Æskan

Árgangur

Æskan - 01.07.1989, Blaðsíða 35

Æskan - 01.07.1989, Blaðsíða 35
°g svo lafhræddir að þeir höfðu ekki mátt til að taka til fótanna. Andartak leið án þess að drengirnir hreyfðu legg eða lið en allt í einu þrumaði há karl- mannsrödd: »Látið þið litlu telpuna mína vera.“ Lað varð þögn, aðeins dauft hljóð frá b.íl í fjarska. Hár karlmaður kom fram á sjónarsviðið. Hann horfði ákveðinn á strákana sem stóðu eins og steinar úr bðrum heimi og góndu á manninn en vissu ekki hvort þeir ættu að hræðast bann. Mér fannst sem hugur minn var að brjótast í gegnum stórt skýja- þykkni. Sterkir geislar hennar vöfðu sig um mig og yljuðu mér. Eða voru það ekki þeir heldur ef til vill einhver orð með djúpa merkingu? Eg gekk í leiðslu heim. Þegar ég kom að pollinum og sá bleiku slaufurnar, sem enn voru að reyna að komast upp á bakkann, nam ég staðar og horfði á þær. Einhverra hluta vegna gekk ég ekki fram hjá þeim heldur tók þær upp og lagði þær á grátt malbikið, hlið við hlið. b®mi þjótandi aftur og tæki sér bólfestu 1 höfði mínu. Ég stóð gapandi og eld- rauð eins og nýtísku stytta. Ég vissi ''arla hvort ég átti að hlæja eða gráta. :.lver var þessi maður sem kallaði mig stúlkuna sína? »Snáfið í burt, strákakríli, og látið tebuna mína vera,“ sagði maðurinn aft- Eftir örskamma stund var allt orðið bótt aftur á vellinum og strákarnir á bak og burt. Maðurinn beygði sig niður að mér og e8 horfði í augu hans stór og græn, SLnsandi eins og stjörnur á svörtum bimni. »Það væri dásamlegt,“ hugsaði ég, :,ef eg gæti alltaf horft í þessi augu og atið þau dáleiða mig.“ Skyndilega breyttist svipur mannsins °g bar vott um vonleysi. Án þess að aegja orð sneri hann sér við og gekk h$gt á brott. Eg stóð ein eftir, opinmynnt, augun ~aft leitandi. Lengi á eftir sá ég græn ailgu hans fyrir mér og heyrði rödd ans hljóma í eyrum mér: »Látið þið litlu stúlkuna mína vera.“ Eg litaðist um og tók eftir því að sólin Ég hrökk upp af hugsunum mínum við að mamma skellti aftur útidyrahurð- inni. Hún gekk hratt inn ganginn og leit sem snöggvast inn í stofuna, horfði mæðulega á mig og henti til mín dag- blaði. Ég starði á blaðið. Stórar fyrirsagnir teygðu sig í allar áttir en virtust aðeins vera svartar blekklessur í fjarlægð. Allt í einu kallaði mamma rámri röddu: „Súla, komdu inn í eldhús andar- tak.“ Orð hennar dóu einkennilega út og urðu að hálfgerðu hvísli. Ég reis á fætur og gekk þungum skrefum inn í eldhús. Mamma sat á stól og hallaði sér að veggnum. Á borðinu var fölgrænt um- slag og blað með ókunnuglegri skrift. Mamma horfði á mig flöktandi augna- ráði. Hún var föl og virtist óttaslegin. Ég bjóst við öllu illu, jafnvel að ég yrði send í burtu. Mér var raunar sama. Ég gæti aldrei orðið ánægð í lífinu. Ég var ljót og heimsk og þreytt á að lifa. Eng- um þótti vænt um mig og mér þótti ekki vænt um neinn. Birtu lagði inn um lítinn glugga í loftinu. Á borðinu var umslagið, blaða- bunki og hnífasamstæða í furustæði. Það glampaði einkum á einn hnífinn, stóran og breiðan. Væri ekki best að taka hann og binda enda á þetta leiðin- lega líf? Ég stakk fingri ósjálfrátt upp í mig og nagaði nöglina taugaóstyrk. Ég horfði ýmist á mömmu, bréfið á borð- inu eða hnífana. Það var þögn langa stund. Loks sagði mamma hálfklökk: „Súla mín! Ég hef aldrei sýnt þér mikla umhyggju og okkur hefur aldrei komið vel saman. Þú áttir föður í Bandaríkjunum. Hann ætlaði alltaf að koma hingað til þín en ekkert varð úr því. Eitt sinn kom hann hingað til ís- lands en hitti þig víst aldrei. Ég held að hann hafi séð þig í skólanum en þar beið hann stundum eftir þér. En nú er hann dáinn. Ég var að fá bréf frá móður hans. Hún vill endilega fá þig til sín.“ Ég starði fram fyrir mig. Sama til- finning og fyrir sjö árum gagntók mig. Mér fannst höfuðið vera að springa og sá allt í móðu. Rödd mömmu hljómaði um allt, veggirnir hringsnerust og allt varð fjólublátt. Ég grét ekki en leit á hnífinn, lokaði síðan augunum og hvísl- aði: „Nei, ég ætla að berjast fyrir pabba.“ Röddin hljómaði fyrir eyrum mér: „Látið litlu telpuna mína vera.“ Grænu augun birtust mér. Ég féll fram fram á borðið. Viku síðar sveif stór þota upp í him- ininn og hvarf inn í skýin. í henni var ung stúlka reiðubúin að takast á við öll vandamál þó að hún væri með lummu- læri. (Sagan hlaut aukaverðlaun í samkeppni Æskunn- ar og Barnaútvarpsins 1988) ÆSKAJST 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.