Æskan

Árgangur

Æskan - 01.07.1989, Blaðsíða 13

Æskan - 01.07.1989, Blaðsíða 13
igri göngugötu hita, Þetta var svolítið óvenjulegt fyrir °kkur Islendingana því að á maíkvöld- Urn heima á íslandi er sjaldan hægt að Slt,a úti á skyrtunni. Hótel Altea var mjög gott hótel, her- ®rgin stór og þægileg og þar var allt til aUs. ^etta kvöld ákváðum við að fara ^e®ma að sofa eftir langan en ^ttimtilegan dag. Hins vegar gekk kur ekkert allt of vel að sofna því að ,Ulnn var svo ofboðslegur. Og það gði lftið að opna glugga því að úti var hlti*nengu minni. í Úlfheimahöll s Hæsta dag, 29. maí, vöknuðum við v enima og eftir kjarngóðan morgun- rð fórum við í verslunarleiðangur nið- Ur 1 miðborgina. Það er eiginlega óþarfi e- ta^a það fram að veðrið var alveg v r\Stai<;t' * rauninni voru mörg ár síðan þe ri° hafði verið svona gott þarna á Ssum árstíma. Við versluðum tölu- vert enda úrvalið ekki lítið. Við sáum líka ýmislegt markvert og heimsóttum meðal annars skrifstofu Flugleiða. Þar tók á móti okkur Davíð Vilhelmsson og snæddum við síðan með honum hádeg- isverð. Hann sagði okkur ýmislegt um Franfurtborg, m.a. það að í henni og útborgum hennar á um ein milljón manna heima. Eftir hádegið fórum við í skoðunar- ferð um Rínardalinn. Við fórum í hópi með öðrum ferðamönnum og fengum enska leiðsögn. Leiðsögumaðurinn var Þjóðverji fæddur í Bretlandi. Hann var mjög almennilegur en þó var stundum dálítið erfítt að skilja það sem hann sagði. . . í ferðinni var siglt á margrómuðu Rínarfljóti. Það var hlýtt í veðri og út- sýnið frá ferjunni stórkostlegt. Vínekr- urnar teygðu sig upp eftir öllu öðrum megin; hinum megin voru skógi vaxnar hæðir og margar kastalabyggingar. Við sigldum fram hjá Loreleyjarklettinum og lögðum að landi í smábænum Rudes- heim. Þar gengum við m.a. eftir hinni frægu götu Drosselgasse eða Þrasta- stræti og á vinalegum veitingastað var snæddur kvöldverður. Staðurinn hét Rudesheimerschloss (Úlfheimahöll) og þar var hljómsveit sem lék fyrir matargesti. Þjónustufólkið var skemmtilegt og þó sérstaklega einn þjónninn sem tók alltaf vel undir með hljómsveitinni. Einstaklega söngelskt fólk, Þjóðverjar. Að lokum lá leið okkar aftur til Frankfurt. Dagurinn hafði verið góður, landslagið fallegt og rútan þægileg. Samt vorum við orðin þreytt þegar heim kom og eftir létt spjall og smáhressingu áttum við ekki í neinum vandræðum með að sofna. (Framhald) „Hitinn var að minnsta kosti 30 stig. . .“ ÆSKAJM 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.