinn. “
42ÆSKAN